Blik - 01.04.1953, Blaðsíða 28
íí6
B L I K
anna skipi öndvegið. — Það dýr-
mætasta, sem við utiga fólkið
eigum, er góð heilsa, góðir for-
eldrar og gott heimili.
H. B. G. 3. b.
Gott heimili er án efa eitt af
því bezta, sem maðurinn eignast
Á heimili, þar sem ekki er mjög
•góð stjórn á öllu, er mjög hætt
við, að börnin lendi í vondum
félagsskap, sem þeim stafar illt
af.
Til þess að heimilislífið geti
•orðið skemmtilegt, verður öll
fjölskyldan að gera sitt bezta
i því efni.
,Á mörgum góðum heimilum
»er það brýnt fyrir börnunum að
gera sitt bezta til að hjálpa
mæðrum sínum, gera ýmsa snún-
inga fyrir þær, þvo upp leirinn
með þeim o. s. frv. Allt of fá-
ir kunna að meta gildi hins
g'óða heimilis, þeir sem það eiga.
E. J., 3. b.
Þeim unglingi ,sem á hvorki
pabba né mömmu og engan að,
honum getur varla liðið vel.
Mér finnst, að heimilin eigi að
vera hrein og hlýleg. Það þarf
ekki að bera mikið í þau, svo
að þau verði hlýleg og aðlað-
andi, en til þess þarf húsmóðir-
in að leggja fram mikla vinnu,
og allir á heiinilinu þurfa að
læra að meta störf hennar og
virða............Það er mikils
virði fyrir ungling að eiga gott
heimili, svo að honum finnist
ekki, að hann verði að fara að
heiman til að sækja ánægju,
sem hægt er að veita sér heima.
Ástþór Rnnólfsson, 3. b.
Heimilið á að vera ímynd
friðar og gleði, þar sem fjölskyld
an situr í hlýlegri stofunni á
kvöldin og hlustar á útvarpið
eða eitthvað þess háttar. Stund-
um les heimilisfaðirinn upp úr
einhverri góðri bók fyrir kon-
una sína, en hún situr þá með
prjónana eða stoppar í sokka,
því að alltaf er nóg að gera.
Það er í raun og veru ekkert
heimili, ef húsmóðirin er ekki
heima. Hún þarf ekki að vera
nema nokkra daga í burtu til
þess að munur verði brátt á.
hversu heimilislífið verður leið-
inlegra, tómlegra, maturinn ef
til vill verri og allt í drasli.
(Þess vegna er oftast allt á tjá'
og tundri hjá piparsveinum).
Heimilið þarf hvorki að vera
stórt né íburðarmikið. en það
þarf að vera þannig, að börnin
fjarlægist ekki heimili sín og
fari að stunda götuna.
Á. Á., 3. b.