Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.1997, Side 3

Bæjarins besta - 15.01.1997, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 3 Vestfirskur skelfiskur á Flateyri Áætlar að hefja vinnslu í apríl Vestfirskur skelfiskur hf., á Flateyri hefur náð nauðasamn- ingum við flesta kröfuhafa og er gert ráð fyrir að samningarnir fari fyrir dómara í febrúar. Fyrirtækið er að festa kaup á skelfiskveiðiskipi í Bandaríkjunum og hefur það um helmingi meiri burðargetu en Æsa ÍS, sem fórst í Arnarfirði í júlí á síðasta ári. Ráðgert er að vinnsla geti hafist að nýju hjá Vestfirskum skelfiski hf., í apríl. Nauðasamningarnir fela í sér að fyrirtækið greiðir 20% af öllum kröfum og fellir niður hlutafé um 80%, stefnt er að aukn- ingu hlutafjár síðar. Samningur um kaupin á skipinu frá Banda- ríkjunum verður væntanlega undirritaður undir lok þessa mánaðar en það er keypt frá Tampa í Flórída. Skipið er sérstaklega hannað til skelfiskveiða en var síðan breytt til veiða á hörpuskel og krabba. Skipið hefur legið við bryggju um tíma vegna kvótaleysis. Ráðgert er að gera nauðsynlegar breytingar á skipinu og er kostnaður við kaupin og breytingarnar áætlaður um 90-100 milljónir króna. Vestfirskur skelfiskur hf., á Flateyri er um þessar mundir að festa kaup á nýju skipi í stað Æsu ÍS sem fórst í Arnarfirði á síðasta ári. Ráðgera stjórnendur fyrirtækisins að vinnsla geti hafist að nýju í apríl. Bergmálsmælingar á þorski á Vestfjarðamiðum Rannsóknarleiðangur í janúar Hafrannsóknarstofnun ætlar að framkvæma bergmáls-mæl- ingar á þorski á Vestfjarða- miðum 15.-27. janúar. Fyrir ári var farið í svipaðan leið- angur í þeim tilgangi að rann- saka „stóru torfuna“ sem stöð- ugar fréttir bárust af frá sjó- mönnum á Vestfjarðamiðum. Að sögn Páls Reynissonar, leiðangursstjóra, sást fiskurinn mjög vel þá og var ljóst að mjög mikið af fiski var á rannsóknum á Barentshafs- þorskinum í 10-15 ár og þeir styðjist við þessar mælingar til að áætla stofnstærð. Bergmáls- mælingar hafa nær eingöngu verið notaðar við mælingar á uppsjávartegundum eins og síld, loðnu og nú síðast karfa og segir Páll að erfitt sé að koma þessari aðferð við þegar fiskur er mjög botnlægur. Það sé samt oft svo að þorskurinn leiti upp í sjó og þá henti þessi aðferð tiltölulega vel. „Við eru að þreifa okkur áfram með þetta og það eru fréttir af mikilli þorskgengd og þorski upp í sjó. Meiningin er ekki að mæla stofnstærð þorsksins eins og hann leggur sig. Þetta er tilraunastarfsemi og hvort hún á eftir að gefa einhverjar viðbótarupplýsingar sem verða notaðar er erfitt að segja um, en við vonumst auðvitað eftir því,“ sagði Páll. tiltölulega litlu svæði. Þessar mælingar voru þær fyrstu í langan tíma sem gerðar voru á þorski með bergmálsmæli. Páll segir að þarna sé um tilraun að ræða og að niður- stöður mælinga af þessu tagi gætu orðið gagnlegar við samanburð á öðrum upplýs- ingum um þorskstofninn þegar fram líða stundir. Hann segir að Norðmenn hafi notað berg- málsmælingar samhliða tog- Ísafjarðarbær Eitt atvinnusvæði - eða hvað? Eitt af markmiðunum með sameiningu sveitarfélaga og gerð jarðganga undir Breiða- dals- og Botnsheiði, var að gera norðanverða Vestfirði að einu atvinnusvæði. Mörgum finnst sem fyrirætlanir þessar hafi farið út um þúfur og að vænt- ingarnar hafi verið meiri en efni stóðu til. Hvað rök færa menn svo fyrir þessu? Þingeyri hefur verið mikið í umræðunni vegna ófremdarástands í at- vinnumálum sem skapaðist vegna erfiðleika hjá aðal fiskvinnslufyrirtæki staðarins Fáfni hf, en 68 voru á atvinnu- leysiskrá á Þingeyri fyrir jólin. Á Flateyri, sem eins og flestir vita er næsti bær við, hefur hins vegar verið næg atvinna en fátt um starfsfólk þannig að Kambur, sem er stærsti atvinnuveitandinn á Flateyri, hefur þurft að manna fiskvinnslu sína að helmingi til með erlendu farandverka- fólki. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í ljósi göf- ugra markmiða um eitt atvinnu- svæði og þeirrar staðreyndar að veðurfar hefur verið með eindæmum gott í haust og það sem af er vetri og telja að Þingeyringar hefðu getað nýtt sér þá atvinnu sem boðist hefur á Flateyri a.m.k. tímabundið þar til úr rættist í atvinnumálum á Þingeyri. Um 20-30 mín. akstur er á milli Þingeyrar og Flateyrar og er leiðin yfirleitt erfið yfir- ferðar á „eðlilegum vestfirsk- um vetrum,“ en eins og áður sagði þá hefur veðurfar verið með eindæmum gott í haust og vetur. Reyndar er það svo að engin eru jarðgöngin á milli Dýrafjarðar og Önundarfjarðar og skal það fært Þingeyringum til tekna. „Ég get ekki neitað því að þetta er svolítið sérkennileg afstaða því við verðum náttúru- lega að reyna að brjóta upp þessa hlekki hugarfarsins og fara að líta á okkur sem íbúa sameiginlegs sveitarfélags á einu atvinnusvæði þar sem íbúar geta þurft og ættu að sækja atvinnu yfir í næsta byggðarlag. Við vonumst auð- vitað til þess að hjól atvinnu- lífsins fari að snúast á Þingeyri en á meðan svo er ekki þá er ekkert eðlilegra en að fólkið fari til vinnu t.d. á Flateyri. Ég bendi á að viðlíka ástand kom upp í Bolungarvík fyrir tveimur árum þegar fyrirtækjum þar var lokað. Þá var fullt af fólki ekið í rútubíl daglega til starfa t.d. í fiskvinnslufyrirtækjum á Ísafirði og þótti ekki nema eðlilegur hlutur þangað til þeirra mál leystust,“ sagði Þorsteinn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, aðspurður um þessi mál. Þorsteinn Már Baldvinsson, hjá Samherja hf. Neikvæð umræða um sægreifa Neikvæð umræða um stór sjávarútvegsfyrirtæki og eig- endur þeirra, hina svokölluðu sægreifa, hefur verið mjög áberandi um lengri tíma. Því er m.a. haldið fram að þeir séu að nota sameign íslensku þjóðarinnar til að fjárfesta í áhætturekstri erlendis. Eitt þeirra fyrirtækja sem verið hefur mikið í umræðunni er Samherji hf. á Akureyri. Fram- kvæmdastjóri Samherja er Þorsteinn Már Baldvinsson og í samtali við BB kom fram hjá honum að hann teldi þessa gagnrýni ekki réttláta. „Ég held að menn ættu frek- ar að vera stoltir af að Íslend- ingar stundi sjávarútveg er- lendis og fari út með sína þekk- ingu. Það er ljóst að það sem Samherji er að gera mun skapa mjög mikla vinnu. Við höfum verið að láta smíða hér færi- bönd, kaupa flokkara og veið- arfæri og við erum að nota ís- lenska sjómenn. Við erum ekki að nota sameign íslensku þjóð- arinnar í þetta það er alveg af og frá. Við höfum fengið lánsfé til þessara erlendu verkefna en þau hafa tekist vel. Við höfum gaman af þeim og lítum björt- um augum á þau til lengri tíma litið. Munurinn á íslensku verk- efnunum og þeim erlendu er sú neikvæða umræða sem fram fer hérlendis um sægreifa en við erum lausir við hana úti. STARFSMAÐUR VIÐ LAUNAVINNSLU OG BÓKHALD Óskum eftir að ráða starfsmann við launa- og bókhaldsstörf á bæjarskrif- stofunum. Starfshlutfall 100%. Helstu verkefni: Færsla bókhalds- gagna og launavinnsla. Menntun og reynsla: Stúdentspróf eða sambærileg menntun auk starfs- reynslu af launa- og bókhaldsstörf- um. Umsóknarfrestur er til 20. janúar nk. Kjör: Laun samkvæmt kjarasamn- ingi félags opinberra starfsmanna á Vestfjörðum. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofunum en frekari upplýs- ingar veitir Þórir Sveinsson, fjármála- stjóri og Bára Einarsdóttir, launa- fulltrúi. STAÐARVERKSTJÓRI FLATEYRI Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ óskar eftir að ráða staðarverkstjóra á Flat- eyri frá og með 1. mars nk. að telja. Megin viðfangsefni staðarverk- stjóra eru umsjón með verklegum framkvæmdum og daglegur rekstur áhaldahúss staðarins og störfum því tengdu. Einnig annast staðarverk- stjórinn vigtun fyrir hafnarsjóð, um- ferðastjórnun við höfnina ásamt mót- töku báta og skipa. Skriflegum umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu Ísafjarðarbæjar fyrir 31. janúar nk. Nánari upplýsingar gefur bæjar- verkfræðingur eða bæjarverkstjóri í síma 456 3722. AÐSTOÐAR FORSTÖÐUMAÐUR Staða aðstoðarforstöðumanns Hlíf- ar, íbúða aldraðra, Torfnesi er laus til umsóknar. Óskað er eftir umsækjendum með áhuga á öldrunarþjónustu. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu í mannlegum samskiptum, stjórnun og skipulagningu þjónustu. Umsóknarfrestur er til 29. janúar 1997. Upplýsingar veitir forstöðumaður, Rósa Guðrún Jóhannsdóttir í síma 456 4076 eða félagsmálastjóri, Jón Tynes í síma 456 3722. STARF Á ÞJÓNUSTUDEILD Starfsmaður óskast á þjónustudeild Hlífar, íbúða fyrir aldraða, Torfnesi. Um er að ræða 60% starf, vaktavinna. Upplýsingar veitir forstöðumaður, Rósa Guðrún Jóhannsdóttir í síma 456 4076. ÍSAFJARÐARBÆR

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.