Bæjarins besta - 15.01.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 5
Tannlæknaþjónusta á landinu
Ódýrust á Ísafirði
Í Staðtölum almannatrygg-
inga fyrir árið 1995, sem
Tryggingastofnun ríkisins gef-
ur út, kemur fram að kostnaður
vegna tannlæknaþjónustu er
minnstur á Ísafirði þegar miðað
er við kostnað á hvern íbúa.
Þegar kostnaðurinn er borinn
saman milli staða kemur í ljós
að kostnaður vegna tannlækna-
þjónustu er 2.265 krónur á
hvern íbúa á Ísafirði á meðan
t.d. í Bolungarvík er kostnaður
á hvern íbúa 6.407 krónur.
Tölur teknar af handahófi úr
skránni sýna að kostnaðurinn
er 3.665 krónur á Patreksfirði,
4.092 krónur á Sauðárkróki,
6.105 krónur á Egilsstöðum,
4.825 krónur í Keflavík og
4.662 krónur á Akureyri. Það
sem vekur sérstaka athygli er
sá mikli munur sem er á Ísafirði
og Bolungarvík eða 4.142
krónur á hvern íbúa. BB kann-
aði málið hjá yfirtannlækni
Tryggingastofnunar ríkisins
Reyni Jónssyni.
„Við erum að skoða þetta
sérstaka dæmi um Ísafjörð og
Bolungarvík þannig að ég get
ekki gefið upp ástæður fyrir
þessu núna. Ég vil hins vegar
benda á að við verðum að hafa
í huga að það kunna að vera
staðbundnar aðstæður fyrir
hendi þ.e.a.s. það eru fleiri
tryggðir á einum stað heldur
en öðrum, það gæti sem sagt
verið meira af skólakrökkum á
öðrum staðnum. Eins gæti það
verið að menn séu mismunandi
duglegir að kalla börnin inn en
þetta þarf ekki alltaf að vera í
refsiverða átt ef ég má kalla
það svo. Það er vitað að menn
hafa mismunandi vinnureglur
sem felst m.a. í greiningu á
meðferð. Sumir nota ákveðið
mynstur yfir alla línuna þar
sem það sama er gert við alla
nánast óháð því hvernig ástand-
ið er í munninum. Á meðan
eru aðrir, sem virkilega þekkja
sinn sjúklingahóp, sem miða
meðferðir við ástand hvers og
eins. Þarna eru hlutir sem við
hjá Tryggingastofnun erum að
reyna að taka á. Eins og ég
sagði þá erum við að skoða
þetta tiltekna dæmi fyrir
vestan og við skulum bíða og
sjá. Þetta kemur í ljós.“
Reynir sagði að mögulega
gætu verið aðrar aðstæður í
Bolungarvík og að t.d. hafi
því verið haldið fram að það
væri með ólíkindum hvað
tannskemmdir væru algengar
þar. „Það kunna að vera aðrar
hefðir ríkjandi þar, þetta er
tiltölulega lítið samfélag
þannig að það sem einn tekur
upp er kannski mjög fljótt að
dreifast um samfélagið eins
og t.d. að hanga á sjoppunum.“
Sparisjóður Súðavíkur
Ragnar lætur
af störfum
Ragnar Jörundsson, sem gegnt hefur starfi sparisjóðsstjóra
Sparisjóðs Súðavíkur í tæpt eitt og hálft ár, lætur af störfum um
næstu mánaðarmót af persónulegum ástæðum.
Áður en Ragnar hóf störf í Súðavík gegndi hann starfi
sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Ólafsvíkur um tveggja ára skeið en
þar áður var hann sparisjóðsstjóri í Súðavík í þrjú ár. Að sögn
Ragnars er stefnan tekin á Reykjavík en þar hefur hann fengið
starf sem framkvæmdastjóri Félags eldri borgara í Reykjavík.
Ragnar sagði að staða sparisjóðsstjóra Súðavíkur yrði ekki
Ragnar Jörundsson. Steinn Kjartansson.
auglýst laus til umsóknar, þar sem viðræður hefðu staðið yfir við
ákveðinn aðila um að taka að sér starfið. Hann vildi að svo
stöddu ekki gefa upp hver sá aðili væri. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins mun hér vera átt við Stein Kjartansson, sem um árabil
hefur gegnt starfi skrifstofustjóra hjá Frosta hf., í Súðavík.
Gríman fallin af kvótakerfinu
Eru stjórnvöld heilalaus?
Sífellt vaxandi ólgu gætir hjá
almenningi í þjóðfélaginu og
ekki síst hjá Vestfirðingum
gagnvart kvótakerfinu og fylgi-
fiskum þess. Varla koma sam-
an tveir öðruvísi en umræðan
snúist að miklu leyti um
fiskveiðistjórnun, kvóta og
sægreifa. Engan skal undra þótt
stundum hitni í kolunum þegar
þessi mál eru rædd, því fólk
gerir sér grein fyrir mikilvæg-
inu og telur margt að telfd sé
refskák af stjórnmálamönnum
og kolkröbbum, þar sem fram-
tíð fólks og þá ekki síst ungs
fólks, sé lögð að veði. Kvóta-
kerfið hafi fellt grímuna og
gnæfi yfir þjóðinni eins og
ofvaxið skrímsli sem enginn
fái ráðið við.
Auðveldast er að gagnrýna,
en erfiðara getur reynst að
benda á leiðir til úrbóta og
virðist sem margir hafi lagt
árar í bát og fallist á það
sjónarmið að leiðin til baka sé
ófær. Ekki eru þó allir á því
máli og til eru kjarkmiklir
menn sem af og til varpa fram
hugmyndum til lagfæringar
núverandi kerfi eða benda á
nýjar leiðir. Pétur Sigurðsson,
forseti Alþýðusambands Vest-
fjarða, bendir á þann möguleika
á öðrum stað í blaðinu, að
stjórnvöld leysi til sín kvótann
á 4-7 árum og hafi eftir það
með forræði hans að gera. Að
hans mati er þetta eina færa
leiðin út úr kvótakerfinu.
Sjómaður sem kominn er á
efri ár benti blaðinu á, að með
aukinni fiskgengd gæti skap-
ast svigrúm fyrir stjórnvöld til
aðgerða. „Ef fiskistofnarnir ná
sér upp, eins og margt bendir
til að nú sé að gerast, er sá
möguleiki fyrir hendi, að
stjórnvöld afnemi kvótann og
gefi veiðar frjálsar í t.d. 1-3 ár.
Að þeim tíma liðnum væri hægt
að endurskoða stöðuna í ljósi
reynslunar og ákveða nýjar
leikreglur með það efst í huga
að jafna rétt manna til að sækja
í auðlindina. Einnig er ljóst að
tryggja verður að hver lands-
hluti eða byggðarlag fái rétt-
látan skerf sér til viðurværis
sem ekki yrði hægt að framselja
eða spila fjárhættuspil með eins
og nú er gert. Það nægir að
benda á Vestfirði sem dæmi
um það klúður sem viðgengist
hefur í núverandi kerfi en þeir
eru ekki svipur hjá sjón frá því
sem áður var.
Fóksfjöldi er orðinn sá sami
og 1860 sem skrifast algjörlega
á kerfið sem nú er við lýði og
Vestfirðingum er nánast mein-
að að sækja í tegundir eins og
steinbít, tegund sem þeir einir
veiddu áður fyrr og hélt lífinu í
Vestfirðingum oft á tíðum.
Grálúðan er annað dæmi en
Vestfirðingar eru frumkvöðlar
í veiðum á henni og sátu einir
að þeim veiðum til að byrja
með. Þetta hefur að mestu verið
tekið frá okkur þrátt fyrir að
þetta sé eina lifibrauð okkar.
Ég skil bara ekki hvað stjórn-
völd eru að hugsa ef þau hugsa
á annað borð. Mér er næst að
ætla að þingmenn og ráðherrar
þjáist af sjaldgæfum vírus sem
veldur alvarlegum og langvar-
andi heilaskemmdum,“ sagði
þessi sjómaður sem stundað
hefur sjóinn í 57 ár og dregið
að landi tugi þúsunda tonna. Í
dag á hann engan rétt til veiða
í íslenskri landhelgi og það á
heldur enginn af afkomendum
hans. Örfáum öðrum og sjáf-
sagt betri Íslendingum hefur
hins vegar hlotnast sá réttur.
Eftir situr spurningin: Hvar er
hefðarréttur, réttlæti og sann-
girni á Íslandi í dag?
ATVINNA
Bakki hf. óskar eftir fólk til starfa í eftirfarandi
störf:
Störf í flokkunarstöð í Bolungarvík (Mikil
vinna). Upplýsingar gefur Þorlákur Ragnars-
son í síma 456 7550.
Störf í rækjuvinnslu í Bolungarvík. Upplýs-
ingar gefur Halldór Jónsson í síma 456 7500.
Störf í fiskvinnslu í Bolungarvík. Upplýsingar
gefur Albert Haraldsson í síma 456 7500.
Starf við þrif í Hnífsdal. Upplýsingar veitir
Snorri Bogason í síma 456 5200.
Atvinnuráðgjafi
Vestfjarða
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf. auglýsir
laust til umsóknar, starf Atvinnuráðgjafa
Vestfjarða. Umsóknarfrestur er til 20. janúar
nk. Umsóknir sendist félaginu að Hafnar-
stræti 1, 400 Ísafirði. Nánari upplýsingar
veitir Halldór Halldórsson í síma 456 3170
og Aðalsteinn Óskarsson í síma 456 4633.
Starfsemi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hf. er
að hefjast undir merkjum þess. Til þessa hefur
starfsemi atvinnuráðgjafa verið hjá Fjórðungs-
sambandi Vestfirðinga. Auk atvinnuráðgjafa mun
ferðamálafulltrúi starfa hjá Atvinnuþróunarfélaginu.
Krakkar
foreldrar
forráðamenn!
Þá er komið að því!
Krakkaklúbburinn byrjar aftur eftir jólafrí
í vikunni.
Krakkaklúbbur fyrir 10 - 12 ára byrjar mið-
vikudaginn 15. janúar kl. 17:30 og 3-9 ára
hópurinn byrjar föstudaginn 17. janúar
kl. 17:30.
Hvítasunnukirkjan Salem.