Börn og menning - 01.10.2002, Page 9
Lesendabréf
7
Lesendabréf
Við lúðrablástur og bumbuslátt
Það er alltaf gaman þegar eintak af blaðinu
Börn og menning berst í hús. Ég sé þar svart
á hvítu hve margt er að gerast á sviði barna-
bókmennta á íslandi. Ég sé líka metnaðar-
fulla umfjöllun og þar var síðasta blað engin
undantekning. Þar voru meðal annars erindi
um jólabækurnar sem flutt voru á Súfist-
anum. Ég var mjög ánægð með að fá þau á
prenti til að lesa aftur, góðar greinar, eins og
góðar bækur, verða bara betri við endur-
lestur. Það besta er að greinarnar í Börn og
menning eru oft massívar og ekkert verra að
lesa þær tvisvar eða þrisvar. Þess vegna ráð-
legg ég fólki að geyma blaðið.
Ég held að Börn og menning hafi þegar
haft áhrif á kynningu barnabóka. Eigi að
síður þykir mér það aldrei fá nægilega at-
hygli þegar það kemur út. Svona blaði ætti
að vera tekið með lúðrablæstri og bumbu-
slætti í menningarþáttum fjölmiðla og
barnaþáttum. Um leið og ég vil þakka IBBY
og ritstjóra fyrir gott blað langar mig að
hvetja lesendurtil að liggja ekki á liði sínu við
að breiða út boðskapinn og kynna blaðið
sem víðast. Þannig tryggjum við að grund-
völlur verði áfram fyrir útkomu þess og að
mikilvægum þætti í menningu okkar sé sinnt
sem skyldi.
Adda Steina Björnsdóttir
Bl>3
BORGARBÓKASAFN
REYKJAVÍRUR
Bækur, tímarit, dagblöð, geisladiskar, hljóðbækur,
tungumálanámskeið, myndbönd og margmiðlunarefni.
Eitthvað fyrir alla!
Aðalsafn Grófarhúsi,Tryggvagötu 15,
Borgarbókasafnið í Gerðubergi,
Foldasafn í Grafarvogskirkju, Kringlusafn í Borgarleikhúsinu,
Seljasafn, Hólmaseli 4-6 og Sólheimasafn, Sólheimum 27
www.borgarbokasafn.is
Barnamenningarstofnun
Nokkrir drífandi einstaklingar og félög hér á landi hafa nú bundist samtökum um að hvetja
til þess að sett verði á laggirnar Barnamenningarstofnun í Landsbókasafni íslands-
Þjóðarbókhlöðu. Hlutverk Barnamenningarstofnunar, auk þess að hýsa safn barnabóka,
tímarita og fræðibóka um barnabókmenntir, verður að rannsaka og miðla upplýsingum um
(slenskar barnabókmenntir. Bókakostur er þegar fyrir hendi í Þjóðarbókhlöðunni en efla þarf
vilja ráðamanna þjóðarinnar til að fjármagna stöður og áframhaldandi bókakaup sem
nauðsynleg eru til að halda úti slíkri starfsemi.
Allir einstaklingar sem áhuga hafa á framgangi málsins geta gerst aðilar að félaginu.