Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 9

Bæjarins besta - 03.12.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 9 æði og Bæjarins bestu... Guðni Guðnason, fyrrverandi landsliðsmaður og núverandi þjálfari KFÍ í samtali við Bæjarins besta komnir vel á þriðja metra á hæð? Ekki virðist mikilli snerpu eða hlaupagetu fyrir að fara... „Það er eitthvað til í því. Þessi umræddi leikmaður átti greinilega mjög erfitt með að hreyfa sig og var með ákaflega slæm hné. En hann var mjög kátur og hress og skemmti- legur.“ Íþróttahúsið á Ísafirði – Íþróttahúsið hér á Ísafirði er stundum kallað Ísjakinn eða bara Jakinn. Hvernig er stemmningin á leikjunum hjá ykkur? „Hún er ágæt. Það er ólýs- anlegt að hafa alltaf fimm til sex hundruð manns á hverjum leik og allir að hvetja liðið, syngjandi og með trommur. Þetta er mjög skemmtilegt.“ – Er þetta gott hús? „Já, það er mjög gott. Sér- staklega er gólfið mjög gott. Ég gæti varla verið að æfa nema vegna þess hvað gólfið er mjúkt. Hnén á mér eru orðin það slæm.“ – Hafa þau farið illa af körfuboltanum? „Já, þau eru orðin ansi slitin. Ég er mjög hjólbeinóttur frá náttúrunnar hendi og þess vegna er álagið á hnén ekki alveg rétt. Á mínum yngri árum hoppaði ég mjög hátt og þá var álagið enn meira. Hnén eru orðin dálítið þreytt og þess vegna heimsæki ég Veigu þrisvar í viku.“ – Veigu? „Hún er sjúkraþjálfari.“ Ef ég mætti velja aftur... – Er kannski ástæða til þess að vara menn við því að fara út í körfubolta vegna hugsan- legrar skaðsemi fyrir hnén? „Nei, það held ég ekki. Og ef ég mætti velja aftur, þá mundi ég gera nákvæmlega það sama. Jafnvel þótt ég vissi að það kostaði óþægindi í hnjánum. Þetta er svo skemmtilegt og gefur manni svo mikið. Íþróttir gera vissu- lega gott. Hins vegar má alltaf deila um það, hversu hollar keppnisíþróttir eru þegar út í fulla hörku er komið.“ – Hvernig ætli afkoman sé hjá körfuboltanum hér? „Þetta sleppur nánast. Áhorfendur eru margir og góður stuðningur frá fyrir- tækjum. Það er nauðsynlegt til að endar nái saman. Þetta er dýr rekstur. Hver útileikur kostar hundrað þúsund kall. Síðan erum við með tvo erlenda leikmenn. Það kostar peninga að ná árangri, en árangur skilar líka peningum. Eins og einhver sagði: Það kostar peninga að búa til peninga. Út á það gengur þetta.“ „Bæjarins bestu“ við íþróttahúsið? – Þér hefur ekki dottið í hug að setja upp pylsuvagn fyrir utan íþróttahúsið til að afla fjár... „Nei. Þessu hefur vissulega verið skotið að mér. En það þarf ákveðinn fjölda af við- skiptavinum til að það gangi. Einn af stjórnarmönnum KFÍ vildi ólmur kaupa einhvern pylsuvagn sem var til sölu úti í Bolungarvík, en það hefur ekkert orðið úr því.“ – Annar ónefndur stjórnar- maður í KFÍ, kenndur við Hamraborg, hefur væntanlega ekki verið mjög hrifinn af þeirri hugmynd... „Við Gísli höfum sýnt fram á nokkrar tölur í þessu sam- bandi. Það er ósköp lítið sem svona vagn gæti gefið af sér hér en mundi aftur á móti kosta mikla vinnu og fyrir- höfn. Það er einfaldlega svo fátt fólk hérna.“ Yngri leikmenn og landsliðið – Þú vilt kannski ekki nefna nein nöfn sérlega efnilegra yngri leikmanna hér á Ísafirði sem senn fara að berja á dyrnar á meistaraflokknum... „Það eru nokkrir mjög efnilegir í drengjaflokknum og sumir hverjir byrjaðir að æfa hjá mér. Þetta eru strákar sem geta orðið mjög fram- bærilegir og jafnvel mjög góð- ir leikmenn ef þeir verða nógu duglegir að æfa. Þeir hafa hæfileika. Ég get kannski nefnt sérstaklega hávaxinn pilt frá Súðavík sem heitir Arnar.“ – Nú er leikmaður úr KFÍ, Friðrik Stefánsson, kominn í landsliðið. Það hefur ekki gerst áður... „Nei. Hann lék sinn fyrsta landsleik við Hollendinga í síðustu viku og stóð sig alveg ljómandi vel.“ – Eru fleiri úr KFÍ á þrös- kuldi landsliðsins? „Já. Ég held að Ólafur Ormsson sé ekki langt frá því. Hann var valinn í tuttugu manna hóp um daginn. Hann á alveg heima í landsliðshópn- um en hefur bara spilað svo lítið síðustu misserin.“ – Nú tapaðist leikurinn við Hollendinga, mjög naumlega þó, og fjórir leikir framundan í riðlinum, þar af aðeins einn heimaleikur. Er ekki mjög á brattann að sækja hjá íslenska landsliðinu á næstunni? „Jú. Það var afrek út af fyrir sig að komast inn í þessa keppni. Við höfum aldrei náð því áður að vera á meðal 32 bestu. Það er út af fyrir sig góður árangur að vinna leik í þessum riðli. Alþjóðlegi körfuboltinn er það sterkur. „Já, það var í Murcia á Spáni síðast þegar ég lék með landsliðinu. Þá vorum við í riðli meðal annars með Rúm- eníu, Króatíu, Grikklandi og Þýskalandi. Einn rúmensku leikmannanna, Georg Murh- ezan, sat til borðs með mér, en hann er það stór að hann getur ekki með góðu móti notað venjuleg borð og stóla eða önnur húsgögn. Hann passar eiginlega ekki inn í þennan heim. Það er eins og við værum að nota húsgögn í leikskóla. Hann getur heldur ekki notað venjulega bíla. Í mótinu lék ég líka á móti þessum manni. Hann spilar núna í NBA-deildinni fyrir vestan. Ég gæti nefnt ýmsa af bestu körfuboltamönnum Evr- ópu, sem ég hef leikið á móti, eins og Kukoc, Radja og Petrovic, besta mann Króata, sem síðar lést í bílslysi. Það var ákaflega gaman að fá að etja kappi við þessa menn. Úrslitin í leikjunum voru kannski ekki alveg eins góð. Í þessu móti urðum við meðal annars að þola stærsta tap ís- lensks landsliðs í körfubolta frá upphafi.“ – Er það ekki komið út í öfgar þegar leikmenn eru

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.