Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.04.1997, Side 1

Bæjarins besta - 30.04.1997, Side 1
Blaðsíða 8 Blaðsíða 9Blaðsíða 4 Bæjarins besta Miðvikudagur 30. apríl 1997 • 17. tbl. • 14. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 170 m/vsk Björn ráðinn verk- efnisstjóri Atvinnu- þróunarfélagsins Djassgeggjarar hljóðritaðir í Víkinni Skiptar skoðanir um hvort breyta eigi Orkubúi Vestfjarða í hlutafélag Markaðsvirði fyrirtækisins áætlað um 150 milljónir króna Aðalfundur Orkubús Vest- fjarða var haldinn í Stjórnsýslu- húsinu á Ísafirði á föstudag í síðustu viku. Auk venjulegra aðalfundarstarfa var á fundin- um tekin fyrir greinargerð Har- aldar L. Haraldssonar, hagfræð- ings hjá Rekstri og Ráðgjöf ehf., um kosti og galla þess að Orku- bú Vestfjarða verði gert að hlutafélagi. Í máli Haraldar kom m.a. fram að ekki væri spurning um hvort fyrirtækinu yrði breytt úr sameingarfélagi í hlutafélag, heldur einungis hvenær af því yrði. Hann sagði að áður en til þess kæmi þyrfti að breyta sérlögum fyrirtæk- isins sem og almennum lögum um orkumál á Íslandi. Skiptar skoðanir voru á meðal fundar- manna um framangreinda breytingu og sýndist sitt hverj- um um ágæti breytinganna. Um markaðsvirði fyrirtæk- isins sagði Haraldur m.a. í ræðu sinni: ,,Markaðsvirði Orkubús Vestfjarða er nokkru lægra en bókfært eigið fé gefur til kynna. Rekstrarafkoma fyrirtækisins þarf að batna verulega til að fjárfesting í OV sé álitlegur kostur fyrir fjárfesta. Miðað við óbreyttar forsendur verður áframhaldandi tap á rekstri næstu 15 ár en jákvætt fjár- streymi, sem nemur um 20 milljónum krónum á ári, sem í reynd er sú peningalega ávöxt- un, sem fyrirtækið skilar og fjárfestar horfa til. Miðað við þessar forsendur og að fjárfestar geri kröfu um 10% ávöxtun næstu 15 ár má ætla að mark- aðsvirði fyrirtækisins sé um 150 milljónir króna, sem er sú upp- hæð sem fjárfestar væru tilbúnir til að borga fyrir fyrirtækið að því gefnu að rekstrarforsendur væru óbreyttar,” sagði Harald- ur. Hann sagði ennfremur að ætla mætti að með markaðs- væðingu sem og því að fyrir- tækið yrði gert að hlutafélagi, myndi nást fram ýmiskonar hagræðing, sem mundi auka á markaðsvirði þess. Einar Oddur Kristjánsson, alþingismaður, sem var einn gesta á fundinum, sagði hins vegar í ræðu sinni, að raunvirði fyrirtækisins væri 0 krónur, hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr. Jón Gauti Jónsson, settur bæjarstjóri í Vesturbyggð, upplýsti á fundinum að bæjar- stjórn Vesturbyggðar hefði samþykkt að leita til ríkisins um kaup þess á hlut sveitar- félagsins í Orkubúinu. Hann sagði sveitarfélagið, líkt og mörg önnur sveitarfélög, mjög illa statt fjárhagslega, og því væri óhjákvæmilegt annað en að reynt yrði að selja hlut Vesturbyggðar í Orkubúi Vest- fjarða. Tveir nýir einstaklingar voru kosnir í stjórn fyrirtækisins á aðalfundinum, Þorsteinn Jó- hannesson, Ísafirði, sem gegna mun starfi stjórnarformanns og Hafliði Elíasson, Bolungarvík. Þeir koma í stað þeirra Eiríks Finns Greipssonar, fyrrum stjórnarformanns Orkubúsins og Rúnars Vífilssonar, Bolung- arvík. Aðrir í stjórn eru Kristinn Jón Jónsson, tilnefndur af iðn- aðarráðherra, Óskar Torfason, kjörinn af aðalfundi og Björg- vin Sigurjónsson, tilnefndur af fjármálaráðherra. Á fjórða tug áhugasamra dansara mættu á námskeiðið hjá Jóhanni Erni á laugardag. Ísfirðingar dansa kántrýdans Kántrýdans fer nú eins og eldur um sinu um allar byggðir landsins og hafa Vestfirðir ekki verið þar undanskildir. Á laugardag kom Jóhann Örn Ólafsson, danskennari og upphafsmað- ur þessa mikla æðis, vestur, og kenndi áhugasömum Vestfirðingum nokkra línu- dansa. Á fjórða tug dansara mætti á námskeiðið sem haldið var í sal grunnskólans á Ísafirði síðdegis á laugar- dag og vel á annað hundrað gestir mættu síðan á kántrý- ball sem haldið var í Sjallan- um um kvöldið. Þar lék hljómsveitin Farm- alls fyrir dansi og létu þátttak- endur á námskeiðinu reyna á kunnáttu sína fram eftir nóttu. Jóhann Örn, danskennari, stjórnaði dansinum en sérstak- ur gestur kvöldsins var Ómar Ragnarsson, sem skemmti gestum af sinni alkunnu snilld. Jóhann Örn sagðist í samtali við blaðið vera ánægður með þátttökuna á Ísafirði, það ánægður að hann hefði ákveðið að koma á ný vestur undir lok maí eða í byrjun júní. ,,Ég er reyndar hættur að vera hissa þegar salurinn fyllist trekk í trekk en ég verð að viður- kenna að ég bjóst ekki við öllum þessum fjölda. Það er alveg öruggt að við komum aftur, bæði ég og hljóm- sveitin og það verður vænt- anlega undir lok maí eða í byrjun júní. Það gekk vel að kenna Ísfirðingum dansins, enda kemur hann að ,,west- an”, “ sagði Jóhann Örn í samtali við blaðið. Jens Kristmannsson, starfsmaður Orkubús Vestfjarða, Einar Oddur Kristjánsson, alþingis- maður og Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga ræða saman á aðalfundi Orkubúsins. Eftirsóknarverð leirlistakona á Þingeyri

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.