Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 1
Körfubolti, viðskipti og Bæjarins bestu... Bæjarins besta Miðvikudagur 3. desember 1997 • 48. tbl. • 14. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Fax 456 4564 • Netfang: hprent@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk Félag Jafnaðarmanna Jóna Símonía segir af sér Jóna Símonía Bjarnadóttir hefur sagt af sér formennsku í Jafnaðarmannafélagi Ísafjarð- arbæjar. Hún hefur jafnframt sagt sig úr fræðslunefnd og viðræðuhópi um sameiginlegt framboð til næstu sveitar- stjórnarkosninga. Jóna Sím- onía var fulltrúi Alþýðu- flokksins í starfshópi um húsnæðismál Grunnskóla Ísafjarðar, sem taldi kaup á Norðurtanganum hagkvæm- asta kostinn. „Um allnokkurt skeið hefur legið fyrir að við Sigurður R. Ólafsson erum ekki sammála um leið til lausnar á vanda Grunnskólans. Samstarf okk- ar hefur verið gott og það er langt í frá að um einhvern stórkostlegan ágreining sé að ræða okkar í milli og þá síður persónulegan. Það liggur í augum uppi, að þegar mál skipuðust á þann veg sem raun varð, hlaut ég að víkja sæti í fræðslunefnd. Hvað viðvíkur afsögn minni sem formaður Jafnaðar- mannafélagsins þá hafði ég fyrir allnokkru tekið þá ákvörðun að bjóða mig ekki fram á næsta aðalfundi af persónulegum ástæðum. Það hefur ekki farið framhjá nein- um í þessum bæ hvað gengið hefur á í pólitíkinni það sem af er vetrar. Menn hafa tekist hraustlega á með tilheyrandi skömmum og skítkasti eins og löngum hefur tíðkast hér. Ég einfaldlega sætti mig ekki við að sitja undir slíku og er þá sama hvaðan kemur. Á síðasta föstudag var svo komið að ég hafði fengið mig fullsadda á öllu saman og ákvað að hætta öllum afskipt- um af pólitík hér í bæ, enda hef ég enga löngun til að standa í illindum við allt þetta góða fólk sem kom að þessu máli og allra síst minn kjörna fulltrúa, Sigurð Ólafsson, sem eftir sem áður nýtur míns stuðnings,“ sagði Jóna í sam- tali við BB. Ísafjarðarbær Fyrsti fundur nýs meirihluta Fyrsti fundur nýs meirihluta í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar verður haldinn á morgun, fimmtudag í fundarsal bæjar- stjórnar. Á fundinum verður meiri- hlutasamstarfið staðfest auk þess sem gert er ráð fyrir að gefin verði út tilkynning um ráðningu nýs bæjarstjóra, en mikil leynd hefur hvílt yfir ráðningu hans. Í málefna- samningi nýs meirihluta er gert ráð fyrir að Kristinn Jón Jónsson verði forseti bæjar- stjórnar, Smári Haraldsson verði fyrsti varaforseti og formaður fræðslunefndar, Jónas Ólafsson verði for- maður bæjarráðs og að Sig- urður R. Ólafsson verði vara- formaður bæjarráðs.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.