Bæjarins besta - 15.01.1997, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 11
Fréttaannáll Bæjarins besta
síðari hluti
Ágúst:
133 milljónum
króna lægra
Í byrjun ágúst voru opnuð
hjá Framkvæmdastofnun ríkis-
ins, tilboð í gerð snjóflóðavarna
fyrir ofan Flateyri. Kostn-
aðaráætlun hönnuða hljóðaði
upp á kr. 372.741.150.- og var
lægsta tilboðið rúmum 133
milljónum króna lægra en
áætlun gerði ráð fyrir. Það kom
frá Klæðningu hf., og hljóðaði
upp á kr. 239.568.000. Fram-
kvæmdastofnun mælti með því
að tilboðinu yrði tekið. Sex
verktakar buðu í verkið.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
Stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga ákvað í ágúst að
ráða Halldór Halldórsson,
framkvæmdastjóra í Grinda-
vík, sem framkvæmdatjóra
Fjórðungssambandsins í stað
Eiríks Finns Greipssonar, sem
ráðinn var sparissjóðsstjóri
Sparisjóðs Önundarfjarðar í
stað Ægis Hafberg. Tíu um-
sóknir voru um starfið. Halldór
er fæddur og uppalinn í Ögri
við Ísafjarðardjúp og var því
kominn á heimaslóðir á ný.
Fékk styrk frá
danska ríkinu
Í ágúst greindi blaðið einnig
frá því að ungum ísfirskum
gullsmiði, hefði verið veittur
styrkur frá danska ríkinu fyrir
framúrskarandi árangur í gull
og silfursmíði. Umræddur
Ísfirðingur er Guðbjörg Kristín
Ingvarsdóttir og voru það
Margrét danadrottning og
Henrik prins sem afhentu henni
styrkinn. Guðbjörg Kristín hóf
sitt nám hjá Dýrfinnu Torfa-
dóttur í Gullauganu á Ísafirði.
Grunaður um
kynferðislega
misnotkun
Undir lok ágúst var lögð fram
kæra hjá lögreglunni á Ísafirði
á hendur karlmanni á fertugs-
aldri í Ísafjarðarbæ, vegna
gruns um kynferðislega mis-
notkun gagnvart tveimur ung-
um börnum. Það voru mæður
barnanna, fjögurra ára stúlku
og tveggja ára drengs, sem
lögðu fram kæru á hendur
manninum. Maðurinn hafði
áður komið við sögu hjá lög-
reglunni, þó ekki vegna afbrota
sem hann var ákærður fyrir.
September:
Forsetinn í
heimsókn
Í fyrsta tölublaði september
mánaðar sagði blaðið frá fyrstu
opinberu heimsókn forseta
Íslands, hr. Ólafs Ragnars
Grímssonar og eiginkonu hans,
Guðrúnar Katrínar Þorbergs-
dóttur til norðanverðra Vest-
fjarða. Heimsókn forsetahjón-
anna stóð yfir í fjóra daga og
var þeim vel tekið á öllum þeim
stöðum sem þau fóru um. Voru
Vestfirðingar ánægðir með að
forsetinn skyldi velja norðan-
verða Vestfirði til sinnar fyrstu
heimsóknar, en eins og kunnugt
er, er forsetinn fæddur og
uppalinn á Ísafirði.
Framkvæmdir
við nýjan
miðbæ
Framkvæmdir við nýjan
miðbæ á Ísafirði hófust í byrjun
september. Efnt var til hönn-
unarsamkeppni á meðal arki-
tekta um nýja ímynd miðbæj-
arins á Ísafirði og varð tillaga
Pálmars Kristmundssonar,
arkitekts fyrir valinu. Til fyrsta
áfanga verksins, sem ráðgert
var að klára á haustmánuðum,
voru ráðgerðar 10-15 milljónir
króna. Unnið verður áfram við
verkið í vor og ræðst fram-
kvæmdahraðinn af þeim fjár-
munum sem veittir verða til
verksins.
Fegurstu
garðar Ísaf-
jarðarbæjar
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar ákvað í september að
veita eigendum fjögurra garða
í sveitarfélaginu viðurkenn-
ingar fyrir framúrskarandi
umhirðu. Þeir garðar sem hlutu
viðurkenningu að þessu sinni
og teljast því fegurstu garðar
sveitarfélagsins voru að Aðal-
götu 21 á Suðureyri, en sá
garður er í eigu Ásdísar Frið-
bertsdóttur, Brimnesvegur 26
á Flateyri, sem er í eigu Unu
Friðriksdóttur, Aðalstræti 23 á
Þingeyri, sem er í eigu hjón-
anna Guðrúnar Markúsdóttur
og Skarphéðins Njálssonar og
Smiðjugata 1 á Ísafirði, sem er
í eigu þeirra Aðalheiðar Sig-
urðardóttur og Bárðar Gríms-
sonar.
Jarðgöngin
opnuð
Samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, opnaði í september,
jarðgöngin undir Breiðadals-
og Botnsheiði, formlega fyrir
almennri umferð. Fjölmargir
gestir voru viðstaddir hátíðlega
athöfn sem fór fram við ganga-
munnan í Tungudal, þeirra á
meðal þingmenn Vestfirðinga,
fulltrúar þeirra verktaka sem
stóðu að framkvæmdunum,
sveitarstjórnarmenn og aðrir
gestir.
Október:
Eitt stærsta
sjávarútvegs-
fyrirtækið
Í byrjun október greindi
blaðið frá því að stjórnir
fjögurra sjávarútvegsfyrirtækja
á norðanverðum Vestfjörðum,
hefðu samþykkt tillögur um
sameiningu fyrirtækjanna.
Fyrirtækin sem hér um ræðir
eru Básafell hf., Togaraútgerð
Ísafjarðar hf., og Ritur hf., á
Ísafirði og Útgerðarfélagið
Sléttanes hf., á Þingeyri. Við
sameiningu fyrirtækjanna fjög-
urra varð til eitt stærsta sjávar-
útvegsfyrirtæki landsins.
Múlabergið
strandaði
Togarinn Múlaberg frá
Ólafsfirði tók niðri í Sund-
unum, á móts við Ísafjarðar-
flugvöll í byrjun otkóber.
Sökum hvassviðris reyndist
ekki unnt að losa skipið fyrr en
eftir þrjár klukkustundir, þrátt
fyrir nokkrar tilraunir hafn-
sögubátsins Þyts. Togarinn
losnaði síðan af eigin ramm-
leik. Mjög hvasst var á Ísafirði
þennan dag og fór vindhraðinn
mest upp í 82 hnúta á Ísafjarð-
arflugvelli.
Norðurtang-
inn sameinast
Básafelli
Í október var tekin ákvörðun
um að Hraðfrystihúsið Norður-
tangi hf., á Ísafirði myndi
sameinast hinu nýja sjávar-
útvegsfyrirtæki á Ísafirði,
Básafelli hf. Með sameining-
unni var hið nýja fyrirtæki
komið með kvóta upp á rúm
9.000 þíg.tonn, en með Norður-
tanganum komu tæp 3.000
þíg.tonn. Áætlað var að hið
nýja fyrirtæki yrði sjötta kvóta-
mesta fyrirtæki landsins eftir
sameininguna.
Snjóflóðanna
minnst
Undir lok október var þess
minnst á Flateyri að eitt ár var
liðið frá því snjóflóðið mikla
féll á byggðina með þeim
afleiðingum að 20 íbúar stað-
arins fórust. Haldin var minn-
ingarstund í Flateyrarkirkju,
afhjúpaður var minnisvarði um
þá sem fórust auk þess sem
kyrrðarstund fór fram í kirkj-
unni. Að henni lokinni fleyttu
íbúar Flateyrar ljósum á Lóninu
til minningar um liðinn atburð.
Nóvember:
Flateyrar-
kirkja 60 ára
Í byrjun nóvember héldu
Flateyringar upp á það, að
sextíu ár voru liðin frá því
kirkja staðarins var vígð.
Biskup Íslands, herra Ólafur
Skúlason, predikaði við af-
mælisguðþjónustu í Flateyrar-
kirkju og blessaði síðan safnað-
arheimili í nýrri viðbyggingu
kirkjunnar. Fjölmenni var
viðstatt afmælishátíðina.
Bakki sam-
einast Bakka
Í nóvember greindi blaðið
frá því að í undirbúningi væri
sameining fyrirtækjanna Bakka
hf., í Hnífsdal og Bakka Bol-
ungarvík hf. Sameiningin var
hluti af hagræðingaraðgerðum
fyrirtækisins. Aðabjörn Jóa-
kimsson, framkvæmdastjóri
Bakka, sagði í samtali við
blaðið á þessum tíma að ýmsar
fleiri breytingar væru á döfinni
hjá fyrirtækinu, sumar hefðu
litið dagsins ljós en aðrar ekki.
Fyrsta ný-
smíðaverk-
efnið í sjö ár
Árla laugardagsmorgunn
einn í nóvember, var fyrsta
nýsmíðaverkefni Skipasmíða-
stöðvarinnar hf., á Ísafirði í sjö
ár, hleypt af stokkunum að
viðstöddum eigendum skipsins
og starfsmönnum stöðvarinnar.
Hér var um að ræða 30 tonna
rækjubát, Sandvík, sem gert er
út frá Sauðárkróki. Við athöfn-
inna var þess getið að næg
verkefni væru framundan hjá
Skipasmíðastöðinni og í burð-
arliðnum væri samningsgerð
um smíði á nýju skipi.
Nýtt stjórn-
skipulag
Ísafjarðar-
bæjar
Undir lok nóvember sam-
þykkti bæjarráð Ísafjarðar-
bæjar nýtt stjórnskipulag sveit-
arfélagsins. Samkvæmt hinu
nýja stjórnskipulagi, var stjórn-
sýslunni skipt upp í sex svið,
stjórnsýslusvið, fjárreiðu- og
áætlunarsvið, félagsþjónustu-
svið, fræðslu- og menningar-
svið, umhverfissvið og hafnar-
málasvið. Yfirmenn framan-
greindra sviða eru þau Þórir
Sveinsson, fjármálastjóri, Jón
Tynes, félagsmálastjóri, Rúnar
Vífilsson, skóla- og menning-
arfulltrúi, Ármann Jóhannes-
son, bæjarverkfræðingur, Her-
mann Skúlason, hafnarstjóri og
Þórunn Gestsdóttir, sem er
aðstoðarmaður bæjarstjóra.