Bæjarins besta - 03.12.1997, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1997 11
ór-
m
Það var kl. 15:30 á fimmtudaginn sem þau Halldór Jónsson, Magnea Guðmundsdóttir og Þorsteinn Jóhannesson til-
kynntu um endalok meirihlutasamstarfs Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks.
„Sú samþykkt sem var gerð
um húsnæðismál Grunnskól-
ans á Ísafirði á fundi bæjar-
stjórnar í gærkveldi gengur
þvert á þau grundvallarsjónar-
mið sem ég tel að hafa beri að
leiðarljósi í störfum sveitar-
stjórnarmanna. Hún hefur að
engu álit fagmanna, starfs-
fólks skóla og fulltrúa foreldra
og tekur ekkert tillit til tillagna
og samþykkta fræðslunefndar
sem er bæjarstjórn til ráðu-
neytis um málefni grunnskól-
ans. Svo undarlegt sem það er
hefur bæjarstjórn ennfremur
að engu eigin samþykktir sem
gerðar voru með 10 samhljóða
atkvæðum fyrir nokkrum vik-
um. Síðast en ekki síst þá er
með samþykkt tillögunnar
neitað að horfast í augu við
bágan fjárhag bæjarfélagsins
og áhrif fyrirhugaðra fram-
kvæmda á framtíð bæjarsjóðs
Ísafjarðar og getu hans til að
rækja þær skyldur sem lög og
vonir íbúa setja honum. Reik-
na má með að samþykkt til-
lögunnar muni hafa í för með
sér a.m.k. 500 milljóna króna
skuldaaukningu bæjarsjóðs á
3 árum, eða úr u.þ.b. 1200
milljónum króna í 1700 millj-
ónir.
Að mínu áliti hefur því bæj-
arstjórn með ákvörðun sinni í
gærkveldi stefnt málefnum
Grunnskólans á Ísafirði í
tvísýnu sem og fjárhag sveit-
arfélagsins. Sú ákvörðun
stendur en ég treysti mér ekki
til, samvisku minnar vegna,
að vinna að framgangi sam-
þykktar sem ég er sannfærður
um að gengur gegn hagsmun-
um bæjarfélagsins og mun að
sjálfsögðu axla ábyrgð á þeirri
afstöðu minni.“
Kristján Þór sagðist ekki
hafa sinnt starfi bæjarstjóra
Ísafjarðarbæjar eingöngu til
þess að hafa af því atvinnu,
heldur til að vinna af sann-
færingu að framfaramálum
fyrir sveitarfélag sitt. Hann
hafi aldrei unnið að sveitar-
stjórnarmálum með öðru hug-
arfari og hygðist ekki taka upp
annað vinnulag. „Þar sem ég
tel brýnt að íbúum, einkum
foreldrum og nemendum,
verði sem fyrst gefin svör um
hvers megi vænta, tel ég
farsælast að aðrir axli ábyrgð
á framgangi tillögunnar en
ég,“ sagði Kristján Þór.
Sorgaratburðir sem færa
skólamálin aftur um mörg ár
„Í mínum huga voru það
sorgaratburðir sem áttu sér
stað í gær því ég er sannfærður
um að þeir muni færa skóla-
mál okkar aftur um mörg ár.
Ég tel einnig að með upp-
sagnarbréfi Kristjáns Þórs
Júlíussonar höfum við misst
einn þann besta bæjarstjóra
sem setið hefur á Ísafirði í
gegnum árin. Þetta fólk sem
samþykkti tillöguna í gær
hefur að hluta til talað um að
það væri að hætta í bæjar-
málapólitíkinni. Ég velti þeirri
spurningu upp hvort þarna sé
hópur fólks, sem er á leið út
úr bæjarmálunum, að taka
eina stærstu fjárfestinga-
ákvörðun í sveitarfélaginu, án
þess að ætla sér að axla ábyrgð
á því,“ sagði Þorsteinn Jó-
hannesson.
Búist er við að uppsögn
Kristjáns Þórs verði samþykkt
á bæjarstjórnarfundi á morgun
og hann fái lausn frá störfum
þá þegar. Þá munu Magnea
Guðmundsdóttir, forseti bæj-
arstjórnar, og Þorsteinn Jó-
hannesson, formaður bæj-
arráðs, láta af störfum sínum
og nýr meirihluti skipa fulltrúa
sína í þau.
Á borgarafundinum um
kvöldið bar svo enn til tíðinda,
en þar var greint frá því að
Rúnar Vífilsson, skóla- og
menningarfulltrúi, og Þórunn
Gestsdóttir, aðstoðarmaður
bæjarstjóra, hefðu sagt upp
störfum sínum vegna óánægju
með framvindu húsnæðis-
mála grunnskólans. Fjallað er
um borgarafundinn annars
staðar í blaðinu.
Ársfundur Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Fyrirhugaðar hækkanir Lands-
virkjunnar verði dregnar til baka
Fyrsti ársfundur Samtaka
sveitarfélaga á köldum
svæðum var haldinn á Hótel
Sögu á dögunum, en þar var
samþykkt ályktun þar sem
þess er krafist að fyrir-
hugaðar hækkanir á gjald-
skrá Landsvirkjunar verði
dregnar til baka. Skorað er
á iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra að beita sér fyrir aukn-
ingu niðurgreiðslna á raf-
orku til húshitunar og minnt
er á þann mikla mun sem er
á orkukostnaði til húshitun-
ar milli þeirra sem nýta raf-
orku og hinna sem hafa að-
gang að hagstæðum hita-
veitum. Fullyrt er í ályktun-
inni að með hækkunum á
gjaldskrám Landsvirkjunar
muni þessi munur aukast
enn. Varað er við beinni
tengingu raforkuverðs og
byggingarvísitölu þar sem
hækkun á raforkuverði leiði
til hækkunar vísitölunnar.
Á fundinum var einnig
samþykkt ályktun þar sem
skorað er á ríkisstjórnina að
veita árlega umtalsverðar
fjárveitingar til að gera skipu-
lagt átak í jarðhitaleit á köld-
um svæðum. Talið er nauð-
synlegt að Orkusjóður verði
styrktur og honum beitt í þess-
um tilgangi.
Samtök sveitarfélaga á
köldum svæðum eru nú rétt
ársgömul. Í stjórn samtakanna
sitja Ólafur Kristjánsson,
bæjarstjóri í Bolungarvík,
Arngrímur Blöndahl, bæjar-
stjóri á Eskifirði og Magnús
B. Jónsson, bæjarstjóri á
Skagaströnd, sem er formaður
stjórnar.
Fyrsta verk stjórnar var að
fara yfir tilgang samtakanna
og meta hvaða verkefnum
bæri að sinna og í hvaða
áhersluröð. Stjórnin hélt fimm
fundi og átti nokkra fundi með
öðrum um málefni samtak-
anna. Stjórnin átti m.a. fund
með orkumálastjóra til að fá
upplýsingar um starfsemi og
hlutverk Orkustofnunar og
orkusjóðs. Einnig átti stjórnin
fund með fulltrúum orku-
sparnaðarnefndar, en þar kom
fram að stefnt er að átaki til
lækkunar húshitunarkostnað-
ar. Til að ná því markmiði á
að fara í kynningarherferð,
gefa út upplýsingaefni fyrir
húsráðendur og koma á fót
ráðgjafarþjónustu. Jafnframt
verða athugaðir möguleikar á
framkvæmdalánum vegna
orkusparandi viðgerða eða
breytinga á fasteignum. Stjórn
samtakanna lagði áherslu á
að þessum verkefnum verði
hrundið af stað sem allra fyrst
og samtökunum verði gefin
kostur á að fylgjast með fram-
vindu mála og taka þátt í fram-
kvæmd átaksins eins og kost-
ur væri.
Á ársfundinum kom fram í
máli formanns stjórnar, að
samtökin eigi fyrir höndum
ærin verkefni til að ná því
markmiði að gera sjálf sig
óþörf. „Nýjar rannsóknir og
aukin trú manna á að finna
megi jarðhita víða á hinum
köldu svæðum hefur kallað
á nýtt mat á stöðu þeirra
sem hafa talið sig vera úti í
kuldanum í þessu efni. Þá
hafa ný efni og þróun í
lögnum opnað möguleika
á ódýrari kostum á að flytja
heitt vatn milli staða. Sam-
tökin þurfa að vera farvegur
upplýsinga og innbyrðis
samskipta þeirra sem
standa frammi fyrir nýjum
tækifærum og vilja kanna
leiðir til að brjótast út úr
kyrrstöðunni.
Samtökin þurfa að halda
vöku sinni í öllum þeim
hagsmunamálum sem
varða orkuöflun og notkun
hita til húshitunar bæði fyrir
sveitarfélög og íbúa köldu
svæðanna. Miklu máli
skiptir að forsvarsmenn að-
ildarsveitarfélaganna beiti
samtökunum til að vinna
að þeim málum sem upp
kunna að koma.“
Skipbrot
Heldur leggst lítið fyrir bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar þessa
dagana. Húsnæðismál grunnskólans eru komin í hnút. Fyrri
meirihluti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, þeirrar sem kosin var
1996, er farinn frá. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í bænum
eftir tæplega eitt og hálft ár frá kosningum. Þorsteinn
Jóhannesson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn og
formaður bæjarráðs, fór frá því starfi sínu með tvo fylgdarsveina,
en tveir sátu eftir og mynduðu nýjan meirihluta með
framsóknarmanni, alþýðubandalagsmanni, kvennalistakonu og
alþýðuflokksmanni. Í raun standa 5 stjórnmálaflokkar að nýja
meirihlutanum og fulltrúar þeirra trúa því sjálfir að þeir geti
bjargað húsnæðismálum grunnskólans.
Þessi óþarfa uppákoma í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar varð
aðeins hálfu ári fyrir kosningar. Það hefur aldrei gefist vel að
kljúfa flokka og fylkingar. En klofningur tekur til allra flokka
í bæjarstjórn, líka F lista, sem myndaður er af Alþýðubandalagi,
Kvennalista og óháðum. Skylt er að taka fram að Sjálfstæðis-
flokkurinn er hinn eini, sem hefur fleiri en einn
fulltrúa í bæjarstjórn. Ekki er vitað til þess, að
hinir einu fulltrúar annarra stjórnmálaflokka í
bæjarstjórn séu klofnir í afstöðu sinni.
Klofið og klofið
Fróðlegt er að rifja upp hörm-
ungarsögu Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn frá 1990. Þá skiptu
meintir áhangendur hans liði.
Fulltrúaráð flokksins var virt að
vettugi, þá eins og nú. Kolbrún
Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi, sem
tók ekki þátt í prófkjöri flokksins
þá, stóð að framboði Í lista,
ásamt þáverandi bæjarstjóra,
en kom til liðs við D listann.
Eftir tæpt ár klofnaði sameig-
inlegur bæjarmálaflokkur list-
anna, Kolbrún fór frá og hvarf
úr meirihlutanum. Nýr var
myndaður með Sjálfstæðisflokki, Framsókn og Alþýðubanda-
lagi. Frægð hans reis hæst í nýbyggingunni Funa, sorpbrennslu-
stöð.
Hún bauð sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 1994 og
hlaut náð fyrir augum friðelskandi flokksmanna. Sjálfstæðis-
flokkurinn myndaði meirihluta með Framsókn 1994. Entist sá
þar til kosið var á síðasta ári eftir sameiningu 6 sveitarfélaga. Þá
myndaði Sjálfstæðisflokkur nýjan meirhluta, nú í bæjarstjórn
Ísafjarðarbæjar, með Alþýðuflokksmanni. Báðir eru þessir
fyrrverandi samstarfsmenn flokksins í bæjarstjórn frá árinu
1994 í nýjasta meirihlutanum með Kobrúnu. Nú launar hún
stuðninginn í prófkjörinu og enn er klofið.
Athyglisvert er að skoða þátt Kolbrúnar í ísfirskri bæjarpólitík,
sem senn verður frægur að endemum, ekki síst ef leitað er að
því sem eftir hana liggur, annað en það sem hér er talið. Nú vilja
vinstri flokkarnir reyna hana. Kannski á hún fremur samleið
með þeim en Sjálfstæðisflokknum, sem bauð hana fram 1994
og 1996. Á undanförnum árum hefur hún boðið sig þrisvar
fram, einu sinni á Í lista, tvisvar á D lista og klofið tvisvar. Fer
nú að verða fullreynt eða hvað?
Hagur bæjarbúa?
Við hverju er að búast frá hinum nýja meirihluta í bæjarstjórn
sem myndaður er um það eitt að leysa húsnæðismál
grunnskólans? Verður það áframhaldandi klofningur? Megin
verkefni bæjarstjórnar og það brýnasta þessa dagana var ekki
klofningur heldur samþykkt fjárhagsáætlunar ársins 1998.
En sexmenningarnir af framboðslistunum fjórum hafa slegið
tóninn. Undrun sætir að þeir skuli hafa sýnt borgurum
Ísafjarðarbæjar, kjósendum og skattgreiðendum, sem borga
brúsann á endanum, þá lítilsvirðingu að neita þeim um
upplýsingar á borgarafundi, um hvað málið snerist, áður en
þeir ýttu einni lausninni, Norðurtanga, út af borðinu. Ekki veit
sú hegðun á gott, það sem eftir lifir kjörtímabilsins.
Skiptar skoðanir eru á þeirri lausn, sem leiddi til klofnings í
bæjarstjórn. Lágmark var að sýna þá kurteisi að veita þeim sem
mættu á borgarafundinn færi á því að kynna sér málið. Þegar
Kolbrún svaraði aðspurð á fundinum hvers vegna aukafundur
bæjarstjórnar hefði ekki mátt bíða fram yfir borgarafund, að
þau hefðu ekki vitað um hann, púaðu fundarmenn á hana. Það
var auðvitað dónaskapur, en líkast til áttu viðstaddir engin
áhrifarík orð. Þessi var kveðjan frá borgarafundinum til nýja
meirihlutans.
Um bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar mætti hafa mörg orð.
Einhvern veginn er það svo, að ætla mætti að bæjarfulltrúar lifi
mjög einangruðu lífi. Nánast aldrei sést neitt frá þeim á prenti.
Í fjölmiðlum svara þeir þegar eftir er gengið. Þeim virðist ekki
kunn umræða um fólksflótta og þverrandi traust fólks á búsetu
til framtíðar á Vestfjörðum. Hvað með spá Byggðastofnunar
um 25% fækkun íbúa á næstu 10 árum? Í stað þess að byggja
upp traust eyða þeir því. Oft þarf að gera fleira en gott þykir á
þeim bænum, eins og að ná samstöðu. Þeir hafa allir brugðist.
-Stakkur.