Vinnan - 01.09.1992, Page 39
39
ERT ÞÚ AÐ TAPA
RÉTTINDUM
LÍFEYRISSJÓÐUR Dagsbrúnar og Framsóknar sendir öllum
félögum sínum í september yfirlit yfir lífeyrissjóðsiögjöld
tímabilið janúar tiljúlí 1992.
Allt verkafólk, sem vann á félagssvæði Dagsbrúnar og
Framsóknar á því tímabili, á að fá slíkt yfirlit.
Fáir ÞÚ EKKI yfirlit eða ef því ber ekki saman við launaseðla,
kunna iðgjöld þín að vera í vanskilum. Þá skaltu hafa
samband við skrifstofu lífeyrissjóðsins fyrir 1. nóvember
næstkomandi.
VIÐ VANSKIL á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins og sjóða
Dagsbrúnar og Framsóknar geta menn átt á hættu að tapa
dýrmætum réttindum.
Þar á meðal má nefna:
ELLILÍFEYRI
ÖRORKULÍFEYRI
MAKALÍFEYRI LÍFTRYGGINGU
BARNALÍFEYRI BÆTUR ÚR SJÚKRASJÓÐI
Lífeyrissjóöur Dagsbrunar og Framsóknar
Suöurlandsbraut 30, Fteykjavík
Sími 814399
Verkamannafélagið Dagsbrún
Lindargötu 9, Reykjavík
Sími 25633
Verkakvennafélagiö Framsókn
Skipholti 50A, Reykjavík
Sími 688930
VINNAN