Blik - 01.04.1953, Blaðsíða 60
B L I K
58
Út við suðurvegg gegn sól
og sumri situr Sigurhanna í
sætum hjúp. Hún er þung og
traust og enginn veifiskati, enda
á hún til traustra að telja, þar
sem er Ivar beinlausi Ragnars-
son annarsvegar, en hinsvegar
séra Asgeir, kallaður auraprest-
ur, er var skartmaður mikill og
manna listugastur, sem skráð er.
Trúmansmegin við Sigur-
hönnu situr Guðlaug í grænni
kápu. Hún hefur dafnað mæta
vel urn dagana og ber þess sjálf
glögg merki. Guðlaug er gædd
ríku ímyndunarafli og skáldleg-
um hneigðum. Hún er tápmik-
il sem Tarzan og römm að afli
sem rekkar þeir, er hún rekur
kyn til, svo sem þeir nafnarnir
Björn stallari og Björn bríkar-
nef, gestahöfðingi.
í þriðju röð Rússlandsmegin
situr Erna nokkur Jóhannesdótt-
ir. Hún er augnayndi bekkjar-
ins sveina, ótti þeirra og angist.
Rjóð er lnin og broshýr og læt-
ur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Bernskuhugsjón hennar
var trumbusláttur, en nú hugs-
ar hún einvörðungu til húsmóð-
urstarfanna á inum laufga ási.
Erna er dökk sem nóttin og
tíguleg sem sjálf Afrodite.
Ernu til vinstri handar situr
Ágústa in gullinhára. Hún er
hlý og björt sem morgunsólin
og háttprúð sem hefðarmey.
Hún er raforkumálasérfærðing-
ur bekkjarins og óútreiknanleg
gagnvart piltum í landsprófi,
því að hún er þögul sem nóttin,
dul og dreymandi. Brámánar
hennar eru bjartir og skínandi
og heilla höldasyni.
Aðalsteinn í okkurgulri peysu
er piltur nefndur, Brynjúlfsson.
Hann er lipurmenni hið mesta,
ljóshærður að framan en jarp-
hærður aftan fyrir. Aðalsteini
þessum er margt til listar lagt;
hann er tónskáld og gítarmak-
ari, fimleikamaður mikill og
mjög lesandi, náttúruskoðari og
leikritasemjari, Þórunnari og
þolgóður í hverri raun; þund-
ur ála bála ágætur og efni mik-
ið. Hann er formaður mál-
fundafélags nemenda og situr
í miðdepli deildar sem vera ber.
Framanvert við tónskáld
bekkjarins, nær Niflheimum,
situr Guðmundur hreini niður
Aðalsteins. Hann rekur kappa-
kyn sitt í móðurætt til Rögr,
valdar Mærajarls, bróður Göngu
Hrólfs af Mæri, en föðurkyn
hans verður lengst rakið til
CTtiðmundar Þorvaldssonar ins
dýra ,goðorðsmanns á Bakka, et
var vinur mikill Snorra blá-
hatts Þórarinssonar grautnefs,
sem kunnugt er. Guðmundur
hreini er hugsuður bekkjarins
og heimspekingur, sem situr
oft í þungum þönkum sem
heillaður væri af Helenu eða