Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 Tilboð á Jensen sýningardýnum Borðstofuborð í miklu úrvali Verð kr. 84.900.- stgr. Harðir Rolling Stones áhuga- menn sinna áhugamálinu Áhugamenn um Rollings Stones Á Eyrinni ,, Ruby Tuesday who could hang a name on you".Skipuleggjandi kvöldsins, Guðmundur Níelsson, málarameistari, skemmti sér konunglega á föstudagskvöld. Áhugamál fólks eru mörg og misjöfn. Sumir veiða lax, aðrir rjúpu, gæs og aðra fugla, enn aðrir spila golf, að ógleymdum öllum boltamönnunum. Á Ísafirði eins og víðar eru áhugasamir menn um rokktónlist. Svipað og í íþróttum halda menn með sínu liði. Nokkrir áhugamenn um frægustu og mestu rokkhljómsveit sem uppi hefur verið komu saman á veitingastaðnum Á Eyrinni á föstudagskvöld til þess að sinna áhuga- máli sínu. Karlar voru í áberandi meirihluta, en nokkrar konur voru í hópnum. Forgöngu- maður hópsins, Guð- mundur Níelsson, málarameistari, hafði tekið saman myndband sem tók til sögu sveitar- innar frá upphafi fram undir 1990 og sýndi viðstöddum. Að því loknu tók við smá yfirferð um þau lög sem nú eru leikin á tónleikum í ferð sveitar- innar um Bandaríkin og Kanada undir heitinu ,,Bridges to Babylon”. Var þar stuðst við upptökur af hljómleik- um, bæði af myndbönd- um og plötum. Einn viðstaddra, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Ísafirði, sótti einmitt tónleika sveitarinnar í Philadelphia í nýliðnum október. En hæst bar flutningur þeirra Kristins Níels- sonar á fiðlu og Sigurðar Friðriks Lúðvíkssonar á nokkrum lögum hljóm- sveitarinnar, Country Honk, sem kom út á plötunni Let it Bleed í árslok 1969. Þar er um að ræða sveitartónlistar- útgáfu af Honky Tonk Women, einu þekktasta lagi Rolling Stones. þeir sungu einnig Ruby Tuesday, Last Time, Street Fighting Man og Jumping Jack Flash, auk þess að flytja aukalag, Honky Tonk Women. Tóku viðstaddir vel undir og fögnuðu þeim félögum gríðarlega, enda var flutningur þeirra til fyrirmyndar. Létt var yfir skemmt- uninni og samdóma álit að hún hefði verið vel til fundin. Reyndar heyrð- ust raddir um að rétt væri að fjölmenna á tónleika Rolling Stones í Evrópu á næsta sumri. Ljósmyndari blaðsins kom við á Stones- kvöldinu og tók með- fylgjandi myndir. Rolling Stones aðdáandi nr. 1 á Íslandi, Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Ísafirði, var í góðum ,,fíling” á Stones-kvöldinu eins og sjá má. Á myndinni er einnig Ön- undur Jónsson, yfirlögregluþjónn á Ísafirði. Góður rómur var gerður að spili og söng þeirra félaga Kristins Níelssonar á fiðlu og Sig- urðar Friðriks Lúðvíkssonar á gítar, en þeir tóku nokkur lög Stones fyrir viðstadda. Þessir fjórir létu sig ekki vanta á Stones-kvöldið. Frá vinstri: Tryggvi Guðmundsson, lögfræðingur, Hermann Hákonarson, verslunarmaður, Sigmundur Annasson, húsa- smíðameistari og Samúel Einarsson, hárskeri og tónlistarmaður. Opið laugardag kl. 10-16 Euro og Visa raðgreiðslur Þátttakendur í mótinu ásamt forsvarsmönnum þess hjá BÍ. Íþróttahúsið á Torfnesi á Ísafirði Fjölmennt knattspyrnumót Um síðustu helgi fór fram eitt fjölmennasta knatt- spyrnumót sem haldið hefur verið á vegum Boltafélags Ísafjarðar. Rúmlega 250 drengir og stúlkur á aldrinum 5-13 ára tóku þátt í mótinu og komu þau frá flestum byggðarlögum á norðanverðum Vestfjörðum. Góð stemmning var hjá krökkunum þrátt fyrir að ekki hafi verið keppt um verð- launasæti, en allir fengu þó viðurkenningu fyrir þátttök- una. Tvö slík mót voru haldin síðasta vetur og er ráðgert að gera mót sem þetta að föstum lið í starfsemi félags- ins í framtíðinni.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.