Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 11

Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 11
Bimmbirimmbirimmbamm 9 Sig. oq bara Ragnheiður Gestsdóttir hefur lagt sig fram við að bjarga frá gleymsku ákveðnum verðmætum, barnamenningarverðmætum. Þetta eru m.a. gamlar visur, barnagælur, þulur, vers og sálmar. Hún hefur dregið nokkuð af þessu efni saman í þrjár bækur: Klappa saman lófunum sem kom út árið 2000 og inniheldur gamlar barnagælur, Bráðum koma dýrðleg jól sem kom út árið 1998 og geymir jólasöngva og á þessu ári kemur út þriðja bókin, í grænni lautu en þar verður að finna ýmsa söngvaleiki. Ragnheiður sagði frá vinnu sinni við nýju bókina og reifaði skoðanir sínar á hlutverki söngvaleikja á ráðstefnunni í Gerðubergi. „Það verða örugglega margir sem segja: Af hverju er þessi leikur ekki með, hann er svo skemmtilegur - hvernig gastu gleymt þessum, við fórum alltaf í hann! En bókin er bara 24 síður og takmarkað hvað hægt er - og hvað þá fallegt - að troða í hana. Kannski verður hún líka til þess að fleiri grafi upp gamla leiki og komi þeim á framfæri - eða, það sem væri ekki síðra, að einhverjir búi til splunkunýja söngvaleiki - leiki sem byggja á ævafornri hefð, en hafa innihald og orðfæri sem hentar nútímabörnum." Ragnheiður vill með bókinni hleypa nýju lífi í söngvaleikina sem ómuðu hér áður fyrr á leikvöllum og skólalóðum enda eru leikirnir lærdómsríkir og hvetja til taktbundinna hreyfinga: „Ég er sannfærð um að dans- og tónlistariðkun sé einhver besta leiðin - ef til vill sú besta - til að gera sjálfsaga að eðlilegum þætti persónuleikans hjá börnum. Bimmbirimmbirimmbamm Auðvitað hrekkur skammt að fara í nokkra hringdansa, klappleiki eða annað slíkt, en þar getur þó legið ofurlítill vísir að skilningi á því að það er gaman að vinna saman. Ég er þeirrar skoðunar að hver sú stund sem notuð er til iðkunar tón- og dansmenntar í skólum skili sér margfalt aftur í betri anda, meiri afköstum og glaðari börnum - og að aukin áhersla á listmenntun af öllu tagi myndi skila mun meiru en ítroðsla fyrir samræmd próf." Ragnheiður vill meina að á tímum endalausrar samkeppni á öllum vígstöðvum sé gott að fara í leiki þar sem enginn einstakur er sigurvegari og lítil togstreita verði milli liða. „Mig langar að minna á að í söngvaleikjunum er það næsta fátítt að hægt sé yfirleitt að vinna eða tapa, leikurinn felst í því að leika sér. Það er ekkert hægt að vera góður eða lélegur í „Inn og út um gluggann". Það er í hæsta lagi að farið sé í reiptog að loknum leiknum „Fram, fram fylking", annars er leikurinn bara búinn þegar hann er búinn. Mér finnst mikilvægt, kannski mikilvægara - nú í þessu samkeppnisþjóðfélagi sem við höfum skapað okkur - en nokkru sinni fyrr að hægt sé að leika sér án þess að safna stigum, án þess að vinna eða tapa - ég veit ekki hvort áheyrendur eru mér sammála um það." Ragnheiður vill líta á bækur sínar sem myndabækur með vfsum. „í þessum bókum mínum er það ekki bara textinn sem skiptir máli ... Börnin okkar fá yfir sig myndaflóð seint og snemma, það eru myndir alltaf og alls staðar. Fátt eitt stendur þó lengur við en sekúndubrot, flest hverfur jafnskjótt og það sést og skilur lítið eftir. Myndir í bókum sem börnunum eru ætlaðar eru enn sá vettvangur sem kennir þeim að horfa, skoða, meta og spyrja, ekki síður en texti bókanna. Þar er því nauðsynlegt, ekki síður hvað textann varðar, að myndirnar séu ekki einsleitar, að þær geri kröfur, opni leiðir í stað þess að móta einhæfan smekk. Það er mér sem gömlum þátttakanda á þessum vettvangi mikil ánægja að sjá hversu fjölbreytnin hefur aukist í myndskreytingum barnabóka og hvað viðhorf til þeirra er að breytast, en betur má ef duga skal - við þurfum enn að berjast við það hugarfar að myndir f bókum séu skraut, glassúr á kökuna. Myndir eru hluti af innihaldi bókar, ekki umbúðum hennar." Börn læra vísur og leiki af öðrum og stundum getur óskýr framburður og illskiljanleg orð valdið skemmtilegum misskilningi eða kannski bara einkaskilningi á efni vísnanna. Ragnheiður rifjaði upp slíkan einkaskilning frá sinni eigin æsku: „Við lærum kveðskap sem er okkur algerlega óskiljanlegur og sem setur fmyndunaraflið af stað með látum. Ég man ennþá hvernig þau litu út, heimsumbólið og songuðsólið, sem áttu sínar samsvaranir í mynstrunum á útsaumaða teppinu yfir bekknum hans afa. Þetta voru friðsamar skepnur en aftur á móti var meinvillið, sem lá í myrkrinu og beið eftir fórnarlömbum, alveg hræðilega ógnvekjandi. Svo var það hann Horna-Jói gullroðni, rauðhærði strákurinn sem bjó f næsta húsi við okkur á Tjarnarbrautinni, hann átti um sig heila vísu sem gaman var að syngja þótt ég skildi ekki alveg hvernig hann fór að því að blika við lund ... Ég heyrði líka fyrir nokkrum árum um börn sem skildu orð kvæðisins um Hlíðarendakot á alveg einstaklega viðeigandi og þjóðlegan hátt - þau sungu nefnilega: Þegar safnast saman var, sumarkvöldin fjögur." Ragnheiður á hér síðasta orðið. „Ennþá safnast börnin saman á sumarkvöldum, það er sem betur fer ekki skóli allt árið ennþá og stundum eiga þau frí í tómstundastarfinu. Og hver veit, kannski finnst þeim ennþá gaman að dansa og syngja saman, eins og börn hafa alltaf gert og gera alls staðar. Og við, gamla fólkið, heyrum þá óma inn um gluggann til okkar: Hver er að berja, bimbi, rimbi rimm bamm ... Ég vona það, að minnsta kosti." Mynd eftir Ragnheiði úr bókinni í grænni lautu

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.