Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 6

Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 Útgefandi: H-prent ehf. Sólgötu 9, 400 Ísafjörður % 456 4560 o 456 4564 Netfang: hprent@snerpa.is Stafræn útgáfa: http://www.snerpa.is/bb Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson Halldór Sveinbjörnsson Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson Blaðamaður: Magnús Hávarðarson Bæjarins besta er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið. Leiðari Sigurður R. Ólafsson, Kolbrún Halldórsdóttir og Jónas Ólafsson voru að sjálfsögðu á borgarafundinum, en þau eru í nýjum meirihluta bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Borgarafundur um húsnæðismál Grunnskóla Ísafjarðar Sexmenningarnir gagn valdníðslu og óvönduð v Ísfirðingar fylltu fundarsal Stjórnsýsluhússins á Ísafirði á fimmtudagskvöld þar sem fram fór almennur kynningar- fundur um húsnæðismál Grunnskóla Ísafjarðar. Hjá fundargestum kom fram mikil gagnrýni á þá sex bæjarfull- trúa sem nú hafa myndað nýjan meirihluta, fyrir að hafa knúið fram samþykkt um að Norðurtangalausninni svo- kölluðu yrði hafnað á auka- bæjarstjórnarfundi, daginn áður en kynna átti bæjarbúum niðurstöður starfshóps um mögulegar lausnir. Túlkuðu margir fundargestir þennan starfsmáta sem vanvirðingu við íbúa og töldu ákvörðun sexmenninganna, fljótfærnis- lega og bera vott um ófagleg vinnubrögð og valdníðslu. Fundurinn baulaði á Kolbrúnu Kolbrún Halldórsdóttir, einn sexmenninganna, vísaði því á bug að um valdníðslu væri að ræða og fullyrti að hún hefði ekki fengið að vita um fyrirhugaðan borgarafund fyrr en á bæjarstjórnarfundin- um kvöldið áður. Þessi full- yrðing vakti upp hörð við- brögð fundargesta sem baul- uðu á Kolbrúnu. „Hvar var fundurin auglýstur, ef ég má spyrja? Það var engin til- kynning um það í pósthólfinu mínu í gærmorgun, það var ekki komin nein kynning um þennan borgarafund til mín. Þið getið úað, en þetta er stað- reynd. Ég á ekki sæti í bæjar- ráði, þar eru Þorsteinn og Magnea fulltrúar. Það var kynnt þar að til stæði að halda þennan fund, en þau létu ekki svo lítið að láta mig eða Jónas vita.“ Fundargestir óskuðu eftir því að hinn nýi meirihluti gerði grein fyrir tillögum sín- um í húsnæðismálum og greindi Kolbrún frá því að leit- að yrði eftir leiguhúsnæði til bráðabirgða til að mæta þeim skorti á kennsluhúsnæði sem fyrirsjáanlegur er á næsta ári, þar til nýbygging verði tekin í notkun. Jafnframt yrði könnuð hagkvæmni þess að byggja skólahúsnæði við Skólagötu og Austurveg og uppfylla lóðamál skólans með upp- kaupum nálægra húsa. Kol- brún sagði að ef í ljós kæmi að framangreindar lausnir reyndust ófærar yrði starfs- hópi falið að hefja viðræður við forystu ÍBÍ um flutning á knattspyrnuvöllunum á Torf- nesi á nýtt svæði í Tungudal og að gert yrði ráð fyrir skólabyggingu þar. Fram- kvæmd yrði samkeppni um alútboð á skólabyggingu og stefnt að því að húsnæðið yrði tilbúið skólaárið 2000-2001. Þessum framkvæmdum yrði mætt með framlögum úr bæj- arsjóði og lántökum, þar sem leitað yrði tilboða í fjármögn- un heildarkostnaðar fram- kvæmdanna. „Ég hef gengt bæjarfull- trúastarfi mínu frá árinu 1990 samkvæmt sannfæringu minni og með hagsmuni sveit- arfélagsins í huga. það hefur ekki verið á valdi fulltrúaráðs eða annarra að taka ákvarðanir fyrir mína hönd, þær tek ég sjálf og ber ábyrgð á sam- kvæmt sveitarstjórnarlögum. Það er ykkar, kjósendanna, að velja og hafna frambjóð- endum til starfa á vegum sveit- arfélagsins. Þið munið vænt- anlega gera það um komandi kosningar. Það er svo eitt í lokin. Mér fannst það skjóta svolítið skökku við, að það sem var þverpólitískt í morgun var orðin valdníðsla um miðj- an dag í dag,“ sagði Kolbrún Halldórsdóttir. Sorgarsaga húsnæðis- mála Grunnskólans Kristinn Breiðfjörð, skóla- stjóri Grunnskóla Ísafjarðar, sagðist líta á sig sem aðkomu- mann sem þekkti kannski ekki vel söguna. „Þó er mér full- ljóst, eftir að hafa starfað hér í tvö ár, að vinnuaðstaða nem- enda og kennara er alls ekki boðleg. Þess er krafist að allir skólar verði einsetnir, að öll aðstaða í skólum verði bætt og að vinnudagur nemenda verði heilstæður. Þær forsend- ur sem starfshópur um hús- næðismálin gekk út frá, voru um þessi rök. Það hefur stund- um verið spurt um það hvers vegna húsnæðisþörfin er svo mikil allt í einu núna og af hverju ekki er hægt að reka skóla eins og áður var. Ein- setning skólanna er fram kom- Ísafjörður Bátasýning í Slunkaríki Á laugardag verður hin árlega jólasýning opnuð í Slunka- ríki á Ísafirði. Að þessu sinni verða sýndir bátar af ýmsum stærðum og gerðum, s.s. úr timbri, leir, gler og málmum. Flestir bátanna eru til sölu. Sýningin verður opin fimmtu- daga til sunnudaga kl. 16-18 og stendur til 24. desember. Allir eru velkomnir við opnunina. Flateyri Árlegur jólabasar Hinn árlegi jólabasar félaganna í Önundarfirði verður haldinn sunnudaginn 7. desember nk., í félagsheimilinu á Flateyri. Þar verður að vanda mikið um að vera, m.a. munu börn úr Tónlistarskóla Önundarfjarðar syngja, auk þess sem boðið verður upp á ýmsan varning, s.s. hveitikökur, smákökur og skötu. Þá verður boðið upp á kaffiveitingar. Flateyri Aðventuhátíð í kirkjunni Aðventuhátíð verður í Flateyrarkirkju sunnudaginn 7. desember kl. 11:15. Á hátíðinni verður fluttur söngur, upplestur og helgileikur fermingarbarna. Að lokinni athöfninni verður borinn fram léttur hádegisverður. Önfirðingar og nágrannar eru hvattir til þess að fjölmenna til kirkju á sunnudag (annan sunnudag í jólaföstu). Nú verður að slíðra sverðin Í leiðaraskrifum BB um málefni grunnskólans hefur verið lögð áhersla á þá ábyrgð, sem bæjarfulltrúar einir axla þegar upp er staðið. Um rétt bæjarfulltrúa til ákvarðanatöku, hvað sem faglegum ráðum eða flokkssamþykktum líður, verður ekki deilt. Þetta er mikið vald og vandmeðfarið. Nú er komið í ljós að bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar upp til hópa féll á prófinu í grunnskólamálinu. Valdið ýtti verkhyggindum út af borðinu. Skjótræðisleg ákvörðun sexmenninganna um að sópa Norðurtanganum út af borðinu kvöldið fyrir borgarafundinn er engu betri en flumbrugangurinn hjá fyrrum meirihluta í þessu máli og með öllu óskiljanleg. Hvað sem afstöðu bæjarfulltrúanna leið, bar þeim skylda til að halda málinu opnu fram yfir borgarafundinn. Allt annað var óvirðing við bæjarbúa. Hvers vegna gerðu þeir það ekki? Dramatískur endir meirihluta Alþýðu- og Sjálfstæðis- flokks er í takt við þau fálmkenndu vinnubrögð, sem ein- kennt hafa málið allt. Yfirlýsingar oddvita flokkanna í lok bæjarstjórnarfundarins um þverpólitískt landslag grunn- skólamálsins og áframhaldandi meirihlutasamstarf þrátt fyrir allt, ber vott um fljótfærni og reynsluleysi. Veðra- brigðin daginn eftir þegar þverpólitísk morgunskíma breyttist í myrkur valdníðslu er á daginn leið komu ekki á óvart. Á blaðamannafundinum var upplýst að reikna mætti með að samþykkt tillögu sexmenninganna hefði ,,í för með sér a.m.k. 500 milljóna króna skuldaaukningu bæjarjóðs á þremur árum”. Hvað hefði ,,Hitt húsið” komið til með að kosta og hvað hefði það aukið skuldastöðu bæjarsjóðs, þegar upp var staðið? Áróðursstríðið milli fylkinganna í bæjarstjórninni dylst ekki. ,,Ég ætla ekki að blanda mér inn í þær deilur sem uppi hafa verið, en ég vona innilega að það takist sátt um góða lausn. Ákveðnar línur hafa verið lagðar og framtíðin verður að skera úr um það hvernig þessum málum verður háttað, en það er mjög mikilvægt að ekki verði gripið til bráða- birgðalausna sem verða til frambúðar,” sagði Kristinn Breiðfjörð, skólastjóri á borgarafundinum og benti á nærtæk víti til varnaðar. Eftir átökin í bæjarstjórninni kann sú víðtæka sátt og samstaða sem þarf að nást í grunnskólamálinu að vera í hættu. Þeirri vá verður að bægja frá. Það gerist ekki nema menn slíðri sverðin. Til þess verða bæjarfulltrúar að hafa manndóm. Framtíð grunnskólans er að veði. s.h.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.