Bæjarins besta - 17.09.1997, Blaðsíða 1
Kjafta-
sögurnar
um Básafell
Halldór Jónsson
í yfirheyrslu
Bæjarins besta
Miðvikudagur 17. september 1997 37. tbl. 14. árg.
ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ
Stofnað 14. nóvember 1984 Sími 456 4560 Fax 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Verð kr. 200 m/vsk
Ísafjarðardjúp
Féll útbyrðis
við Skarfasker
Rétt eftir hádegi á sunnudag
lentu feðgar á tveimur gúmmí-
bátum í erfiðleikum út af
sorpeyðingarstöðinni á
Skarfaskeri. Samkvæmt upp-
lýsingum frá lögreglunni á
Ísafirði, mun faðirinn hafa
fallið útbyrðis, en syninum
sem er fjórtán ára, tekist að ná
honum um borð á ný.
Eftir að faðirinn féll útbyrð-
is, festist mótor bátsins í gangi
og sigldi hann því í hringi um
tíma. Ekki þótti ráðlegt að fara
um borð í bátinn fyrr en hann
stoppaði og var því báturinn
ekki sóttur fyrr en eldsneytið
var uppurið. Fjölmargir veg-
farendur um Óshlíð urðu báts-
ins varir er hann dólaði mann-
laus í hringi og létu lögregluna
vita. Föðurnum mun ekki hafa
orðið meint af volkinu en
sonurinn mun hafa orðið
dálítið skelkaður.
Rauðsíða á Þingeyri
Rætt um kaup
á Trostan ehf
Samkvæmt heimildum BB
standa nú yfir viðræður milli
forsvarsmanna Bolfisks hf. í
Bolungarvík og Rauðsíðu ehf.
á Þingeyri annarsvegar og
eigenda Trostan ehf. á Bíldu-
dal hinsvegar, um kaup fyrr-
nefndu aðilanna á fiskvinnslu
Trostan á Bíldudal, en þar
starfa nú um 24 starfsmenn.
Trostan starfrækir fisk-
vinnslu og beinamjölsverk-
smiðju á Bíldudal og rækju-
verksmiðju á Brjánslæk. Í
ágúst s.l. hóf fyrirtækið vinn-
slu hörpudisks og hafa bátar
frá Bíldudal séð um hráefnis-
öflun. Trostan hefur ekki verið
í útgerð, heldur hefur fyrir-
tækið treyst á afla smábáta og
dragnótarbáta á Bíldudal fyrir
fiskvinnsluna.
Fyrirtækin Bolfiskur í Bol-
ungarvík og Rauðsíða á Þing-
eyri hafa, eins og kunnugt er,
sérhæft sig í vinnslu rússa-
fisks og mun ætlun eigenda
vera að reka samskonar vinn-
slu á Bíldudal ef af samning-
um verður.
Trostan hefur verið einn
helsti atvinnuveitandinn á
Bíldudal ásamt Rækjuveri
ehf., en Í Nausti hf. er einnig
talsvert umsvifamikið fyrir-
tæki sem sérhæft hefur sig í
saltfiskverkun.
Bíldudalur.