Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 2

Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 Styrktarsjóður húsbyggingar Tónlistarskólans Jólakortin komin í sölu Styrktarsjóður húsbygg- ingar Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur eins og undanfarin ár gefið út jólakort til fjáröflunar fyrir sjóðinn. Á kortinu er mynd af fögru málverki eftir Jón Hróbjarts- son og er myndefnið Ísafjörð- ur í lok fjórða áratugarins. Jón Hróbjartsson (1877- 1946) var kennari á Ísafirði um langt árabil og kenndi einkum söng, teikningu og íslensku við miklar vinsældir. Hann var mikilvirkur málari, ferðaðist um landið vítt og breitt, einkum um Vestfirði og teiknaði og málaði fjöldann allan af myndum, oft eftir pöntun. Myndir hans voru mjög víða til á vestfirskum heimilum og eru ómetanlegar heimildir um samtíma sinn. Jólakortin eru til sölu í Bókaverslun Jónasar Tómas- sonar og á skrifstofu Tónlist- arskólans (s. 456 3926), auk þess sem nemendur skólans hafa gengið með þau í hús. Bolungarvík Ísafjörður Drymludagur Torgsala Laugardaginn 6. desember nk., verður opnuð sýning á handunnum munum tré- skurðarfólks í Drymluhúsinu í Bolung- arvík. Opið er alla virka daga frá kl. 14-18 og laugardaga frá kl. 14-17 fram að jól- um. Smákökur og heitt á könnunni! Lukkupakkar og margt fleira. Hin árlega jólatorgsala styrktarsjóðs húsbyggingar Tónlistarskóla Ísafjarðar verður haldin nk., laugardag 6. desember á Silfurtorgi og hefst kl. 15. Líkt og undanfarin ár verður mikið úrval muna til sölu auk þess sem boðið verður upp á heitt kakó. Íbúar Ísafjarðar og nágrennis eru hvattir til að mæta. Þessi ómerkta ljós- mynd frá Birni Pálssyni ljósmyndara á Ísafirði er talin vera af Jónasi Jónssyni fæddum 10.09 1871 í Skálmardal. Hann dó á St. Jósefsspítala árið 1905 og er þá sagður vinnumaður frá Svínanesi. Foreldrar hans voru þau Jón Jónsson (varð úti á Skálmardalsheiði árið 1880) og Björg Guð- mundsdóttir frá Skála- nesi. Enginn Jónas Jónsson finnst í skrám Björns Pálssonar. Ef þú, lesandi góður, kannast við manninn þá vinsam- legast hafðu samband við Skjalasafnið á Ísafirði í síma 456-3936 eða 456-3296. Hver þekkir manninn? Triumph kynning! Guðrún Stefánsdóttir frá Triumph umboðinu verður með kynningu á Triumph undirfatnaði laugardaginn 6. desember frá kl. 13:00-16:00 Jólaskapið er skollið á hjá Jónu Opið alla virka daga frá kl. 11-13 og 16-21. Laugardaga frá kl. 13-18. Komið, lítið inn, fáið kaffi og farið kaffibrún út! Er búin að taka upp nýjar sendingar af náttkjólum, náttfötum, nærfötum og fleira. Tilvalið til gjafa... ...eru ekki líka að koma jól? Einnig tek ég að mér að leiðbeina um föðrun. Kjörið tækifæri fyrir saumaklúbba og aðra hópa. Sýslumaðurinn á Ísafirði Uppboð á lausafjármunum Eftirtaldar bifreiðir og annað lausafé verður boðið upp við gömlu lögreglustöðina, Fjarðarstræti, Ísafirði, laugardaginn 13. desember 1997, kl. 14:00. Bifreiðir: ID-326, RI-085, IS-783, GP-606, JL-518, HN-847, HY-524, tjaldvagn YM-171. Veiðarfæri, 60 bjóð, veiðarfæri og ílát staðsett í beitingaskúr Snæfells Flateyri. Tölva teg. Jet 486 dx2, einnig ýmsir munir í vörslu tollvarðarins á Ísafirði. Uppboðið á sér stað eftir kröfu Sýslumanns- ins á Ísafirði og ýmissa lögmanna. Vænta má að greiðslu verði krafist við hamarshögg. 2. desember 1997, Sýslumaðurinn á Ísafirði Guðrún Hólmsteinsdóttir ftr. Aðventuhátíð verður í Ísa- fjarðarkirkju n.k. sunnudags- kvöld kl. 20:30. Kór Ísafjarð- arkirkju og Sunnukórinn syngja undir stjórn Margrétar Geirsdóttur. Undirleik annast Sigríður Ragnarsdóttir og Hulda Bragadóttir. Gunnar Kvaran, sellóleikari, mun einnig leika með kórunum, auk þess sem hann flytur ein- leikssvítu eftir J. S. Bach. Guðrún Jónsdóttir, sópran- söngkona, mun syngja og kvartettinn „Vestan fjögur“ frá Flateyri, flytur nokkur létt jólalög. Kristján Freyr Hall- dórsson les upp. Aðventuhátíð á sunnudag Ísafjörður Kór Ísafjarðarkirkju og Sunnukórinn eru meðal þeirra sem fram koma á Aðventuhátíð í Ísafjarðar- kirkju á sunnudaginn.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.