Bæjarins besta - 03.12.1997, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997
Við getum naumast látið
okkur dreyma um að vinna
leik gegn Litháen eða Króatíu
eða Bosníu-Herzegóvínu.
Möguleikar okkar eru helst
gegn Eistlandi. En landsliðið
okkar núna er það sterkasta
sem við höfum átt lengi.“
Ameríski körfuboltinn
– Nú er mikið horft á
ameríska körfuboltann hér á
Íslandi. Manni virðist hann
vera allt öðruvísi og reglurnar
allt aðrar...
„Það er kannski ekki rétt að
segja að reglurnar séu allt
öðruvísi, en áherslurnar eru
aðrar.“
– Eru þær áherslur að þínum
dómi betri en þær sem tíðkast
í Evrópu? Verður körfuboltinn
hér eins og ameríski boltinn
áður en langt um líður?
„Þetta er að færast hvort að
öðru. Það er áætlun í gangi
hjá FIBA (Körfuknattleiks-
sambandi Evrópu) og NBA
um að samræma reglurnar.
Helsti munurinn er að það er
leyfð meiri harka í NBA-
boltanum. Leikmenn þar eru
einnig líkamlega sterkari.
Reglurnar eru aftur á móti í
raun og veru þær sömu. Í NBA
er þriggja stiga línan lengra í
burtu, teigurinn öðruvísi og
þess háttar smáatriði.“
Niðurlag
Við Guðni þjálfari höfum
farið úr einu í annað í spjalli
okkar. Upp á svalirnar í
Jakanum berast hróp og köll
neðan úr salnum, þar sem
Zeljko Sankovic er að þjálfa
knattspyrnumenn framtíðar-
innar á Ísafirði. Og ummæli
Guðna um tengslin milli
árangurs í íþróttum og námi
vekja hjá undirrituðum ljúfar
minningar og söknuði bland-
nar um unga sundfólkið í
Vestra, sem hann kenndi í
Menntaskólanum á Ísafirði
fyrir tíu-tólf árum. Þar var ekki
aðeins um að ræða afreksfólk
í sundi sem fór á fætur til
æfinga fyr ir allar aldir á
morgnana áður en haldið var í
skólann, heldur var ástundun
og samviskusemi í námi og
raunar allur lífsstíllinn til sér-
stakrar fyrirmyndar.
Hlynur Þór Magnússon.
Ísafjörður
Aðventutónleikar verða
haldnir í Ísafjarðarkirkju í
kvöld, 3. desember, kl.
20:30. Þar kemur í fyrsta
skipti fram opinberlega, kór
Framhaldsskóla Vestfjarða
sem starfað hefur í tvo mán-
uði. Í kórnum eru 27 af nem-
endum skólans. Þrettán ein-
söngvarar koma fram og eru
þeir flestir að spreyta sig í
fyrsta skipti, auk þess sem
þrír kórfélaga leika á fiðlu,
flautu og selló.
Stjórnandi kórsins er Guð-
rún Jónsdóttir og meðleikarar
á hljóðfæri eru þau Sigríður
Ragnarsdóttir og Jónas Tóm-
asson.
Aðgangur á tónleikana er
ókeypis og vonandi sjá sem
flestir sér fært að koma og
hlýða á fjölbreytta jóladagskrá
í upphafi aðventu.
Nýr kór Framhaldsskóla Vest-
fjarða heldur aðventutónleika
Kór Framhaldsskóla Vestfjarða ásamt Guðrúnu Jónsdóttur og Sigríði Ragnarsdóttur.
Meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar fallinn
Bæjarstjóri og sviðsstjó
ar hafa sagt upp störfu
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri tilkynnir blaðamönnum
uppsögn sína.
Nú er liðin rétt vika frá
hinum afdrifaríka bæjarstjórn-
arfundi í bæjarstjórn Ísafjarð-
arbæjar sem leiddi til falls
meirihluta Sjálstæðisflokks
og Alþýðuflokks. Síðan hafa
hlutirnar gerst hratt, en upp-
hafið má rekja til þriðjudags í
síðustu viku þegar sex bæjar-
stjórnarmenn, Sigurður R.
Ólafsson, Jónas Ólafsson,
Kolbrún Halldórsdóttir, Krist-
inn Jón Jónsson, Kristján
Freyr Halldórsson og Smári
Haraldsson, fóru fram á auka-
fund í bæjarstjórn daginn eftir,
þar sem sexmenningarnir
samþykktu tillögu Sigurðar R.
Ólafssonar um að kaupum á
Norðurtangahúsunum yrði
hafnað. Á fundinum var sam-
þykkt tillaga sexmenninganna
auk Guðrúnar Á Stefáns-
dóttur, um að skipaður yrði
starfshópur fimm bæjarfull-
trúa, einum frá hverjum lista,
og skyldu fulltrúar koma til-
nefningum á framfæri í síðasta
lagi 1. desember.
Þá var og samþykkt svo-
hljóðandi tillaga Kolbrúnar
Halldórsdóttur.
„a) Leitað verði eftir leigu-
húsnæði til bráðabirgða til að
mæta þeim skorti á kennslu-
húsnæði sem fyrirsjáanlegur
er á næsta ári, þar til nýbygg-
ing verði tekin í notkun. b)
Kannað verði hvort ekki sé
hagstæðara að byggja við
Skólagötu - Austurveg og
uppfylla lóðamál skólans með
uppkaupum á Aðalstræti 32
og loka Austurvegi fyrir um-
ferð við Aðalstræti.
Verði b-liður ekki fær: c)
Starfshópi verði falið að hefja
viðræður við forystu ÍBÍ um
flutning á knattspyrnuvöllun-
um á Torfnesi á ný svæði í
Tungudal, samkvæmt aðal-
skipulagi. d) Umhverfisnefnd
verði falið að láta gera deili-
skipulag af Torfnessvæðinu,
þar sem gert verði ráð fyrir
skólabyggingu, sundlaug og
jafnvel leikskóla í tengslum
við skólann. e) Framkvæmd
verði samkeppni um alútboð
á skólabyggingu fyrir efstu
bekki Grunnskólans, með
möguleika á stækkun, verði
það talinn kostur síðar meir
að flytja allan grunnskólann á
einn stað. f) Samkeppnin liggi
fyrir í mars-apríl 1998. Stefnt
skal að því að húsnæðið verði
tilbúið skólaárið 2000-2001.
g) Þessum framkvæmdum
verði mætt með framlögum
úr bæjarsjóði og lántökum,
þar sem leitað verði tilboða í
fjármögnun á heildarkostnaði
framkvæmdarinnar.“
Valdníðsla og
ófagleg umfjöllun
Á bæjarstjórnarfundinum
lagði Þorsteinn Jóhannesson
fram bókun þar sem hann lýsti
furðu sinni og jafnframt von-
brigðum með framkomu sex-
menninganna, „vegna þess
gönuhlaups að fara fram á
aukafund í bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar. Vitandi það að
almennur kynningarfundur
með íbúum Ísafjarðarbæjar
hefur verið boðaður á morgun
fimmtudaginn 27. nóvember,
leyfa ofantaldir bæjarfulltrúar
sér þvílíka valdníðslu, að
keyra þetta mál í gegn í
bæjarstjórn án þess að það
hafi fengið þar faglega um-
fjöllun.“ „Þessi framkoma er
ofantöldum bæjarfulltrúum til
vansa. Þetta hlýtur að skoðast
sem blaut tuska framan í andlit
kjósenda, já, framan í nem-
endur og starfsfólk Grunn-
skóla Ísafjarðar, sem vissu-
lega munu ekki gleyma slíkri
framkomu í nútíð og framtíð.“
Kristján Freyr Halldórsson
lagði á fundinum fram tillögu
um að bæjarstjórn Ísafjarðar-
bæjar samþykkti að fresta
afgreiðslu húsnæðismála
Grunnskóla Ísafjarðar til
næsta bæjarstjórnarfundar, en
tillagan var felld með sex at-
kvæðum gegn fimm.
Eftir fundinn lýstu oddvitar
meirihlutaflokkanna því yfir í
fjölmiðlum að meirihlutinn
væri ekki sprunginn. Annað
kom þó í ljós daginn eftir þeg-
ar þrír bæjarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins, Þorsteinn
Jóhannesson, Magnea Guð-
mundsdóttir og Halldór Jóns-
son, boðuðu til blaðamanna-
fundar þar sem þau tilkynntu
endalok meirihlutans.
„Við undirritaðir bæjar-
fulltrúar af D-lista Sjálfstæð-
isflokksins í bæjarstjórn Ísa-
fjarðarbæjar teljum að á fundi
bæjarstjórnar í gærkveldi hafi
myndast nýr meirihluti í bæj-
arstjórn Ísafjarðarbæjar. Sam-
þykktir meirihlutans ganga
þvert gegn samþykkt fulltrú-
aráðsfundar sjálfstæðisfélag-
anna í Ísafjarðarbæ sem og
sannfæringu okkar í þessu
máli. Við lýsum allri ábyrgð á
þessum samþykktum á hend-
ur hinum nýja meirihluta og
teljum mikilvægt að hann taki
þegar í stað á sig framkvæmd
þeirra tillagna sem knúnar
voru í gegn með valdníðslu á
umræddum fundi.“
Svo hljóðar upphaf bréfs
sem bæjarfulltrúarnir þrír
sendu Sigurði R. Ólafssyni,
bæjarfulltrúa Alþýðuflokks-
ins á fimmtudaginn. Á blaða-
mannafundinum greindu þeir
frá innihaldi bréfs síns til
Sigurðar og lýstu skoðunum
sínum á málinu í heild. Þeir
telja að dæmin sanni að
ákvarðanir í stórum hags-
munamálum, sem teknar hafi
verið á tilfinninganótum, hafi
reynst bæjarfélaginu dýr-
keyptar. Þær valdi því að
framkvæmdafé bæjarins hafi
verið ráðstafað að stórum
hluta langt fram í tímann. Það
alvarlegasta í stöðunni sé að
nú er ekki aðeins tekist á um
fjármál bæjarins, heldur fram-
tíðaruppbyggingu grunnskóla
sveitarfélagsins. Með því sé
vegið að einum af hornstein-
um framtíðar sem hvert sam-
félag byggi á.
Skuldir bæjarsjóðs aukast
um 500 milljónir króna
Á blaðamannafundinum
greindi Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar,
frá því að hann hefði fyrr um
daginn, í bréfi til Þorsteins
Jóhannessonar formanns bæj-
arráðs, sagt upp starfi sínu og
jafnframt óskað eftir lausn frá
störfum sem fyrst. Hann til-
greindi síðan ástæður fyrir
uppsögninni.