Bæjarins besta - 17.09.1997, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 1997
Helgar-
dagskráin
Helgar-
veðrið
Helgar-
sportið
Tjöruhúsið á Ísafirði
Jóhanna og Diabolus in
Musica með tónleika
N.k. laugardag kl. 17:00
verða haldnir tónleikar í
Tjöruhúsinu í Neðstakaup-
stað. Þar koma fram Jóhanna
Þórhallsdóttir söngkona,
ásamt félögum úr Diabolus
in Musica.
Meðal hljófæraleikara má
nefna Tómas R. Einarsson,
Jón Sigurpálsson, Aðalheiði
Þorsteinsdóttur, Þorbjörn
Magnússon, Aagot Óskars-
dóttur og Pál Torfa Önund-
arson. Þau munu m.a. kynna
lög af væntanlegum geisla-
diski Jóhönnu.
Söngfélagið úr Neðsta
mun einnig syngja nokkur
lög á tónleikunum.
Íþróttahúsið á Torfnesi
Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands heldur tónleika
Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands heldur tónleika í
Íþróttahúsinu á Torfnesi á
föstudaginn kl. 20.00 og
mun hljómsveitin flytja
sömu efnisskrá og flutt
verður á fyrstu áskriftar-
tónleikum sveitarinnar á
þessu ári í Háskólabíói á
morgun.
Á tónleikunum verður
m.a. fluttur fiðlukonsert eftir
Piotr Tchaikovsky og hinna
tveggja tónjöfra, Franz Scu-
berts og Jóhannesar Brahms
verður minnst með flutningi
verka þeirra.
Einleikari tónleikanna
verður Sigrún Eðvaldsdóttir
fiðluleikari, en hljómsveit-
arstjóri er B. Tommy Ander-
son.
Skákmótaröð verður hald-
in í vetur á Flateyri, Þingeyri,
Suðureyri, Súðavík, Ísafirði
og Bolungarvík á vegum
skákáhugamanna á norðan-
verðum Vestfjörðum. Tefld-
ar verða stuttar skákir og
þátttaka verður öllum frjáls.
Ef þátttaka verður mikil
verður teflt eftir Monrad-
kerfi, en annars tefla allir
við alla.
Fyrsta mótið verður á
Suðureyri n.k. sunnudag í
matsala Fiskiðjunnar Freyju
og hefst kl. 20:00.
Suðureyri
Skákmót á sunnudag
Í lok ágúst bárust til bæjar-
ráðs Bolungarvíkur fjölmarg-
ar beiðnir um flutning afla-
marks milli skipa. Samtals
voru flutt frá bolvískum skip-
um og bátum 47 tonn af stein-
bít, 17 tonn af skarkola, 19
tonn af ýsu, tæp 3 tonn af
grálúðu, 105 tonn af úthafs-
rækju, 3 tonn af ufsa og 6
tonn af þorski. Verðmæti
þessa magns sem leigukvóta
er samtals tæplega 7,3 millj-
ónir króna en ekki mun vera
um beina leigu í öllum til-
fellum, heldur einnig ýmis
skipti.
Hjá kvótamiðlurum fengust
þær upplýsingar að framboð
leigukvóta væri ekki mikið
nú í upphafi nýs fiskveiðiárs.
Helst væri framboð af úthafs-
rækju, en leiguverð á þessari
tegund er um 52 krónur á kíló
um þessar mundir. Leiguverð
á þorski er 70 krónur og
sömuleiðis á grálúðu. Stein-
bítur er á 8 krónur, skarkoli á
18 krónur, ýsa á 25 krónur og
ufsi á 10-12 krónur.
Verð á varanlegum þorsk-
kvóta lækkaði nokkuð í upp-
hafi nýs kvótaárs, eða úr 725
krónum kílóið í 600 til 610
krónur kílóið.
Verð á kvóta smábáta á afla-
marki í krókakerfinu mun nú
vera um 220 krónur fyrir kíló-
ið af þorski og er þá verð
viðkomandi báts ekki reiknað
með. Verð bátanna er svipað
því sem var þegar hið venju-
lega banndagakerfi ríkti.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins binda smábátasjó-
menn nú miklar vonir við að
þeim verði leyft að hagræða
innan eigin kerfis. Hugmyndir
eru uppi um að mönnum verði
gefinn kostur á að leigja kvóta
innan aflamarkskerfisins og
að dagabátarnir svokölluðu fái
einnig að leigja til sín kvóta
eftir að hafa notað úthlutaða
daga sína. Hugmyndir þessar
hafa verið ræddar við sjávar-
útvegsráðherra að undanförnu
og er búist við niðurstöðu inn-
an skamms.
Varanlegur þorskkvóti lækkar
úr 725 krónum í 600 krónur
Beiðnir um aflamarksflutning frá Bolungarvík
Frá Bolungarvíkurhöfn.
FIMMTUDAGUR
16.45 Leiðarljós (728)
17.30 Fréttir
17.35 Sjónvarpskringlan
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Markús
18.15 Söguhornið
18.30 Undrabarnið Alex (34:39)
The Secret World of Alex Mack
Myndaflokkur um 13 ára stúlku sem
býr yfir undraverðum hæfileikum.
19.00 Úr ríki náttúrunnar
Flugið
Eyewitness II: Flight
19.30 Íþróttir 1/2 8
19.50 Veður
20.00 Fréttir
20.30 Dagsljós
21.00 Saga Norðurlanda (1:10)
Nordens historia
Kalmarsambandið
Fyrsti þáttur af tíu sem sjónvarps-
stöðvar á Norðurlöndum hafa látið
gera um sögu þeirra.
21.30 Allt í himnalagi (14:22)
Something so Right
22.00 Ráðgátur (1:17)
The X-Files
23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
16.45 Leiðarljós (729)
17.30 Fréttir
17.35 Sjónvarpskringlan
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Árstíðirnar í Berjagerði (1:4)
18.30 Fjör á fjölbraut (31:39)
FIMMTUDAGUR
09.00 Línurnar í lag
09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn
13.00 Á slóð litla drekans (e)
Nýr þáttur sem fréttamaðurinn Karl
Garðarsson gerði á ferð sinni um
Austurlönd fjær fyrr í sumar.
13.45 Lög og regla (22:22) (e)
Law and Order
14.40 Sjónvarpsmarkaðurinn
15.05 Oprah Winfrey (e)
16.00 Ævintýri hvíta úlfs
16.25 Sögur úr Andabæ
16.50 Með afa
17.40 Línurnar í lag
18.00 Fréttir
18.05 Nágrannar
18.30 Sjónvarpsmarkaðurinn
19.00 19 > 20
20.00 Dr. Quinn (23:25)
20.55 Saga Madonnu
Madonna Story
Ný bandarísk leikin sjónvarpsmynd
um söngkonuna Madonnu og þá leið
sem hún fetaði til frægðar. Við
kynnumst þeirri fátækt sem hún bjó
við í æsku, þrengingum sem hún gekk
í gegnum meðan frægðarinnar var
leitað og loks því hvernig hún sló
hressilega í gegn með breiðskífunni
Like a Virgin.
22.30 Kvöldfréttir
22.50 Stræti stórborgar (1:20)
Homicide: Life On The Street
Ný syrpa af spennandi lögguþáttum
sem gerast á strætum Baltimore-
borgar
23.35 Leon (e)
01.25 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
09.00 Línurnar í lag
09.15 Sjónvarpsmarkaðurinn
13.00 Af lífi og sál (e)
Heart and Souls
14.40 Sjónvarpsmarkaðurinn
15.00 Listamannaskálinn (e)
16.00 Heljarslóð
16.25 Sögur úr Andabæ
16.50 Magðalena
17.15 Glæstar vonir
17.40 Línurnar í lag
18.00 Fréttir
18.05 Íslenski listinn
19.00 19 > 20
20.00 Lois og Clark (3:23)
20.55 Faðir brúðarinnar 2
Father of the Bride 2
Framhald hinnar bráðskemmtilegu
gamanmyndar um George Banks,
pabbann sem mátti ómögulega til þess
hugsa að litla stelpan hans væri orðin
stór, byrjuð að vera með strákum og
flygi brátt úr hreiðrinu.
22.45 Hafið bláa hafið
Le Grande Bleu
Lengri útgáfan af meistaraverki Luc
Bessons um hafið og fólkið sem lætur
stjórnast af dulúð þess.
01.35 Af lífi og sál (e)
Heart and Souls
Sjá umfjöllun að ofan.
03.15 Dagskrárlok
LAUGARDAGUR
09.00 Með afa
09.50 Bíbí og félagar
10.45 Geimævintýri
11.10 Andinn í flöskunni
11.35 Týnda borgin
12.00 Beint í mark með VISA
12.25 NBA-molar
12.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
13.10 Lois og Clark (13:22) (e)
13.55 Aðeins ein jörð (e)
14.05 Fylgsnið
15.10 Oprah Winfrey
16.00 Enski boltinn
17.45 Glæstar vonir
18.05 60 mínútur
19.00 19 > 20
20.00 Vinir (5:27)
Friends
20.30 Cosby-fjölskyldan (4:26)
Cosby Show
21.00 Dauðamaður nálgast
Dead Man Walking
Mögnuð mynd um nunnuna Helen
Prejean sem er eindreginn andstæð-
ingur dauðarefsinga og tekur að sér
mál manns sem allir fyrirlíta.
23.10 Farinelli
Belgísk úrvalsmynd frá 1994 sem
var tilnefnd til Óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin.
01.00 Pelican-skjalið (e)
Pelican Brief
Spennumynd byggð á sögu eftir John
Grisham.
03.20 Dagskrárlok
SUNNUDAGUR
09.00 Sesam opnist þú
09.30 Dóri
09.55 Eðlukrílin
10.05 Kormákur
10.20 Aftur til framtíðar
10.45 Krakkarnir í Kapútar
11.10 Úrvalsdeildin
11.35 Ævintýralandið
12.00 Íslenski listinn (e)
13.00 Fædd í gær (e)
14.45 Sjónvarpsmarkaðurinn
15.05 Húsið á sléttunni
16.00 Ítalski boltinn
17.45 Glæstar vonir
18.05 Manndómsraun í Perú (e)
Seven Go Mad In Peru
19.00 19 > 20
20.00 Morðgáta (22:22)
Murder She Wrote
20.50 Forseti Bandaríkjanna
American President
Rómantísk gamanmynd með Michael
Douglas og Annette Bening í aðal-
hlutverkum.
22.50 60 mínútur
23.40 Rautt sem blóð (e)
Blood Red
Áhrifamikil og spennandi kvikmynd
sem gerist í Bandaríkjunum um
síðustu aldamót og fjallar um átök
ítalskra og írskra innflytjenda.
01.10 Dagskrárlok
19.30 Íþróttir 1/2 8
Hér er hafinn nýr íþróttafréttaþáttur
sem er á dagskrá á þessum tíma alla
virka daga. Meðal efnis á föstudögum
eru íþróttir helgarinnar.
19.50 Veður
20.00 Fréttir
20.35 Dagsljós
21.10 Glæpahringur (1:9)
E-Z Streets
Nýr bandarískur spennumynda-
flokkur um baráttu lögreglumanna í
stórborginni við mafíuna annars
vegar og óheiðarlega starfsbræður
hins vegar.
22.45 Hvíti salurinn
White Room
Breskur tónlistarþáttur þar sem gamlir
og nýir meistarar dægurlagatónlistar-
innar mætast.
23.55 Framboð og eftirspurn
Supply and Demand
Bresk sjónvarpsmynd frá árinu 1996.
Scotland Yard vill setja á laggirnar
sérdeild sem berjast á gegn innflutn-
ingi ítölsku og rússnesku mafínnar á
eiturlyfjum til Bretlands. Þeir ráða til
sín hóp fólks af ólíkum uppruna sem
á það eitt sameiginlegt að berjast gegn
eiturlyfjainnflutningi til Bretlands.
01.25 Ráðgátur (1:17)
The X-Files
02.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok
LAUGARDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp barnanna
10.25 Hlé
10.50 Formúla 1
Bein útsending frá undankeppni
kappakstursins í Zeltweg í Austurríki.
12.00 Hlé
13.20 Þýska knattspyrnan
15.50 Meistarakeppni kvenna í knatt-
spyrnu
Bein útsending frá úrslitaleik kvenna
í meistarakeppni KSÍ þar sem Íslands-
meistarar og bikarmeistarar mætast.
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Dýrin tala (1:39)
18.20 Fimm frækin (1:13)
The Famous Five II
18.50 Hvutti (2:17)
Woof