Börn og menning - 01.10.2002, Blaðsíða 7

Börn og menning - 01.10.2002, Blaðsíða 7
Farvegur til að segja eitthvað ... með mér. Maður dúkkaði upp heima af hreinni tilviljun þegar mamma hélt sauma- klúbb og var þá einmitt með tíu bækur. Bók- in seldist mjög vel og sumir keyptu hana oft, gáfu alltaf frá sér eintakið þannig að sú hvatning var mjög mikilvæg. Maður hefur hitt rithöfunda, t.d. frá Noregi sem gefa út bók, segjum Ijóðabók sem selst í 50 - 200 eintökum, en enginn i þeirra innsta hring hefur lesið bókina, hvorki mamma þeirra né vinir. Líkurnar á að hitta lesanda eru stjarn- fræðilegar, eins og að hitta tvífara sinn. Ná- lægðin við lesendur er mikilvægur kostur fyrir íslenska höfunda. Þegar maður gefur út Ijóðabók þá sleppur ekki múrarinn frændi manns við að kaupa hana og lesa og annað- hvort fær maður góð viðbrögð eða slæm en það verður þá bara að hafa það. Það var allt eitthvað svo trist Lengi vel var ég bara með húmor eða eitt- hvað svoleiðis í mínum verkum og ég var ekki reiður út af neinu sérstöku og saknaði svosem ekki neins. En svo gerðist allt á sama tíma, ég eignaðist barn og var að vinna í kjallaranum á Árnastofnun við að hlusta á rímur. Þetta var alveg furðulegur heimur sem mjög fáir höfðu kynnst. Þangað fór maður á morgnana, niður í kjallara og hlustaði. Það var mjög draugalegt að vera með gamlar konur í eyrunum allan daginn. Það var ótrú- lega sannur, heill kjarni í öllu sem var þarna. Menn höfðu 1000 ára minni. Ég steig beint úr kjallaranum og fór heim, nýbúinn að eign- ast strákinn og kveikti á FM-957 eða ein- hverju álíka. Þar var allt algjörlega sögulaust, núið allsráðandi og ekkert minni. Finnur Ing- ólfsson var á þessum tíma að segja: „ef við fórnum ekki landinu þá förum við aftur í torfkofana". Raddirnar í torfkofunum voru allar þaðan og mér fannst eins og við hefð- um týnt einhverju, ég fylltist einkennilegri nostalgíu eftir fortíðinni, fannst að við þyrft- um einmitt á meiri fortíð að halda en Finnur var að tala um að fórna landi til að knýja hraðar núið, fá meiri FM-stemningu í loftið. Þetta var allt eitthvað svo bjagað og skrítið. Svo voru þeir að kasta sprengjum á Serbíu, alls konar hlutir sem hrærðu upp í manni. Við vorum í fyrsta skipti þátttakendur í loftárás. Davíð sagði: „Já, við verðum að vera tilbúin að fórna" en við ^ höfum aldrei verið tilbúin að fórna einni einustu krónu til að sprengja neitt. Það var allt eitthvað svo trist og braut gegn öllu sem mér fannst við standa fyrir sem þjóð og mér leið mjög illa yfir þessu. Ég var með einhverjar sögur i smíðum en mér fannst svo mikið fals að fara að framleiða eitthvað bara ofan í maskínuna. Ég fór í sjónvarpsviðtal þegar Bónusljóðin komu út. Þá var verið að safna fyrir Rauða krossinn og við sátum tvö í stúdíóinu, ég með mitt brandaraefni og kona frá Rauða krossinum að safna fyrir hungruð börn. Hún fékk þrjár mínútur en ég fékk korter. Ein- hvern veginn gat ég fundið öllum þessum til- finningum farveg í Bláa hnettinunn. Dagur til að semja barnabók Ég ákvað í rauninni ekki hvernig bók þetta ætti að vera heldur í hvaða bókahillu hún ætti að lenda, í Astrid Lindgren og Mómó hillunni. Og ég sagði við konuna mína og fjölskyldu þegar hún spurði hvort ég ætlaði ekki að fara að tala við útgefanda að ég gæti fundið hann hvar sem væri í heiminum - ég var ótrúlega sannfærður - ég ætlaði að skrifa bók sem yrði endurprentuð í 200 ár, eitthvað sem myndi lifa mig þótt ég skrifaði ekki stakt orð í viðbót. Þetta er mjög skrítið þegar maður hugsar um það svona eftir á. Ég hef aldrei litið þannig á að ég hafi ein- hverjar sérstakar skyldur við barnabóka- menninguna frekar en Ijóðið eða eitthvað annað. Ég skrifaði Bláa hnöttinn inn í þessa bókmenntagrein en ég hef ekki skilgreint mig beinlínis sem barnabókahöfund frekar en Ijóðskáld eða smásagnasmið. Þessi list- grein, að skrifa barnabók var eina formið sem ég gat fundið til að koma ákveðnum til- finningum til skila. I gömlu Sovétríkjunum þegar höfundar vildu segja eitthvað virkilega merkilegt þá neyddust þeir oft til að gera það í gegnum barnabókmenntir vegna rit- skoðunarinnar. Þar fundu þeir farveg til að segja eitthvað sem skipti máli. Maður skynjar einhvers konar gervirit- skoðun í loftinu. Það sem þú vilt segja geturðu ekki sagt í fullorðinsbók því það yrði svo mikil klisja, það er t.d. ekki hægt að segja í full- orðinsbók að allir eigi að vera vinir. Barnabækur eru ekki eins og fullorðinsbækur. Það er kannski aðalatriðið, barnabækurnar eru far- vegur til að segja eitthvað sem skiptir máli. íslensku bókmenntaverðlaunin Mér finnst þetta ágætt fyrirkomulag á ís- lensku bókmenntaverðlaununum að hafa allar bækur í einum potti. Það er ögrandi fyrir barnabókahöfunda að vera í pottinum eða mér fannst það á sínum tíma. Þá var talað um að hafa sérstök barnabókaverðlaun við hliðina á hinum en það var svo mikill hugur í mér að ég taldi að minnsta kosti líkur á að ég gæti fengið bókina metna sem lista- verk á sama hátt og hægt er að bera saman Ijóðabók og skáldsögu í sama flokki. Það voru einhvern veginn þannig straumar í loftinu. Ég taldi mig hafa ákveðna möguleika þegar ég leit yfir sviðið og mig langaði að keppa við Þorstein frá Hamri. Ég held að barnabókahöfundar vilji það. Verðlaunin voru mikilvæg viðurkenning. Þegar ég lít til baka sé ég að þau eru oft veitt fyrir höfundarverk en þarna var ég ekki með nein stórvirki að baki til að slá skjaldborg í kringum mig. Mér fannst þetta mjög skemmtilegt af því ég var í ákveðnu braut- ryðjendahlutverki. Ég held að flestir sem skrifa barnabækur viljí vera metnir til jafns við aðra - vera ekki settir í aðra deild. Um daginn var ég í Winnipeg og talaði við eina manneskju um Híbýli vindanna. Hún sagði mér að lesa Vestur í bláinn eftir Kristínu Steins, að hún hefði fangað andann jafnvel betur en Böðvar. Arfurinn Þegar ég var í íslensku var það arfurinn í Árnastofnun sem heillaði mig mest. Mér fannst synd hvað hann var illa kynntur, bæði

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.