Bæjarins besta - 17.09.1997, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Ísafjörður
Hagnaður Póls hf., á Ísafirði
nam um einni milljón króna
fyrstu sex mánuði þessa árs,
sem er nokkuð lakari afkoma
en gert hafði verið ráð fyrir.
Heildarvelta fyr irtækisins
nam 71 milljón króna og
hækkaði eiginfjárhlutfall úr
rúmum 36% í árslok 1996 í
rúmlega 41% í lok júní.
Um 80% af tekjum Póls er
vegna útfluttra tæknivara og
hefur óhagstæð gengisþróun
rýrt tekjur félagsins en þar
vegur lækkandi gengi norsku
krónunnar þungt. Ekki liggja
fyrir samanburðarhæfar tölur
fyrir fyrstu sex mánuði síðasta
árs en hagnaður ársins 1996
nam rúmum sjö milljónum
króna. Væntingar eru um betri
afkomu á seinni hluta ársins.
Minni hagn-
aður hjá Póls
Golf
Kristinn vann
Júlíusar Brand mótið í golfi
fór fram á Tungudalsvelli sl.,
laugardag. 21 keppandi tók
þátt í mótinu, en leiknar voru
18 holur með og án forgjafar.
Kristinn Þ. Kristjánsson sigr-
aði án forgjafar á 81 höggi,
annar varð Egill Sigmundsson
á 84 höggum og þriðji Pétur
H.R. Sigurðsson, einnig á 84
höggum.
Gunnlaugur Einarsson sigr-
aði með forgjöf á 63 höggum
nettó, annar varð Kristinn Þ.
Kristjánsson á 66 höggum og
þriðji Samúel Einarsson á 68
höggum nettó. Mótaröð Golf-
klúbbs Ísafjarðar lýkur nk.,
laugardag með hinni árlegu
Bændaglímu sem hefst kl. 14.
Á mótinu verða leiknar 9
holur í ,,léttum dúr” milli
tveggja liða þ.e. liðs formanns
klúbbsins og liðs formanns
mótanefndar.
Að leik loknum verður
grillveisla, verðlaunaafhend-
ing og gamanmál. Allt áhuga-
fólk er hvatt til að mæta.
Þingeyri
25 Pólverjar
hjá Rauðsíðu
Um 50 manns vinna nú hjá
Rauðsíðu ehf. á Þingeyri og
hefur verið stöðug og góð
vinna hjá fyrirtækinu síðan
það hóf starfsemi. Á mánu-
daginn landaði rússneskur
togari um 600 tonnum af
frosnum fiski í Rauðsíðu, en
fyrirtækið hefur nú samtals
tekið við um 2000 tonnum af
rússafiski.
Um helmingur starfsmann-
anna 50 eru Pólverjar og hafa
þeir flestir komið frá Bol-
ungarvík þar sem þeir voru í
vinnu hjá Bakka hf. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins
mun hafa verið gert sam-
komulag meðal Pólverjanna,
Rauðsíðu og Bakka, um að
verkafólkið flytti sig um set
til Þingeyrar, að minnsta kosti
um tíma. Fimm íbúðir í félags-
lega kerfinu á Þingeyri hafa
nú verið leigðar Pólverjum.
Einhver hreyfing virðist
vera í sölu fasteigna á Þingeyri
um þessar mundir, en nýverið
seldist þar einbýlishús og íbúð
í tvíbýli.
Reykhólar
Átta mán-
aða fangelsi
Á mánudaginn var Bjarni
P. Magnússon fyrrum sveit-
arstjóri í Reykhólahreppi,
dæmdur í Héraðsdómi Reyk-
javíkur í átta mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjár-
drátt og brot í opinberu starfi
á árunum 1991 til 1994.
Bjarni var dæmdur fyrir
umboðssvik í opinberu starfi
með því að veðsetja eign í
eigu hreppsins í eigin þágu.
Einnig fyrir fjárdrátt með því
að ráðstafa án heimildar milli
fimm og sex milljónum króna
sem voru í eigu hreppsins. Þá
var Bjarni einnig dæmdur fyrir
að draga sér 600 þúsund króna
lífeyrisiðgjöld á kostnað
hreppsins og fyrir að halda
ekki eftir sem sveitarstjóri,
600 þúsund krónum af stað-
greiðslu opinberra gjalda
sjálfs sín.
Tíðni ferða hefur aukist til
flestra áfangastaða Íslands-
flugs með tilkomu haust-
áætlunar sem tók gildi 8. sept-
ember sl. Íslandsflug mun sem
fyrr sinna sjúkraflugi á Vest-
fjörðum og verður flugvél fé-
lagsins staðsett á Ísafirði allar
nætur og um helgar.
Áætlunarflug frá Ísafirði
verður í framhaldi af nætur-
setunni, og verður flogið frá
Ísafirði kl. 08:00 og frá Reyk-
javík kl. 17:00, alla virka daga
auk annarar áætlunar félags-
ins til Ísafjarðar. Þá verður
sérstakt flug milli Ísafjarðar
og Bíldudals á fimmtudögum
og föstudögum. Hin lágu far-
gjöld sem félagið hefur boðið
upp á síðustu misseri verða
óbreytt í vetur, en vegna for-
falla í bókunum verður nú að
greiða farseðilinn við bókun.
Íslandsflug
Haustáætlun
tekur gildi
Þorkell Sigurðsson, augn-
læknir verður með móttöku á
Heilsugæslustöðinni á Ísafirði
dagana 22. - 26. september .
Tímapantanir hjá Þorkeli
eru í síma Heilsugæslustöðv-
arinnar 450 4511, alla virka
daga frá kl. 08:00 - 16:00. Á
öðrum tímum eru ekki gefnar
upplýsingar um þjónustuna.
Ísafjörður
Augnlækn-
ir á HSÍ
Á sameiginlegum fundi
fulltrúa bæjarráðs og fræðslu-
nefndar Ísafjarðarbæjar, sem
haldinn var á mánudag, var
samþykkt að leggja til við
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar,
að gerður verði samanburður
á mögulegum lausnum á
húsnæðisvanda Grunnskóla
Ísafjarðar, þar sem eftirtaldir
kostir yrðu skoðaðir sérstak-
lega: Nýbygging á Torfnesi,
nýbygging á Wardstúni, ný-
bygging á Skeiði, nýbygging
á Hauganesi, nýbygging á
núverandi skólalóð með upp-
kaupum nálægra húsa og með
endurbyggingu eldra húsnæð-
is við Sundstræti, þ.e. húsnæði
Hraðfrystihússins Norður-
tanga.
Fundurinn lagði til að skip-
aður verði þriggja manna
starfshópur, auk bæjarverk-
fræðings og skólafulltrúa, sem
skila á skýrslu til fræðslu-
nefndar og bæjarráðs um
framangreint efni fyrir lok
október. Vinna starfshópsins
skal m.a. taka til eftirfarandi
þátta: Skilgreind verði hús-
næðisþörf og gerð tillaga um
stærð þess húsnæðis sem þarf
til skólahaldsins og að ákvarð-
aður verði framkvæmda-
kostnaður við mismunandi
leiðir þar sem sérstaklega
verði tekið tillit til aðkomu-
leiða, gatna-og holræsakerfis,
lóðarstærðar og sökkuls undir
hús.
Þá þarf starfshópurinn að
meta byggingartíma og mögu-
lega áfangaskiptingu og í
störfum sínum skal starfshóp-
urinn meta önnur þau atriði
sem verkefninu tengjast s.s.
skipulagsmálum og flutningi
íþróttasvæðis og skal tíma-
setning og kostnaður verka
liggja fyrir. Loks skal skýrsla
starfshópsins leiða í ljós
möguleg áhrif hverrar út-
færslu fyrir sig á fjárhag bæj-
arsjóðs með tilliti til áætlunar
um árlegan rekstrar- og fram-
kvæmdakostnað auk þeirra
skuldbindinga sem bæjar-
sjóður hefur þegar undir-
gengist.
Húsnæðisvandi Grunnskóla Ísafjarðar
Gerður verður samanburður
á sex mögulegum lausnum
aðaráætlun vegna 2. áfanga
hljóðar upp á 38,1 milljón
króna, hönnunarkostnaður er
áætlaður 6,5 milljónir og 3,8
milljónir króna eru áætlaðar í
umsjón og eftirlit með verk-
inu. Heildarkostnaður við
endurbygginguna hljóðar því
upp á 84,9 milljónir króna.
Til viðbótar er gert ráð fyrir
að kaupa bókaskápa fyrir 12
milljónir og húsgögn fyrir 2
milljónir. Heildarkostnað-
Á fundi í verkefnisstjórn
Safnahúss í Ísafjarðarbæ, sem
haldinn var á föstudag, lagði
bæjarverkfræðingur Ármann
Jóhannesson, fram kostnað-
aráætlun vegna endurbygg-
ingu hússins, sem hljóðar upp
á 98,9 milljónir króna. Á
fundinum var bæjarverkfræð-
ingi falið að bjóða út 1. áfanga
verksins í nóvember nk., en
endurskoðuð kostnaðaráætl-
un vegna þess áfanga hljóðar
upp á 36,5 milljónir króna.
Á fundi bæjarráðs Ísafjarð-
arbæjar sem haldinn var í júlí
var samþykkt að allri hönn-
unarvinnu vegna hússins yrði
lokið í október á þessu ári, að
1. áfangi yrði boðinn út í sama
mánuði og að 1. áfanga yrði
lokið í október - nóvember
1998. Þá samþykkti bæjarráð
að 2. áfangi yrði boðinn út í
október 1998 og að húsið yrði
fullbúið í júní 1999. Kostn-
Heildarkostnaður áætlaður
um 98,9 milljónir króna
1. áfangi byggingu Safnahúss á Ísafirði boðinn út
Safnahús Ísafjarðarbæjar.
urinn við að gera húsið tilbúið
til notkunar er því 98,9 millj-
ónir króna.
Á fundi verkefnisstjórnar
kom einnig fram að sam-
komulag hafi verið gert við
Knút Jeppesen, arkitekt, um
að lokið yrði við allar vinnu-
teikningar fyrir 1. október nk.,
og að öllum innanhússteikn-
ingum verði skilað fyrir 15.
október. og að útboðsgögn
verði fullgerð 28. október nk.