Blik - 01.04.1953, Blaðsíða 14
12
B L I K
um fundum, bæði aðalfundum
og aukafundum. Ársgjöld fé-
lagsmanna greiðast illa. Skerða
varð nú styrkveitingar til hús-
bygginga sökum fjárskorts félags
ins. Jarðyrkjuframkvæmdirnar
minnka stórlega. Hvað veldur
þessum breytingum? Það er litl-
um vafa bundið. Vélbátaútveg-
urinn ryður sér ti! rúms. Hann
tekur hugi bænda. Hann rnark-
ar spor um bætta afkomu og
fljóttekinn hagnað. Hugur
bænda snýst um það að eignast
hlut í vélbát. Sú útgerð krefst
allshugar. Aflamagn fer vaxandi
ár frá ári. Atvinna fer að sama
skapi vaxandi við verkun aflans
og færri tímar verða afgangs
til jarðyrkjustarfa. Árið 1910
var tvívegis boðað til fundar í
félaginu án þess að fundarfært
yrði.
17. apríl 1911 var haldinn að-
alfundur og lagðir fram reikn-
ingar áranna 1909 og 1910. Síð-
an lá félagsstarfið niðri í 2 ár.
26. apríl 1914 virðist félagið
halda síðasta fund sinn. Sátu
hann einir 8 menn. Á fundi
þessum var ályktað, að gera ekki
kröfu til útistandandi árstillaga,
að leggja félagið niður, slíta fé-
lagsskapnum og afhenda hrepps-
nefndinni eignir félagsins sam-
kv. 11. grein félagslaganna.
Undir síðustu fundargjörð
rita Sigurður Sigurfinnsson,
o o
Bjarni Einarsson og Gísli Lárus-
son.
Ötull foringi.
Sigurður Sigurfinnsson hafði
verið formaður félagsins, ritari
og gjaldkeri öll starfsárin frá
stofnun þess. Hann hafði mark-
að stefnu og störf félagsins, bor-
ið fram á fundum þess merk-
ustu tillögurnar, sem horfðti til
lramfara og framkvæmda í bún-
aðarmálum Eyjanna og öðrum
atvinnumáhim. Hann virðist
hafa borið höfuð og herðar yfir
flesta aðra félagsmenn að áhuga
og víðsýni og átt traust þeirra ó-
skert í einu og öllu til forustu
og framtaks. Með Sigurði unnu
nokkrir traustir og dyggir fram
taksmenn, svo sem Guðmundur
Þórarinsson bóndi að Vesturhús
um, sem var skoðunarmaður fé-
íagsins í 13 ár, og Jón Jónsson,
hreppsstjóri í Dölum, sem var
skoðunarmaður í 12 ár. — Bjarni
Einarsson bóndi í Hlaðbæ var
skoðunarmaður í 5 ár. Þrír aðr-
ir styttri tíma.
Alls hélt Framfarafélagið 46
fundi, þar af 21 fund fyrstu 6
árin, sem það starfaði. Fjóra
fundi hélt það í barnaskólahús-
inu, tvo í Goodtemplarahúsinu,
alla hina í þinghúsinu.
YFIRLITSSKÝRSLA
um jarðabætur Framfarafélags-