Bæjarins besta - 03.12.1997, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 7
ar haldinn í Stjórnsýsluhúsinu
nrýndir fyrir
vinnubrögð
in, en það á einnig að fjölga
kennslustundum. Um það er
ákveðin áætlun sem við verð-
um að fara eftir. Fyrir fjóra
yngstu bekkina á t.d. að fjölga
kennslustundum úr 28 stund-
um og þrep af þrepi upp í 37
stundir þegar skólarnir eiga
að verða orðnir einsetnir.
Staðan er þannig að sá
vinnutími sem kennarar og
nemendur í skólanum eiga að
vinna frá kl. 8-17, dugir okkur
ekki lengur. Í vetur lentum
við í verulegum vandræðum
vegna þessa og hlutirnir gengu
reyndar ekki alveg upp. Fyrir-
komulagið er þannig að neme-
ndur verða að borða í kennslu-
stundum og það skerðir auð-
vitað þann tíma sem við
höfum til kennslu. Það var
talað um hér áðan að það þyrfti
sex kennslustofur til að leysa
þetta vandamál, en það vantar
einnig stofur fyrir t.d. sér-
kennslu. Þetta er svona gróf
skilgreining á því sem bregð-
ast þarf við fyrir næsta vetur
til þess að leysa þessi mál. Ég
ætla ekki að blanda mér í þær
deilur sem uppi hafa verið, en
ég vona innilega að það takist
sátt um góða lausn. Ákveðnar
línur hafa verið lagðar og
framtíðin verður að skera úr
um það hvernig þessum mál-
um verður háttað, en það er
mjög mikilvægt að ekki verði
gripið til bráðabirgðalausna
sem verða til frambúðar. Við
þekkjum það allt of vel héðan
frá Ísafirði og víðar, að bráða-
birgðaráðstafanir freista okkar
í erfiðri fjárhagsstöðu, sem
verða svo til áfram. Ef þið
gangið um húsnæði grunn-
skólans í dag og skoðið
skipulagið, hvernig ein hug-
myndin um úrlausn hefur tek-
ið við af annarri og málin
gjarnan ekki kláruð, þá blasir
við sú sorgarsaga sem starfs-
fólk og nemendur grunnskól-
ans hafa þurft að búa við um
alllangt skeið og ég vona að
þeirri sorgarsögu ljúki sem
allra fyrst,“ sagði Kristinn
Breiðfjörð.
Hvað voru sexmenning-
arnir hræddir við?
Eiríkur Finnur Greipsson
sagðist ekki skilja umræðuna
um húsnæðismál Grunnskól-
ans. „Ég skildi hana þó að
ákveðnu marki þegar ég
heyrði í Smára Haraldssyni í
útvarpinu í gær. Hann taldi
nauðsynlegt að slá umræðuna
um Norðurtangann út af borð-
inu strax, vegna þess að við,
hinir almennu borgarar, hefð-
um ekki vit á þessum málum
og að þau sem eru í sveitar-
stjórninni hefðu mesta vitið á
þessu. Við hinir almennu
borgarar, eigum bara ekkert
að fá að ræða þennan valkost.
Þess vegna langar mig til að
vita hvort við megum almennt
tala um valkost eitt. Ég skil
ekki hvers vegna lá svo á í
gær að kasta þessu út af borð-
inu. Mitt mat er það að
offorsið sem þarna er á ferð-
inni og forræðishyggja sex-
menninganna sé í anda þess
sem verið er að leggja niður í
ráðstjórnarríkjunum. Getum
við ekki leyft fólkinu að tala
um þessa hluti? Hvað voruð
þið þessir sexmenningar
hræddir við? Af hverju mátt-
um við ekki koma á þennan
fund og greina frá skoðunum
okkar í þessu máli?,“ sagði
Eiríkur Finnur m.a., og kallaði
eftir útskýringum sexmenn-
inganna.
Jón Reynir Sigurvinsson,
sem tók þátt í vinnu starfshóps
um húsnæðismál Grunnskól-
ans, var kynntur af Kristjáni
Haraldssyni, fundarstjóra,
sem Guðfinnsson. Jón Reynir
tók það ekki óstinnt upp, en
taldi það vera orðinn plagsið
meðal sjálfstæðismanna að
fara rangt með nöfn. Jón
Reynir sagði síðan:
„Eiríkur Finnur spurði hvort
ræða mætti tillögu eitt. Ég
velti þeirri spurningu reyndar
fyrir mér líka og mér datt í
hug að þegar við höfum rætt
um tillögu eitt, þá höfum við
nefnt Norðurtangahúsið
Sundstræti númer 42. Það
hvarflaði að mér í dag og í
gær, hvort við ættum kannski
að kalla þetta Hitt húsið. Það
virðist nefnilega kveikja í svo
mörgum ef Norðurtanginn er
nefndur á nafn og menn verða
svo vanstilltir. Ég legg því til
að hérna á fundinum tölum
við um Hitt húsið,“ sagði Jón
Reynir sem las síðan siða-
reglur Lionsmanna sem hann
taldi holla lesningu fyrir þá
sem efuðust um heilindi
starfshópsins og starfsmanns
hans, Rúnars Vífilssonar.
Enginn hugsar um
hagsmuni barnanna
Sigrún Gerða Gísladóttir er
starfandi skólahjúkrunarfræð-
ingur við Grunnskóla Ísafjarð-
ar og er menntaður heilbrigð-
isfulltrúi. Hún sagðist ekki
fyrr hafa fundið sig knúna til
þess að blanda sér í umræðuna
um húsnæðismálin vegna
þess að henni hafi fundist
umræðan ómálefnaleg. „Þeg-
ar hinsvegar umræðan er orðin
svo ómálefnaleg að hagsmun-
um barna, sem ég ber ábyrgð
á og á að tryggja vellíðan
þeirra, er stefnt í voða, þá
finnst mér rétt að styðja mál
skólastjóra um nauðsyn úr-
lausnar þessara mála.“
Sigrún fullyrti að enginn
væri að hugsa um hagsmuni
barnanna, nema skólastjórinn
og starfshópurinn sem skip-
aður var til að skoða lausnir í
húsnæðismálum Grunnskóla
Ísafjarðar. Í umræðunni hafi
menn gleymt málefninu og
lagt áherslu á eitthvað allt ann-
að, sem kæmi málefninu ekk-
ert við. Hún hvatti bæjaryfir-
völd til að virkja einstakling-
inn við ákvarðanatöku í stað
þess að beita valdníðslu og
til að hlusta á vilja foreldra,
því þeir einir kynnu að meta
þarfir barna sinna.
„Mér finnst staða þessara
mála mjög sorgleg. Valkostur
eitt er að mínu mati það sem
væri börnunum fyrir bestu,
vegna þess að þau verða
skattgreiðendur framtíðar-
innar og munu bera lántöku-
þyngslin, en ekki þeir sem
verða farnir. Það hefur verið
spáð 25% fækkun fólks á
Vestfjörðum á næstu 10 árum.
Af hverju? Hefur gæfuleysi
okkar sjálfra í ýmsum málefn-
um eitthvað með það að gera?
Við verðum að halda okkur
við efnið sem er hvað börn-
unum okkar er fyrir bestu. Það
eykur menntun og gæði henn-
ar og ekkert annað skiptir
máli,“ sagði Sigrún Gerða.
Fer Kristján Þór að vinna
í Sundlaug Flateyrar?
Sigurður Hafberg gagn-
rýndi bæjarfulltrúa Framsókn-
arflokksins og taldi hann sýna
flokksfélögum sínum ókurt-
eisi.
„Við framsóknarmenn
héldum aðalfund á mánudag-
inn þar sem ég bar fram tillögu
um að Framsóknarflokkurinn
boðaði til fundar með fram-
sóknarmönnum til að ræða
þessi mál eftir að málið hefði
verið kynnt fyrir okkur hér í
kvöld. Mér hefði fundist það
lágmarks kurteisi af bæjarfull-
trúa Framsóknarflokksins að
hann yrði við þessari ósk
aðalfundarins, en hann hefur
því miður ekki séð sér það
fært.“ Sigurður taldi að íbúar
Ísafjarðarbæjar hlytu að krefj-
ast röksemda fyrir mismun á
byggingarkostnaði skólahús-
næðis upp á fleiri hundruð
milljónir króna og taldi það
liggja í augum uppi að sex-
menningarnir ætluðu sér ekki
að bjóða sig fram aftur. „Og
svona rétt í lokin, af því að ég
veit að Kristján Þór er nú at-
vinnulaus, þá vantar mig
starfsmann í Sundlaug Flat-
eyrar á morgnana, sem er
mjög vel launað starf,“ sagði
Sigurður Hafberg.
Bæjarstjórnin
hefði splundrast...
„Það hefur verið ljóst síðan
í haust að um Norðurtangann
næðist ekkert samkomulag,
hvorki meðal bæjarbúa eða
meirihluta bæjarstjórnar. Patt-
staða hefur ríkt í þrjá mánuði
og ekkert hefur gerst. Við er-
um enn á þessum fundi, föst í
Norðurtangamálinu. Það er
mín afstaða að slá þurfi Norð-
urtangann út af borðinu til að
hægt sé að fara að vinna að
skólamálunum af fullum
krafti,“ sagði Kristinn Jón
Jónsson, bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins. Hann fullyrti
að bæjarstjórnin hefði splund-
rast þótt kaup Norðurtangans
hefðu verið samþykkt.
Þórunn Gestsdóttir hefur sagt upp starfi sínu sem aðstoðarmaður bæjarstjóra. Við hlið
hennar sitja Magnea Guðmundsdóttir, sem nú hættir sem forseti bæjarstjórnar, og Halldór
Halldórsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfirðinga.
Tryggvi Guðmundsson, formaður
Golfklúbbs Ísafjarðar skrifar
Styðjum Auðunn!
Golfíþróttin er til-
tölulega ung íþrótta-
grein hér á Vest-
fjörðum og við höfum
ekki enn eignast
keppnismenn í golfi í
allra fremstu röð á
landinu. Okkar efni-
legasti golfleikari í dag
er Auðunn Einarsson,
sem er 22 ára Ísfirð-
ingur og keppir fyrir
Golfklúbb Ísafjarðar.
Auðunn er bæði
hæfileikaríkur og
metnaðargjarn íþrótta-
maður eins og hann á
ætt til. Hann er nú á
förum til fjarlægs
lands um þriggja
mánaða skeið þar
sem hann mun æfa
golfíþróttina undir
leiðsögn golfkennara.
Markmið hans er að
verða einn af bestu
golfmönnum landsins
og er þessi ferð liður
að því markmiði.
Þar sem þetta
ferðalag er dýrt og
Auðunn hefur enga
fjársterka aðila á bak
við sig er honum
nauðsyn á að fá
einhverja fjárhags-
aðstoð. Ég vil fyrir
hönd Golfklúbbs
Ísafjarðar biðja alla,
sem vilja styðja
framgang þessarar
skemmtilegu og hollu
íþróttar í sinni heima-
byggð, að leggja
eitthvað af mörkum til
að styðja við bakið á
piltinum. Það þarf ekki
að koma mikið frá
hverjum og einum. Ef
2.000 til 5.000 krónur
koma frá hverjum
stuðningsmanni, getur
það ráðið úrslitum um
að Auðunn geti fjár-
magnað þessa ferð.
Golfklúbbur Ísafjarð-
ar hefur opnað reikn-
Auðunn Einarsson.
ing í Íslandsbanka,
Ísafirði, nr. 1700 (banki
556, hb. 26, nr. 1700),
þar sem stuðningsmenn
geta lagt inn framlög
sín. Undirritaður tekur
einnig við framlögum á
skrifstofu sinni að
Hafnarstræti 1,
Ísafirði.
Með fyrirfram þökk,
Tryggvi Guðmunds-
son, formaður G.Í.