Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.1997, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 15.01.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 7 sagði hann; „ Ég þekki þetta ekki neitt og trúi því einhvern veginn ekki á fyrrverandi eigendur Hrannar - á maður víst að segja núna, að þeir hafi ekki viljað selja skipið hingað hafi verið einhver grundvöllur fyrir slíkri sölu. Það er slæmt ef það er rétt, að þeir hafi ekki viljað sinna óskum Ísfirðinga um að halda þessu hér í bænum. Það er greinilegt að nú þurfa menn að vakna til lífsins og við skulum bara vona að það sé ekki of seint. Fyrir fimm árum varaði ég við þessu og uppskar mikinn hlátur manna þegar ég sagði að við ættum að leggja hvern einasta eyri í kaup á veiðiheimildum. Menn sögðu að kvótakerfið kæmi ekki til með að lifa lengi en nú er þetta sama kvótakerfi að ganga af okkur dauðum og þá er ekki um annað að ræða en við heimtum það af okkar full- trúum á Þjóðþingi Íslendinga að kvótakerfinu verði breytt. Ég gef mér það að ekki sé hægt breyta því með einni handa- hreyfingu heldur verði það að gerast í áföngum og sé ég fyrir mér að innleysa þurfi þær heimildir sem úthlutað hefur verið á 4-7 árum. Engin önnur leið er til.“ Eigendur Hrannar bera hag Ísafjarðar fyrir brjósti „Ég held bara að þetta sé hluti af þeirri þróun sem átt hefur sér stað í sjávarútvegnum í þá átt að einingarnar eru að verða stærri og það sem gerist þarna er að eigendur Hrannar eignast hlutabréf í Samherja. Samherji verður þá með starf- semi á Ísafirði, Akureyri, Dalvík og Eskifirði auk starf- seminnar sem fer fram erlend- is,“ sagði Þorsteinn Már Bald- vinsson, framkvæmdastjóri Samherja, þegar hann var spurður um hvaða ávinning sameining fyrirtækjanna hefði í för með sér. Þorsteinn var einnig inntur eftir hvort hann gæti gefið Ísfirðingum ein- hverja tryggingu fyrir því að Guðbjörg yrði áfram gerð út frá Ísafirði. „Ég held að Ísfirð- ingar eigi nú að þekkja þá Guðmund Guðmundsson og Ásgeir Guðbjartsson það vel að þeir ættu að átta sig á hvað vakir fyrir þeim og því sem þeir eru að gera, en það er einfaldlega að tryggja að Guð- björgin verði á Ísafirði áfram. Ég held að menn finni ekki meiri Vestfirðinga en þá Guð- mund og Ásgeir og þeir eru einfaldlega að tryggja rekstur skipsins betur. Það hefur aldrei hvarflað að þeim að ganga frá málum öðruvísi en að það geti verið þarna áfram.“ Þorsteinn sagði að ákveðið hefði verið að upplýsa ekki að sinni hver eignarhluti eigenda Hrannar yrði í Samherja en sagði jafnframt ljóst að Sam- herji færi á hlutabréfamark- aðinn í febrúar og þá kæmi í ljós hverjir ættu í fyrirtækinu og hversu mikið. „Hluti af því sem við ætlum að gera er að fara á hlutabréfamarkaðinn og við munum hafa hlutafjárútboð í febrúar og hluti af þeim peningum sem við ætlum að sækja á markaðinn mun fara í að lækka áhvílandi skuldir á Guðbjörginni. Það sem menn eru að gera núna er einfaldlega Nokkrir bæjarbúar voru teknir tali og þeir beðnir um álit sitt á sameiningu Hrannar hf. og Samherja hf. Ásthildur Cesil Þórðar- dóttir, garðyrkjustjóri: „Mér finnst þetta fyrst og fremst bara sorglegt. Ég trúi ekki fyrr en á reynir, að skipið leggi upp hér.“ Sigurður Th. Ingvarsson, starfsmaður Ísafjarðar- hafnar: „Ég er smeykur við að þegar fram líða stundir muni kvótinn fara úr bæn- um, þótt menn segi annað í dag.“ Snorri Sturluson, sjó- maður: „Mér finnst þetta sýna best hvað kvótakerfið er mikið rugl. Þetta er bara vettvangur auðvaldsins til að flytja til atvinnu fólksins í landinu. Atvinnan á að sjálfsögðu að vera hérna þar sem fólk hefur unnið kynslóð fram af kynslóð við að færa björg í bú. Alfreð Erlingsson, pípu- lagningarmeistari: „Það er erfitt að svara þessari spurningu, en ég held að þetta hafi engin áhrif á atvinnulífið hér vegna þess að aflinn sem Guðbjörg hefur komið með á land hefur skapað sára- litla vinnu. Ég ætla samt að vona að yfirlýsing Sam- herjamanna, þess efnis að skipið verði hér, standist fram í lengstu lög.“ að tryggja reksturinn.“ Þor- steinn sagði, í sambandi við ótta Ísfirðinga við að kvótinn og skipið færi á brott; „Ég held að tíminn verði bara að leiða þetta í ljós. Við fórum m.a. inn í fyrirtæki á Dalvík og sögð- umst ætla að fara þar inn til að efla starfsemina. Það hefur gengið eftir og sama má segja um starfsemina á Eskifirði. Í sambandi við Ísafjörð, þá held ég að við látum bara verkin tala þar. Ég held að í sjálfu sér geti menn lítið gert til að lægja þessar öldur. Fólk ætti að bera það traust til þeirra Guðmundar og Ásgeirs að þeir væru ekki að þessu án þess að þeir trúi því að reksturinn verði á Ísafirði áfram eins og verið hefur.“ Í sambandi við ummæli Þorsteins Jóhannessonar, for- seta bæjarstjórnar Ísafjarðar- bæjar, um að það hafi sýnt sig við sameiningu Samherja við Hvaleyri í Hafnarfirði, að aflaheimildirnar hafi þar fljót- lega farið úr byggðarlaginu, sagði Þorsteinn Már; „Við fórum í uppskipti á Hvaleyri þar sem við vorum hluthafar ásamt öðrum og við fórum með skipið norður það er alveg rétt. Ég hef svo sem ekkert við Þorstein nafna minn að segja um það mál. Ég held að það sé ágætt að gera út frá Ísafirði, þaðan er tiltölulega stutt á mið og hefð fyrir útgerð er þar til staðar, þannig að ég tel enga ástæðu til að breyta neinu í sjálfu sér. Ég vil bara endurtaka að Guðmundur, Ásgeir og þeir sem tengjast þessum málum væru ekki að þessu nema þeir tryðu að rekstur skipsins yrði þarna áfram. Þeir bera hag Ísafjarðar og sjómanna það mikið fyrir brjósti og telja sig hafa tryggt þetta á þennan hátt,“ sagði Þorsteinn Már að lokum og sagðist bjartsýnn á starfsemi Samherja á Ísafirði. Sameining Hrannar hf. og Samherja hf. Yfirlýsing frá eigendum Hrannar Það var um mitt ár 1992 sem eigendur Hrannar hf. á Ísafirði fóru að huga að því að endurnýja skipa- kost fyrirtækisins. Þau áform leiddu til þess að gerður var smíðasamningur við Flekkefjord Slipp í Noregi. Skipið, Guðbjörg ÍS 46, kom síðan til Ísafjarðar í október 1994. Endanlegt kostnaðarverð skipsins reyndist verða 1,6 milljarður króna. Fjármögnun fór fram með þeim hætti að eldra skip félagsins Guðbjörg, var tekið upp í andvirði þess nýja af skipasmíðastöðinni fyrir 380 milljónir kr. Hrönn hf. greiddi í peningum 220 milljónir kr. en mismunurinn var tekinn að láni hjá norskum lánastofnunum. Áður en tekin var ákvörðun um að láta byggja frystitogarann Guðbjörg ÍS 46, var endurskoðunar- skrifstofu Sigurðar Stefánssonar hf. í Reykjavík falið að setja upp rekstraráætlun fyrir skipið. Í áætluninni var gert ráð fyrir því að auk þeirra veiðiheimilda sem skipið hafði innan íslenskrar fiskveiðilögsögu, fengjust umtalsverðar tekjur af úthafsveiðum utan 200 mílna markanna. Miðað við að skipið yrði fullnýtt á eðlileg- um úthaldstíma, var gert ráð fyrir því að hægt væri að ná aflaverðmæti fyrir allt að 600 milljónir kr. og myndi það duga til þess að reksturinn næði því að vera í jafnvægi. Á síðasta ári stundaði Guðbjörg eingöngu rækju- veiðar og var skipið fyrst á heimamiðum en síðan átta mánuði á Flæmingjagrunni og varð aflinn þar 1640 tonn. Miðað við þær takmarkanir sem ákveðn- ar hafa verið á veiðum þar um slóðir, skapar þessi afli veiðireynslu upp á 350 tonn að því að áætlað er þegar veiðar þarna verða kvótasettar. Brúttótekjur Hrannar hf. voru á síðasta ári 650 milljónir króna. Sex mánaða uppgjör kom út með hagnaði upp á 18 milljónir króna og má því gera ráð fyrir að útkoma fyrir árið verði jákvæð og hefur öllum lánum verið haldið í skilum. Íslensk stjórnvöld hafa gerst aðilar að samkomulagi er felur í sér mjög mikla takmörkun á öllum veiðum utan 200 mílna fiskveiðilögsögunnar. Með tilvísun til þess hve stutt er síðan Guðbjörg kom í rekstur hefur skipið ekki náð því að vinna sér neina aflareynslu á þessum miðum utan þess sem áður er getið. Þetta mun óhjákvæmilega koma fram í verulega skertu aflaverðmæti og þar með versnandi afkomu fyrir fyrirtækið. Óhjákvæmilega mun stefna í taprekstur verði ekkert að gert og afleiðingar þess gætu aldrei orðið nema á einn veg, fyrirtækið myndi fyrr eða síðar komast í greiðsluþrot. Stjórn Hrannar var því ljóst að eitthvað varð að gera til þess að bregðast við þeim vanda sem kominn var upp á borðið. Með Hrönn hf. og Sam- herja hf. hefur verið mjög góð samvinna um hagræð- ingu í útgerðarrekstrinum og í framhaldi af því voru í byrjun nóvember teknar upp viðræður þessara aðila um nánari samvinnu en verið hafði, þar sem það var mat stjórnenda Hrannar að Samherji hefði öðrum fremur möguleika til þess að tryggja að rekstur Guðbjargar gæti haldið áfram í þeim farvegi sem verið hefur. Þessar viðræður leiddu til þess að undirritað var samkomulag 7. janúar um samruna fyrirtækjanna. Með þessari gerð er tryggt að unnt verður að fullnýta veiðihæfni og afkastagetu Guðbjargar. Skipið mun áfram verða skráð frá Ísafirði og áhöfn hin sama og verið hefur. Aflanum verður landað á Ísafirði eftir því sem við verður komið hverju sinni. Því hefur verið haldið fram að Hrönn hf. hafi farið út í offjárfestingu þegar tekin var ákvörðun um smíði Guðbjargar. Því er til að svara að ef ekki hefði komið til þeirra takmarkana á veiðum utan 200 mílna fiskveiðilögsögunnar sem taka gildi á árinu 1997, þá hefði tekist að ná endum saman í rekstrinum svo sem komið hefur í ljós og hér er greint frá miðað við árið 1996, sem er fyrsta árið sem skipið er í fullum rekstri. Þá hafa eigendur Hrannar sætt ámæli fyrir að hafa ekki gengið til liðs við aðila Básafells hf. í þeirri sameiningu er þar hefur átt sér stað. Raunar var aldrei eftir því leitað af þeirra hálfu að Hrönn hf. kæmi þar að fyrr en í símtölum þegar málið var svo til endanlega frágengið við Samherja hf. Þá var það og metið svo að sú leið væri ekki vænleg til lausnar á þeim mikla vanda sem framundan var. Hrönn hf. hefur nú í 41 ár staðið að útgerð Guð- bjarganna með farsælum hætti. Það eru því vissu- lega sár vonbrigði að nú hafi ytri aðstæður orðið til þess að þessu tímabili er að ljúka. Mestu varðar þó að útgerð Guðbjargar færist yfir á hendur þess aðila sem hefur á ótvíræðan hátt sannað getu sína á þeim vettvangi.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.