Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.1997, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 15.01.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Magnús Hávarðarson Netfang: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Bæjarins besta Stofnað 14. nóvember 1984 Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. ?Spurning in Eru Vestfirð- ingar vælu- skjóður? Leiðari Kaup Samherja á Hrönn hf., eða öllu heldur aflaheimildum Guggunnar, er stærsta og átakanlegasta dæmið um hriplegt kvótakerfi, sem þjónar þeim helsta tilgangi að koma yfirráðum mestu auðlindar okkar Íslendinga á fárra manna hendur. Allt hjal um að almenningur eigi nú orðið svo og svo mikið í útgerðarfélögum eða verði síðar meir gefinn kostur á frekari hlutdeild í þeim er blekking ein, í því augnamiði gerð, að hinir raunverulegu fáu eigendur fái notið aðstöðu sinnar í friði bak við tjöldin. Almenningur, hinn litli hlutabréfaeigandi, kemur aldrei til með að ráða einu eða neinu um gang stórútgerðarinnar í landinu. Í langflestum tilfellum lætur almenningur sig þetta heldur litlu skipta, enda áhuginn á hlutabréfakaupum bundinn við skattaafslætti en ekki útgerð. Þetta vita allir og mest og best þeir, sem lofsyngja hlutabréfakaupin á uppsprengdu verði, sem afar hæpið er að skili sér nokkurn tíma aftur til kaupandans. Varnaglarnir í fiskveiðistjórnunarlögunum, sem tryggja áttu forkaupsrétt heimamanna og koma í veg fyrir að skip og kvóti væru seld frá heimahögum, hafa líkt og annað í þessum lögum reynst vita haldlaus ákvæði. Þannig stendur löggjafinn berstrípaður frammi fyrir alþjóð og er aðhlátursefni braskaranna, sem hagnast á ólögunum. Almenningi í sjávarþorpum vítt um land er aftur á móti ekki hlátur í huga. Skipbrot útgerðarfélags Guggunnar, þessa lengst af flaggskips ísfirska Þessum ólögum verður að eyða flotans og síðan gulleggin í körfu eigendanna, sýna okkur í reynd eðli kvótakerfisins. Það er viðurkennt að útgerðarfélagið réð ekki við fjárfestinguna. Guggan var einfaldlega alltof dýr, skuldir of miklar, lánin óhagstæð og hömlur af hálfu norskra seljenda. Þetta slampaðist þó einhvern veginn með óheftum aðgangi að utankvótaafla og sölu og leigu á úthlutuðum kvóta. Aflatakmarkanir á fjarlægum miðum settu allt í hnút. Endalok Hrannar hf., fékk ,,happy end”, að amerískri glansmynda- fyrirmynd, fyrir eigendur fyrirtækisins, sem eru alls góðs maklegir. En það eru takmörk fyrir öllu. ,,Guðbjörgin breyttist í gull”. Þannig orðaði DV það. Óveiddi fiskurinn í sjónum breytti útgerðinni, sem ekki reis undir skuldum í gull. Já, það eru takmörk fyrir öllu. Salan á Guðbjörginni er staðreynd. Gildir því nú, sem áður, að eigi skal gráta Björn bónda, heldur safna liði. Það er sjálfsagt að menn selji skip sín eins og aðrar eignir, til þess hafa þeir fullan rétt. En það stríðir gegn öllum lögmálum siðaðra manna, að einstaklingar selji þjóðareign, lögum samkvæmt, sem sína eigin. Þeim ólögum, sem færa einstaklingum slíkan umráðarétt yfir fjöreggi þjóðarinnar, verður að eyða. Til þess verks verða menn að safna liði. Það þolir enga bið. s.h. Kristinn H. Gunnarsson, alþingismaður: „Nei, ég er nú ekki þeirrar skoðunar. Hinsvegar er ekki því að neita að þeir hafa gjarnan kennt kvótakerfinu um ófarir í atvinnulífinu og einkum þegar illa gengur hjá einstökum fyrirtækjum. Ég er á þeirri skoðun að menn hafi gert of mikið af því að gera kerfið að blóraböggli í þeim efnum. Kvótakerfið og í raun hvert annað mannana verk hefur alltaf einhver áhrif á skilyrði í atvinnulífinu og ég held að það hafi verið það sem fréttamaðurinn var að vísa til.“ Erfiðleikar í atvinnumál- um á Þingeyri og nú síðast sameining Samherja og Hrannar hafa vakið upp umræður í öllum helstu fjölmiðlum landsins. Ekki hefur verið komist hjá að ræða við Vestfirðinga sjálfa um þessi mál og eins og við vitum þá tölum við tæpi- tungulaust og kjarnyrt mál. Ekki erum við heldur að draga úr þeim erfiðleikum sem við blasa. Einhverjir hafa orðið til að setja ofan í við okkur fyrir „vælið“ en úr tók þegar fréttamaður á Stöð 2 gat ekki á sér setið og sagði eitthvað á þá leið að; „Vestfirðingar ættu að hætta þessu væli og fara bara að gera út.“ Vestfirðir Veiðieftirlits- maður ráðinn Jón Ellert Guðjónsson hefur verið ráðinn veiðieftirlitsmaður hjá Fiskistofu með aðsetur á Ísafirði. Að sögn Atla Atlasonar, starfsmanna- og fjármálastjóra, sóttu 10-15 manns um stöðuna og að Jón hafi verið ráðinn m.a. vegna fyrri starfa fyrir Fiskistofu og eins þess að hann var tilbúinn að flytjast á Ísafjörð. Hlutverk Jóns verður að annast hefðbundin störf veiði- eftirlitsmanns m.a. í sambandi við kvóta- og vigtarmál. Auk þessa mun Jón hafa umsjón með landamærastöð sem sett verður upp á Ísafirði innan tíðar. Aðspurður sagði Atli að margir umsækjanda hefðu verið mjög hæfir og orðið hafi að velja einn úr, eins og svo oft áður þegar margir sækja um. Ísfirðingafélagið Sólarkaffi Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldið laugardagskvöldið 25. janúar nk., að Hótel Íslandi. Húsið opnar kl. 20:00 en kl. 20:30 hefst hefðbundin hátíðardagskrá með kaffi og rjómapönnukökum. Einungis ísfirskir skemmtikraftar munu skemmta á hátíðinni. Hátíðarræðu kvöldsins flytur Halldór Hermannsson og ef að líkum lætur, mun hann láta gamminn geysa. Að skemmtiatriðum loknum verður stiginn dans til kl. 03:00. Að þessu sinni eru í skemmtinefnd þeir Jón Björn Sigtryggsson, Konráð Eyjólfsson og Rafn Jónsson. Forsala aðgöngumiða á hátíðina fer fram að Hótel Íslandi, laugardaginn 18. janúar frá kl. 14-16. Borð verða tekin frá á sama tíma. Miða- og borðapantanir eru auk þess í síma 568 7111 dagana 21.-25. janúar frá kl. 13-17, ef greitt er með greiðslukortum. Náttúrustofa Starfsmaður ráðinn Þorleifur Eiríksson hefur verið ráðinn forstöðumaður Náttúrustofu í Bolungarvík frá 1. janúar 1997. Þorleifur, sem er fæddur 1956, er doktor í dýrafræði frá Háskólanum í Stokkhólmi. Að sögn Ólafs Kristjánssonar, bæjarstjóra í Bolungarvík, hafa tekist samningar milli bæjarstjórnar Bolungarvíkur og Umhverfisráðuneytisins um Náttúrustofuna og að nú sé unnið að útboðsgögnum og verklýsingu á innréttingum húsnæðis stofunnar að Vitastíg 3. Vinna við neyðaráætlun á Flateyri lokið Neyðaráætlun fyrir Ísafjörð á lokastigi Sigríður Hrönn Elíasdóttir er svæðisstjóri Rauða krossins á Vestfjörðum. Hún hefur í samstarfi við heimamenn á hverjum stað, unnið að gerð neyðaráætlana og hefur nú lokið fyrsta verkefninu sem er áætlun fyrir Flateyri og Önund- arfjörð. Rauði kross Íslands er hjálp- araðili að Almannavörnum rík- isins og hefur það hlutverk að sjá um fjöldahjálparstöðvar í neyðartilvikum sem geta skap- ast t.d. vegna snjóflóða eða hættu á snjóflóðum. Að sögn Sigríðar Hrannar hefur Rauði krossinn verið duglegur að halda námskeið fyrir sitt fólk en eitt slíkt námskeið var haldið á Flateyri á síðast ári og var það mjög vel sótt. „Námskeiðin byrja með kynningu á Rauða krossinum. Síðan gerir fulltrúi Almannavarna ríkisins grein fyrir hlutverki Almannavarna í neyðarvörnum, fulltrúi Lands- bjargar útskýrir hlutverk björg- unarsveita og þátttakendur eru upplýstir um fyrstu hjálp. Að lokum eru verklegar æfingar þar sem þátttakendum er skipt í hópa og þeir m.a. látnir sjá um opnun fjöldahjálparstöðva.“ Sigríður Hrönn segir að vinna við neyðaráætlanir fyrir Ísafjörð og Bolungarvík séu á lokastigi og að aðrir séu að vinna að sínum. Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar tapaði með einu stigi er liðið tók á móti Skallagrími frá Borgarnesi í leik liðanna sem fram fór í íþróttahúsinu á Torfnesi á föstudag. Lokatölur leiksins urðu 67- 66 fyrir gestina. Þrátt fyrir þó nokkra spennu, sérstaklega undir lok leiksins, var um fremur lélegan leik að ræða, sérstaklega af hálfu Ísfirðinga. Andrew Vallejo, sem leikið hefur með KFÍ frá því keppni hófst í haust, er hættur að leika með liðinu og er von á Kanadamanni í hans stað. Næsti leikur KFÍ er gegn neðsta liði úrvalsdeildar, Breiðabliki, og hefst hann kl. 20 á föstudagskvöld í íþróttahúsinu á Torfnesi. ,,Ég er ekki vanur að tala opinberlega um úrslit fyrirfram, en við ætlum að vinna þennan leik,” sagði Guðjón Þorsteinsson, liðsstjóri KFÍ í samtali við blaðið. Um síðustu helgi fór fram í Laugardalshöll, stjörnuleikur KKÍ, þar sem tvö sérvalin úrvalslið kepptu innbyrðis. Í hálfleik fór fram troðslukeppni og þriggja stiga keppni og sigraði leikmaður KFÍ, Baldur Jónasson í þeirri síðarnefndu. Leikmenn fengu 50 sekúndur til að skjóta 15 boltum og var samtals hægt að fá 20 stig ef allir fóru ofan í. Tveir leikmenn, Guðjón Skúlason, Keflavík og Baldur Jónasson, voru jafnir með 10 stig og þurfti því bráðabana til að knýja fram úrslit. Baldur gerði sér lítið fyrir og sigraði. Naumt tap gegn Skallagrími Vallejo hættur hjá KFÍ Baldur Jónasson, þriggja stiga skytta KFÍ.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.