Nýtt land-frjáls þjóð - 28.02.1969, Page 10
, • f
o> > > r> p ;>
1 *
w
WÝTT LAND
FRTALS ÞTÖÐ
N»
^ónustu
®Uutttt Sata* aWl:
n vimatiuJtttt j«»‘“
a 111 i—’ SvS JÍ- «»-*
Ef T>ír
& só\arbttBS
aó Tirit>S3a>"
500.00
c \3ur£ið
aCeiriS
• og
■vi6
afheiKlum. >'Sur
bIimeisanfaidr;
car rental service ©
Rauðarárstíg 31 — SíiAi 22022
Opið bréf
frh. af bls. 9.
þessar bifreiðar væru aðeins
notaðar við þessi störf. En þær
sjást á ferðinni á öllum tímum
sólarhrings og á öllum hugsan-
legum stöðum, og jafnvel þá
við stjórn þeirra allt aðrir, en
maður skyldi ætla.
Þegar skipað er eða ráðið í
mikilvægar stöður hjá hinu op-
inbera, þá virðist það oftast
ráða, að viðkomandi sé nógu
hundtryggur ykkur og flokkum
ykkar, sem stjórnið. Minna
máli skiptir, hvort hlutaðeig-
andi hafi fyrst og fremst hœfi-
leika og raunverulegan vilja að
rfnna sem allra bezt fyrir land
og þjóð. Af þessu leiðir vitan-
lega, bullandi óstjóm og vit-
leysu í rekstri þeirra fyrir-
tækja og embætta, er menn
þessir eiga að stjóma. T. d. era
flest ríkis- og borgarfyrirtæki og
þjónustufyrirtæki yfirfull af
starfsfólki. Þetta bitnar svo allt
á almenningi í óhóflegum
kostnaði í rekstri þeirra og á
þeirri þjónustu, er þau eiga að
veita.
Þá er það setuliðið hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Voru þeir
ekki átta þar fulltrúarnir okk-
ar um tíma í vetur? Hvaða heil-
vita maður heldur því virkilega
fram, að þörf sé á þessu? Allar
þessar ráðstefnur út um allar
trissur og auðvitað þá oftast
sendir á þær margir fulltrúar,
sem koma heim aftur hálfu vit-
lausari en þeir voru fyrir.
Úr því minnzt er á ferðalög
og ráðstefnur, þá dettur manni
náttúrlega fyrst 1 hug Gylfi Þ.I
Þér emð orðinn þjóðinni býsna
dýr, lagsi. Hví í ósköpunum
gerðust þér ekki flugmaður?
Við erum með ambassadora og
tilheyrandi í mörgum löndum.
Er ekki hægt að leggja þessi
embætti alveg niður sums stað-
ar og skipa í staðinn ræðis-
menn, þar sem við þurfum
nauðsynlega að hafa fulltrúa,
m. a. vegna útflutningsafurða
okkar. Þessir menn væm þá
jafnframt verzlunarfulltrúar og
að sjálfsögðu með verulega
þekkingu á þessum málum.
Þegar svo mikið lægi við, t. d.
í sambandi við stórsamninga,
og þessir fulltrúar þyrftu að-
stoðar við, þá gætu þeir kvatt
sérfræðing héðan að heiman.
Svo einfalt er það. En þetta
brjálæði, sem nú er, það er
ekki hægt öllu lengur.
Er virkilega nauðsynlegt að
hafa fleiri en einn bankastjóra
við hvern banka? Hefði ekki
öllu því fjármagni, sem runnið
hefur í hallirnar, sem þeir hafa
látið reisa undanfarið, verið
betur varið á annan hátt?
Allar veizlurnar, sem þið
haldið fyrir allt hugsanlegt
fólk útlent sem innlent, er ekki
meiningin að hætta þeim alveg
núna, að minnsta kosti meðan
illa árar hjá okkur?
Hvernig væri að herða vem-
lega skattaeftirlitið, ráða í
skattalögregluna menn, sem
vilja gera sitt allra bezta og
veita þeim vald til þess, hverjir
sem eiga í hlut? Það vita allir
og viðurkenna flestir, að með
því fyrirkomulagi, sem nú ríkir
um innheimtu hans, þá kemst
aðeins hluti hans til skila.
Bótagreiðslufyrirkomulag
Tryggingarstofnunar ríkisins
er svo hörmulega ranglátt, að
út yfir tekur. Hvaða vit er í því,
að þar gangi inn jafnt fátækur
verkamaður sem margfaldur
milljónamæringur og fái sínar
bætur?
Ráðherrar og aðrir speking-
ar, setjið þið reikningsvélarnar
í'gang og sjáið, hve gífurlegar
fjárhæðir þið getið sparað á
bókstaflega öllum sviðum og
samt sem áður og miklu frekar
náð betri árangri. Ef þið brevt-1
ið ekki um stefnu fljótlega, eða •
að öðmm kosti efnið til nýrra !
kosninga, mun fólkið rísa upp
og reka ykkur af höndum sér
fyrir fullt og allt, og þið verð-
ið allir með tölu látnir sæta
þyngstxx ábyrgð fyr'ir óhappa-
verk ykkar.
Guðjón V. Guðmundsson.
Martröð
fi'h. af bls. 8.
reglur. Hvaða tilgangi þjónar
slík skipan mála? Væri nú ekki
reynandi að setja þessa mál-
þófsfundi á sömu tröppu og Al-
þingi, að fundir þessir séu opn-
ir og allar umræður teknar upp
á segulband?
í skjóli þessarar þagnar um
gang mála á þessum ráðstefn-
um hygg ég að þetta málþófs-
ástand þrífist. Er ekki kominn
tími til þess að brjóta niður
bennan ólýðræðislega múr, og
krefjast að þar gildi sömu regl
ur og æðsta stofnun þjóðarinn-
ar, Alþingi, verður að lúta?
Kalt stríð
frh. af bls. 4.
losa Vestur-Evrópu við öll
bandarísk hernaðarítök og efna
hagslega yfirdrottnun, torvelda
Bretar bandaríska forsetanum
eins og þeir framast mega að
vingast við frönsku stjórnina.
Þegar þetta er fest á blað er
Evrópufeið Nixsons nýhafin og
ógerlegt að sjá, að hve miklu
leyti Wilson nær settu marki.
Ef dæma skal eftir þeim ár-
angri sem brezk utanríkisstefna
hefur hingað til náð undir
stjórn hans, eru sigurhorfurn-
ar satt að segja ekki miklar.
Þeirri skoðun sést bregða fyrir
í blöðum á meginlandi Vestur-
Evrópu, að aðfarir Breta beri
keim af örþrifaráðum, og þeir
megi gæta sín að falla ekki á
eigin bragði. Eða eins og frétta-
ritari eins brezka sunnudags-
blaðsins í Bonn hefur eftir vest
urþýzkum embættismönr.um:
Bretar hafa verið svo hvassir,
að þeir eiga á hættu að blóðga
sjálfa sig.
M.T.Ó.
AÐVORUN
wn stöhvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heím-
ild í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnu-
rekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem
enn skulda söluskatt 4. ársfjórðungs 1968 svo og
söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa gert
full skil í hinum vangreiddu gjöldum ásamt áfölln-
um dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja kom-
ast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 21. febrúar 1969.
' I
Sigurjón Sigurðsson.
Ég undirritaður óska eftir að gerast áskrifandi að
Nýtt Land — Frjáls þjóð.
Nafn
Helmill
Póststðð
NYTTLAND
FRJÁLS ÞJÓÐ
Ingólfsstræti 8
Reykjavlk
Pósthólt 1419
NÝTT LAND
FRTÁLS MOÐ
títgefandi: Huginn hl
Ritstjórl: Ólafur Hannibalsson
B’ramkvæmdast.ióri: Blörgúlfur Sigurðsson
Ritst.fórn afgreiðsla: Ingólfsstræti 8
Auglvslngar: Sími 1 99 85
Askriftargf kr 500.00 á ári Verð f iausas kr 15,00 eint.
Prentsmiðjan Edda hí.