Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.1997, Síða 12

Bæjarins besta - 15.01.1997, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 Desember: Tvær fjöl- skyldur fengu 46 milljónir Tvær fjölskyldur á Ísafirði urðu rúmlega 46 milljónum króna ríkari þegar dregið var í heita potti Happdrættis Há- skóla Íslands. Þetta er hæsti vinningur sem fengist hefur í Happdrætti Háskóla Íslands og næst hæsti vinningur sem borgaður hefur verið út hér- lendis. Eigendur trompmiða fengu 32,6 milljónir króna í sinn hlut og eigendur tvöfalds miða fengu 13,5 milljónir króna. Eigendur lægri vinn- ingsins reyndust vera þau Redy Svandís Valdimarsson og Öss- ur Pétur Valdimarsson en enn er ekki vitað hverjir eru eigend- ur 32,6 milljónanna. Nýr leikskóli vígður Nýr leikskóli var vígður á Flateyri í desember. Leik- skólinn, sem gefið var nafnið, Grænigarður, kostaði fullfrá- genginn um 40 milljónir króna, en söfnunarfé frá Færeyingum var lagt til nýbyggingarinnar ásamt gjafafé frá Kiwanis- hreyfingunni. Leikskólinn tek- ur 40 börn en fyrst um sinn var áætlað að 29 börn yrðu í skólanum. Á efri hæð hússins átti að verða rekin félagsstarf- semi fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri. Lá kaldur og hrakinn Ökumaður bifreiðar sem sér um ferðir á milli Þingeyrar og Ísafjarðar, lá á fimmtu klukku- stund í snjó og kulda eftir að bifreið hans fór út af veginum yfir Gemlufallsheiði. Bifreiðin mun hafa farið nokkrar veltur áður en hún stöðvaðist um 50- 60 metrum fyrir neðan veg- kantinn. Það var ökumaður annarar bifreiðar, sem einnig fór út af veginum á sama stað, sem tilkynnti um slysið. Mjög hvasst var á þessum slóðum á þessum tíma og mikil hálka. Vínveitinga- staður á Suðureyri Söluskálinn Essó á Suður- eyri, færði út kvíarnar í des- ember með opnun nýs sals sem rúmar um þrjátíu manns í sæti. Með tilkomu hans var þjón- ustan aukin og býður sölu- skálinn nú upp á pizzur, léttar steikur auk vínveitinga. Íbúar á Suðureyri kunnu vel að meta þessar breytingar og var fjöl- menni við opnun salarins. ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ,,Súrefnisveggur” Haraldar Gallerí Slunkaríki Á laugardaginn kemur kl. 16, opnar Haraldur Jónsson, myndlistarmaður sýningu í Slunkaríki á Ísafirði. Á sýningunni mun Haraldur sýna verk sitt ,,Súrefnisveggur”, sem er sérstaklega unnið fyrir sal Slunkaríkis, með staðhætti og nánasta umhverfi í huga. Haraldur Jónsson er fæddur í Finnlandi árið 1961. Hann lagði stund á myndlistarnám í Reykjavík og í Dusseldorf í Þýskalandi á árunum 1984-1990 og hefur haldið fjölda sýninga á verkum sínum undanfarin tíu ár. Sýning Haraldar í Slunkaríki er opin fimmtudaga til sunnudaga frá kl. 16-18 og lýkur henni 2. febrúar nk. Ísafjarðarbær Funi aftur í gang Nú líður að því að sorpbrennsla hefjist aftur í sorpeyðingarstöðinni Funa, en viðgerðir hafa staðið yfir þar að undanförnu vegna skemmda sem hlutust af snjóflóðinu í október 1995. Þorlákur Kjartansson, stöðvarstjóri, segir að brennsla sorps geti hugsanlega hafist í næstu viku svo fremi að eitthvað óvænt komi ekki upp. Húsið hefur verið sérstaklega styrkt með tilliti til snjóflóða, m.a. stálgrind og gluggar. Teiknivinna vegna snjóflóðavarna er í vinnslu en Þorlákur gat ekki sagt til um hvenær áætlað væri að framkvæmdir við þær myndu hefjast. Fimm manns munu starfa í Funa þegar brennsla hefst. Bolungarvík Innbrot í Víkurbæ Aðfaranótt 8. janúar s.l. var brotist inn í félagsheimilið í Bolungarvík þar sem skemmtistaðurinn Víkurbær hefur verið til húsa. Brotinn var rúða í eldhúsi og í bakdyrum ásamt því að skemmdir voru unnar á neyðarútgang. Aðrar skemmdir voru óverulegar en hvolft hafði verið úr ruslapokum bakatil í húsinu þannig að aðkoma eigenda var óskemmtileg. Þjófarnir höfðu á brott með sér eitthvað af áfengi en létu annað í friði eftir því sem best var séð. Blóðslóð lá um húsið þegar lögregla kom á vettvang og varð því ljóst að þjófarnir höfðu skorist við rúðubrotið. Lögreglan í Bolungarvík brá skjótt við í þetta sinn og var málið leyst samdægurs og þykir það vel af verki staðið. Þarna reyndist vera um aðkomumenn að ræða sem gert höfðu sér ferð til Bolungarvíkur í þessum erindagjörðum. Ísafjarðarflugvöllur Brottfarir að næturlagi leyfð- ar á næstunni Reykjanes við Ísafjarðardjúp Tilboð í húseignir Hér- aðsskólans í Reykjaur nesi við Ísafjarðardjúp verða opnuð 16. janúar n.k. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum þá höfðu borist einhverjar fyrir- spurnir um eignirnar en ekki höfðu borist eiginleg tilboð. Algengt er að Tilboð í húseignir opnuð á morgun menn mæti með tilboðin með sér eða senda þau sama dag og opnun fer fram. Fasteignamat eign- ana mun vera um 60 milljónir króna en bæði var auglýst eftir kaup- og leigutilboðum. Ekki er um ásett verð að ræða og fer það væntanlega eftir staðsetningu og eftirspurn eins og það var orðað hjá Ríkiskaupum. Eignirnar sem eru til sölu saman- standa af; 6 íbúðum, heimavistarhúsnæði, kennslustofum, mötu- neyti, sundlaug o.fl. Tvö ár frá því snjóflóð féll á Súðavík Atburðanna ekki minnst sérstaklega Á morgun, fimmtu- daginn 16. janúar, eru tvö ár liðin frá því snjóflóðið mikla féll á byggðina í Súðavík, með þeim afleiðingum að fjórtán manns fórust, sex full- orðnir og átta börn. Ágúst Kr. Björnsson, sveitarstjóri í Súðavík sagði í samtali við blaðið á mánudag, að ekki hefði Frá minningarathöfninni sem haldin var í Súðavík fyrir ári síðan. verið tekin nein ákvörðun um að minnast atburð- anna sérstaklega í ár, það hefði verið gert á síðasta ári, þegar eitt ár var liðin frá því hörmungarnar dundu yfir byggðarlagið. Þann 16. janúar á síðasta ári söfnuðust bæjarbúar við kaupfélagið á staðn- um, gengu í blysför um plássið og lögðu kertaljós við grunna þeirra húsa sem eyðilögðust í flóðinu. Þá var haldið að auðu svæði við pósthúsið í Súðavík, þar sem fram fór bænastund og látinna var minnst. Síðar um kvöldið fór fram minningarstund í Súðavíkurkirkju sem og í Dómkirkjunni í Reykjavík. Að undanförnu hefur verið unnið að uppsetningu búnaðar sem nauðsynlegur er til að hægt verði að leyfa flugumferð að næturlagi frá Ísafirði. Guðbjörn Charlesson, hjá flugmála- stjórn á Ísafirði, segir að sett hafi verið upp þrjú rauð ljós í Kirkjubólshlíðinni ásamt hvítu blikkljósi á Arnarnesi. Annað slíkt verður sett upp í Hnífsdal en ekki er von á því fyrr en eftir 4-5 vikur. Ef veður leyfir verður í þessari viku byrjað að flugprófa kerfið en kanna þarf m.a. hvort ljósin trufli aðra umferð, t.d. skipaumferð. Að sögn Guðbjörns mun þetta allt taka sinn tíma en mögulega verði hægt að leyfa næturumferð í þessum mánuði eða næsta. Hann segir að eingöngu sé verið að tala um brottfarir að næturlagi en lendingar verði eftir sem áður háðar birtuskilyrðum. Auglýsingasími Bæjarins besta er 456 4560

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.