Bæjarins besta - 30.04.1997, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1997 3
Tilkynning um akstur
Reykjavík - Ísafjörður
Frá 1. maí
mun Flutningamiðstöð Vestfjarða ehf., í samvinnu við Landflutninga-Samskip hf.
hefja reglubundinn akstur með vörur á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar.
Farið verður daglega frá báðum stöðunum.
Vörum verður dreift frá FMV um norðanverða Vestfirði
þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri en
daglega til Bolungarvíkur og Súðavíkur, og þær sóttar á sömu staði.
(Þingeyri - Flateyri - Suðureyri - Bolungarvík - Súðavík)
FMV, hefur aðsetur að Sindragötu 11, Ísafirði, sími 456 4000 og mun einnig
hafa umboðsmenn í nærliggjandi þéttbýlisstöðum. Afgreiðsla í Reykjavík er
hjá Landflutningum - Samskip að Skútuvogi 8, Reykjavík, sími 569 8400
Fyrirtækin munu kappkosta að veita viðskiptavinum sínum og öllum þeim sem
flytja þurfa vörur á milli þessarra staða góða og örugga þjónustu.
FMV
Flutningamiðstöð Vestfjarða ehf.
Sindragötu 11 Ísafjörður
Sími: 456 4000
Fax: 456 4009
Landflutningar - Samskip
Skútuvogi 8 Reykjavík
Sími: 569 8400
Fax: 569 8411
Afgreiðsluaðilar:
Bolungarvík Hólsvélar ehf. Hafnargötu 83 456 7016
Flateyri Þorsteinn Guðbjartsson Eyrarvegi 12 456 7727
Suðureyri Árni Árnason Aðalgötu 15 456 6104
Súðavík Sigurgeir Garðarson Túngötu 16 456 4959
Þingeyri Kaupfélag Dýrfirðinga Hafnarstræti 7 456 8200
Valkostur í flutningum
Kvartað yfir samræmdum prófum
Um klár mistök að ræða
Rannsóknarstofnun upp-
eldis- og menntamála hefur
fengið fjölda kvartana vegna
samræmda prófsins í stærð-
fræði sem fram fór í grunn-
skólum landsins á mánudag.
Þótti prófið of langt og komust
nemendur í mikla tímaþröng.
Dæmi er um að þegar próftíma
lauk hafi um 60% nemenda
enn setið yfir úrlausnunum og
dæmi eru um að nemendur hafi
setið grátandi við prófborðin.
,,Ég varð ekki var við það
hér að nemendur hefðu grátið
við prófborðin. Aftur á móti er
það alveg ljóst að prófið var of
efnismikið, það eru allir sam-
mála um það. Hér er um klár
mistök að ræða. Hins vegar
virðist sem önnur próf hafi
gengið ágætlega. Það er um-
hugsunarefni þegar yfir 60%
af nemendum hafa ekki mögu-
leika á að klára prófið, það er
hlutur sem ekki gengur upp,”
sagði Kristinn Breiðfjörð Guð-
mundsson, skólastjóri Grunn-
skólans á Ísafirði í samtali við
blaðið. Aðspurður um hvort
tekið yrði tillit til þessa við
útreikninga á próflausnum
sagði Kristinn:
,,Ég geri ekki ráð fyrir því,
það er möguleiki að umreikna
heildarniðurstöðuna en það er
ekki hægt að taka einhverja
þætti út og segja að þeir verði
ekki reiknaðir með. Það sem
stendur upp úr er að prófið var
of efnismikið. Ég held að það
eigi að vera einfalt mál að
reikna það til baka þannig að
,,normalkúrfan” verði sú sama.
Mér finnst það eðlileg leið-
rétting,” sagði Kristinn Breið-
fjörð.
Andrésar andar leikarnir
Önfirðingar sigursælir
Önfirðingar, komu, sáu og
sigruðu á Andrésar andar
leikunum sem haldnir voru í
Hlíðarfjalli við Akureyri um
síðustu helgi. Önfirðingar
sendu 21 keppanda á leikana
og unnu þeir til fjögurra gull-
verðlauna, tveggja silfurverð-
launa og þriggja bronsverð-
launa. Ísfirðingar sendu einnig
keppendur á leikana og unnu
þeir til fjögurra bronsverð-
launa.
Gullverðlaun Önfirðinga
fengu þeir Brynjólfur Ó. Árna-
son frá Vöðlum í Önundarfirði
og Arnar Björgvinsson frá
Flateyri, en þeir sigruðu í
flokkum 7 og 9 ára í göngu
með frjálsri og hefðbundinni
aðferð. Vaskleg framganga
Önfirðinga vakti athygli á
leikunum og er ljóst að Kjell
Hymer, kennari í Holti, hefur
unnið gott starf með börnin, en
hann tók það upp með sjálfum
sér að fara með nemendur
skólans á gönguskíði í fyrra-
vetur vegna skorts á íþrótta-
aðstöðu innanhúss. Kjell Hym-
er var heiðraður sérstaklega af
Skíðasambandi Íslands eftir
leikana fyrir brautryðjendastarf
í þágu skíðaíþróttarinnar.
Á leikunum fengu þrír 12
ára krakkar ferðavinning til
Orlando í Flórída í boði Flug-
leiða, Samherja og Andrésar-
nefndarinnar sem farin verður
í haust. Ein þeirra sem datt í
lukkupottinn var Guðný Ósk
Þórsdóttir frá Ísafirði.
Nýr hópur flóttafólks kemur í sumar
Gefa á fleirum tækifæri
Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra mun innan tíðar leggja
fyrir ríkisstjórnina tillögur um
móttöku á 25-30 júgóslav-
neskum flóttamönnum, en
málið hefur verið í undir-
búningi í félagsmálaráðuneyt-
inu undanfarnar vikur. Gert er
ráð fyrir að hópurinn komi til
landsins í sumar, svo að tími
gefist fyrir fjölskyldurnar að
aðlagast áður en skólar hefjast
í haust.
Gert er ráð fyrir að standa að
móttökunni með svipuðum
hætti og gert var síðast enda
mun öll sú framkvæmd hafa
verið Ísfirðingum til sóma.
Auglýst verður eftir sveitar-
félögum sem tilbúin eru til að
taka á móti flóttafólkinu. Krist-
ján Þór Júlíusson, bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar, sagði í samtali
við blaðið, ekki gera ráð fyrir
að Ísafjarðarbær myndi óska
eftir að fá fleiri flóttamenn,
kominn væri tími til að leyfa
öðrum sveitarfélögum að
spreyta sig á verkefninu.
,,Þetta mál hefur ekki verið
rætt með neinum formlegum
hætti í bæjarstjórn en persónu-
lega finnst mér að það ætti að
gefa fleiri sveitarfélögum kost
á því að taka að sér svona
verkefni, það er bara af því
góða. Reynslan af þessu verk-
efni er góð en mér finnst að
fleiri sveitarfélög eigi að fá
tækifæri til að taka að sér svona
þroskandi verkefni. Ég á því
ekki von á að Ísafjarðarbær
verði á meðal þeirra sveitar-
félaga sem munu óska eftir að
taka á móti næsta hópi flótta-
manna frá fyrrum Júgóslavíu,”
sagði Kristján Þór.
Verkfall félaga ASV
Viðræður hafnar að nýju
„Frá því að slitnaði upp úr
viðræðunum, hefur ASV litið
á það þannig að boltinn væri
hjá þeim og okkur bárust
tillögur frá þeim á sunnudags-
kvöld. Við sendum tillögur til
baka strax um miðnættið og
óskuðum eftir að það yrði
haldinn fundur hjá sáttasemj-
ara, þannig að við höfum ekki
látið standa á okkur í þessum
málum,“ sagði Einar Jónatans-
son, formaður samninganefnd-
ar Vinnuveitendafélags Vest-
fjarða, í samtali við blaðið, en
sáttasemjari boðaði fulltrúa
ASV og vinnuveitenda til fund-
ar í gær í Karphúsinu í Reykja-
vík.
Í tillögum ASV er gert ráð
fyrir hærri tilfærslum á bónus
inn í kauptaxta og meiri kaup-
hækkunum en í samningum
Verkamannasambandsins.
„Okkar tölur eru ekki eins og
þeirra, og varðandi kaupliðina,
þá höfum við alltaf sagt að við
getum ekki samið um annað
hér en gert hefur verið annars
staðar,“ sagði Einar.
Mikið ber á milli hjá deilu-
aðilum og draga margir í efa
að lausn deilunnar sé í sjón-
máli. Krafa ASV um 100 þús-
und krónurnar á ekki upp á
pallborðið hjá atvinnurekend-
um, sem standa fast á að borga
ekki hærri laun en samið hefur
verið um annars staðar. Samn-
ingar eru í höfn í Bolungarvík,
Tálknafirði og Bíldudal, auk
þess sem nokkur smærri fisk-
vinnslufyrirtæki hafa samið við
starfsfólk sitt, en verkalýðs-
félög á Ísafirði, Suðureyri,
Flateyri, Patreksfirði, Súðavík,
Hólmavík og Drangsnesi eru
enn í verkfalli.
Ekki höfðu borist fréttir úr
Karphúsinu þegar blaðið fór í
prentun í gær.