Börn og menning - 01.04.2003, Page 13
Ríma, píma, líma
11
vettrr Sig. oq baVa
kveðið vísur með leikskólabörnum.
Greinarhöfundur er þess fullviss að leik-
skólabörnum þyki gaman að kveða vísur
undir rímnalögum en er sjálfur vita laglaus
svo hann treystir sér ekki til þess.
Rímsögur og gamanljóð
Börnunum finnst alltaf gaman að rímsögum
en það fer mikið eftir þeim sem les hversu
vel næst til barnanna. Þeir sem þekkja vel
til bragfræði (meðvitað eða ómeðvitað)
ná góðu sambandi en hinir ekki. Nokkrar
góðar rímsögur eru til og nægir að nefna
bækur Dr. Seuss Köttinn með höttinn og
Þegar Trölli stal jólunum og Handagúndavél
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Sögur Stefáns
Jónssonar eru nokkuð fjær börnunum nú.
Óðfluga eftir Þórarinn og Sigrúnu Eldjárn
setti nýtt viðmið árið 1991. Nú má bulla
og snúa út úr í Ijóðum fyrir börn. Ljóð
og myndir í bókum þeirra systkina ýta við
hugsun barna, en margt í Ijóðunum er
börnum óskiljanlegt og er það vel. Fullorðnir
eiga að gefa börnum eitthvað að hugsa um.
Bækur af slíku tagi eru líka skemmtilegar
fyrir foreldra og kennara og það skiptir ekki
litlu máli. Böðvar Guðmundsson sendi frá sér
Krakkakvæð't 2002 og er sú bók í þeim anda
sem Þórarinn og Sigrún hafa skapað.
Snúningar
Börn virðast hafa ákaflega gaman af því að
breyta textum. Algengast í þeim stílnum eru
afbakanir af Gamla-Nóa. Hann er næstum
hættur að vera guðhræddur og vís en er
oftast lélegur bílstjóri á kassabíl. Getur verið
að hann tryggi hjá VÍS? Einn angi Ijóðlistar
verður oftar fyrir barðinu á útúrsnúningum
en annar kveðskapur; það eru jólalögin.
Ætli galsi jólasveinanna hafi komið þeim í
þennan farveg? Þeir ruglast sjálfir (of oft)
og mörgum þykir sniðugt, sérstaklega
börnunum. Þau taka svo upp þráðinn þegar
kemur heim af jólaballinu. Hvernig má
annað vera en börnin breyti textum þar sem
fullorðna fólkið er sjálft að því? Börnum er
sagt til skiptis að jólasveinarnir gangi um gólf
eða gátt, stafurinn gildur eða gullsleginn og
þeir flengdir eða hýddir!
Munum samt að vísur þurfa ekki að vera
skiljanlegar. Leikskólafólk gengur sumt full
langt í því að færa kvæði nær skilningnum,
samanber „Upp á hól stend ég og kanna"!
Þau sungu fram i mars í Hagaborg:
„Upp á stól stend ég og afi.
Níu nóttum fyrir jól er ég búinn í baði".
Munum einnig að útúrsnúningar eru sköpun
en ekki bjánaskapur... einvörðungu.
Svo eru til nokkrir „leikskólagangar"
(samanber húsgangar) sem börnin læra
hvert af öðru. Nægir þar að nefna „Grýla
píla, appelsína ..." og „Gulur, rauður, grænn
og blár, svartur, hvítur, fjólublár. Brúnn,
bleikur, banani, appelsína talandi. Gulur...".
Oftast er Grýla píla tengd vegasaltinu og er
leikur með söng; eiginlega söngleikur.
Ríma, píma, líma
Elstu leikskólabörnin eru mörg með það á
hreinu hvað Ijóð er. Þau segja: Ljóð er að
ríma. Iðulega fylgir í kjölfarið romsan ríma,
píma, líma ... misjafnlega löng. Rímið er það
sem gerir Ijóð að Ijóði í huga ungra barna.
Þau hafa mismikinn sans fyrir rími en eru öll
sammála um það að Ijóð er rím. Einfalt.
Það er ákaflega mikilvægt þroskamerki
að tileinka sér rím en það gerist í kringum
fjögurra ára aldurinn. Þá átta börn
sig á málhljóðunum og skipta þeim í
merkingargreinandi einingar. Hægt er að
þjálfa upp skilninginn á málinu með bullrími
og rími við öll tækifæri. Þessi kunnátta er
afar míkilvæg fyrir lestrarnám.
Lítil skáld
Það þykir eðlilegt að afhenda börnum pappír
og málningu og hjálpa þeim við myndlistina.
Á sama hátt á að vera sjálfsagt að hjálpa
börnum að yrkja. Kenna þeim að móta Ijóð
úr málinu. Þótt greinarhöfundur hafi ekki
mikið ástundað Ijóðagerð með börnum í
leikskóla er algengt að hún sé iðkuð í elsta
hópnum.
Allra best er að beina Ijóðunum inn á
einfalda braut fyrst. Stuttar setningar með
rími svo allir búi til Ijóð. Gott að byrja þannig,
eða að nokkrir geri Ijóð saman. Þegar það er
búið er umfram allt skylda hins fullorðna að
ýta víð hugsun barna. Gefa þeim eitthvað
að hugsa um í dagsins önn, t.d. með því að
persónugera hluti eða gefa dauðum hlutum
líf eða hlutgera lifandi. Með öðrum orðum
að kynna börnum stílbrögð Ijóðsins. Börn
hafa svo auðugt ímyndunarafl að það getur
leitt til skemmtilegra og óvæntra pælinga.
Óhlutbundin hugtök vefjast fyrir þeim svo
maður er blessunarlega laus við ástina í
Ijóðum þeirra en getur frekar átt von á Ijóði
um plastbrúsa.