Börn og menning - 01.10.2002, Qupperneq 32

Börn og menning - 01.10.2002, Qupperneq 32
30 Börn og menning Soffía Auður Birgisdóttir íslenskt leikhús og ævintýrahefðin leiklist Varla er hægt að segja að íslenskt leikhús hafi sótt að ráði i hinn mikla brunn þjóð- sagna og ævintýra sem við eigum í ritheim- ildum og fylla mörg bindi í ýmsum þjóð- sagnasöfnum. Þessi efniviður ætti þó að vera nærtækur, sérstaklega þegar verið er að skapa leiklist fyrir börn. Á síðasta leikári brá svo við að settar voru upp tvær barna- leiksýningar sem sóttu efnivið sinn í heim ævintýranna, reyndar ekki íslenskra ævin- týra heldur var leitað á mið evrópskrar hefðar, annars vegar ævintýrasafns þýsku bræðranna Jakobs og Wilhelms Grimm, sem eins og kunnugt er söfnuðu þjóð- sögum og ævintýrum í upphafi nítjándu aldar og gáfu út undir heitinu Kinder- und Hausmárchen (Ævintýri fyrir börn og heim- ili) og hins vegar var sýnd leikgerð af ævin- týrinu um Rauðhettu sem fyrst birtist á prenti á sautjándu öld í bók franska rithöf- undarins Charles Perrault, Contes de ma mére l'Oye (Sögum gæsamömmu). Vannýttur gnægtabrunnur fslensku sýningarnar tvær voru á fjölunum í tveimur nágranna-sveitarfélögum höfuð- borgarinnar; í Hafnarfirði setti leikfélagið Hermóður og Háðvör upp leikgerð Charlotte Boving á Rauðhettu og Leikfélag Kópavogs setti upp sýningu sem nefndist einfaldlega Grimm og var unnin [ spuna af leikhópnum sjálfum undir stjórn Ágústu Skúladóttur. Báðar þessar sýningar hlutu verðskuldað lof og mikla aðsókn og ætti það að vera öðru leikhúsfólki hvatning til þess að nýta þennan sígilda efnivið meira en gert hefur verið og vil ég sérstaklega í því sambandi benda á hinn vannýtta gnægtabrunn hinnar íslensku hefðar. Sammannleg vandamál Ævintýri hafa alltaf heillað börn og virðist þá ekki skipta máli hvenær eða hvar börnin vaxa úr grasi. Ævintýrin eru alþjóðlegt fyrir- bæri og ævagamalt; þau þróuðust um aldir í munnlegri hefð, en ekki var farið að safna þeim saman og skrásetja þau á skipulegan hátt fyrr en í upphafi nítjándu aldar. Þó eru til skráð ævintýri allt frá tímum Forn-Egypta og fáein evrópsk ævintýra- og þjóðsagna- söfn hafa varðveist allt frá fjórtándu öld. Ævintýrið ertalið ein fágaðasta tegund þjóð- sagna, í því fléttast oft listilega saman margir atburðir og orðfærið er víða bæði fjölbreyti- legt og fagurt. Mikið er þó um föst orðatil- tæki um ákveðna endurtekna atburði og sömu sagnaminnin koma fyrir aftur og aftur. Mannlýsingar eru oftast einfaldar; persónur eru ýmist góðar eða vondar, vel eða illa inn- rættar og það eru andstæður góðs og ills sem knýja atburðarásina áfram. í ævintýrinu ríkir hið óhefta hugarflug, það er óbundið stað og tíma og efni þess varðar yfirleitt sammannleg vandamál sem allir geta tengt við sjálfa sig og reynslu sfna. Ekki er gerður greinarmunur á mannheimi og heimi yfir- náttúrulegra afla ( ævintýrunum og allar kröfur um raunsæi eru látnar lönd og leið. Siðfræði ævintýranna er oftast einföld: Þeir góðu uppskera vel en hinum vondu er refsað harðlega. Sameiginleg dulvitund? Það er athyglisverð staðreynd að „sama" ævintýrið er til í fjölda mismunandi tilbrigða á ólíkum stöðum í veröldinni og frá ólíkum

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.