Börn og menning - 01.04.2003, Side 12

Börn og menning - 01.04.2003, Side 12
Ásmundur K. Örnólfsson Ríma, píma, líma - Ijóð í leikskóla Ásmundur K. Örnólfsson, leikskólakennari, hélt erindi sem aö eigin sögn var einskonar hugleiðing um Ijóðheiminn í leikskólanum eins og hann horfir við honum en ekki fræðileg rannsókn. Ásmundur tók sjálfur saman grein sem hann byggði á erindinu og fer hún hér á eftir. Myndskreytingarnar eru eftir Halldór Pétursson úr Vísnabókinni. Aðalnámskrá leikskóla Þegar Aðalnámskrá leikskóla er skoðuð kemur nokkuð undarlegt í Ijós. Hvergi er minnst á Ijóð! Ekki einu orði! Námssvið leikskólans eru sex samkvæmt námskránni og málrækt er eitt þeirra. Þar er í fáum dráttum kveðið á um hvernig skuli háttað málrækt í leikskóla og bent á nokkra þætti sem sinna skuli. Þótt hvergí sé minnst á Ijóð berum orðum er sagt að áhersla skuli lögð á að kenna börnum kvæði og þulur (sbr. Aðalnámskrá leikskóla 1999, bls. 20). Þulur og kvæði eru það sem leikskólafólk skal hugsa til í málræktinni. Hinn ytri rammi skikkar leikskólann til þess en spyrja má hvort þulur og kvæði nái yfir allan kveðskap. Ljóðið verður þá að rúmast innan kvæðanna, en í þessu greinarkorni verður hugtakið Ijóð notað yfir allt sem er í bundnu máli. Sú skilgreining orkar tvímælis en það látið gott heita hér. Nú má taka það fram að Aðalnámskrá leikskóla er ágætis plagg og höfuðkostur hennar er sá að leikskólanum er skapað frelsi til starfa. Enda sæi ókunnugur það strax að mikið bil er milli tilmæla og framkvæmda í leikskólanum. Það er að segja áherslan á málræktina og þá sérstaklega þulu- og kvæðakennslu er í raun miklu meiri en mætti ráða af Aðalnámskránni. Leikskólinn sýnir málinu ræktarsemi. Hins vegar má ráða af framansögðu að kveðskapur virðist ekki í brennidepli þeirra sem varða leiðina, sérstaklega ef horft er til þess að orðið tölva kemur ellefu sinnum fyrir í námskránni en kvæði tvisvar og Ijóð aldrei. Minnst er á söng tíu sinnum. Tískusveiflur hafa áhrif í leikskólum eins og í öðrum kimum samfélagsins. Sönghefðin Hvernig fer kennslan fram? Blessunarlega má á leikskólastigi haga seglum eftir vindi en hefðin er sterk. Sönghefðin er sterk. Hver kannast ekki við söngelska leikskólakennarann með gítarinn á lofti, steríótýpuna sem hefur verið lífseig í gamni að minnsta kosti. Það er ekkert undarlegt við það að söngurinn er svo fyrirferðarmikill í leikskólunum. Greinarhöfundur hefur reynt að kenna börnum Ijóð og vísur án söngs en það gengur ekki vel - maður hefur af að kenna eina og eina vísu en börnin þreytast fljótt þótt þau séu snögg að læra. Söngurinn skapar einhverja hugsvölun sem gerir það að verkum að börnin eru viljugri að taka þátt og lagið hjálpar þeim eflaust við að muna kvæðin. Um leið verða börnin meiri þátttakendur, þau fá að gera meira. Leikskólakennsla snýst um það að leyfa börnum að gera eitthvað. Þannig gengur vel að kenna börnum lengri kvæði, samanber Kvæðið um fuglana, Maistjörnuna og jólakvæðin öll. Ljóðin sem börnin kunna nema þau oft í tónlistar- og samverustundum leikskólanna og hef ég velt fyrir mér hvort þetta séu „kvenleg" Ijóð! Leikskólakennarar eru nánast allir konur og eðlilega smitast þeirra áhugi til barnanna. Það má velta fyrir sér hvernig staðan væri ef fleiri karlar hefðu starfað í leikskólunum. í fyrra tóku drengirnir við sér í söngnum þegar kom að „Hífum í bræður" eftir Jónas Árnason. Þeir voru snöggir að læra braginn um sjóræningjalífið en höfðu minni áhuga á óskasteinum á fjalli. Rassar! Og hvernig er farið með ferskeytlurnar sem eru margar og flestar gamlar? Jú, svo þær sitji nú sem fastast í höfði barna eru settir á þær rassar! Svokallaðir úmbarassar! Með því að syngja ferskeytlurnar með kröftugu viðlagi upphefst gamanið og punkturinn yfir i-ið fæst með því að klappa sér á lær. Þulurnar eru sérstakar. Þær hafa töfrum líka hrynjandi sem fær börn til að gleyma sér. Þar þarf engan rass eða söngtrix af nokkru tagi. Góð þula stendur ein og sér án stoðtækja en í gegnum tíðina hafa stöku leikskólakennarar notað loðtöflur sér til hjálpar eða búið til hreyfingar með flutningnum. Fróðlegt er að vita hvort einhver hafi

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.