Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 17

Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 17
Einn og tveir og hoppa 15 Lesendabréf_________________ Börn og menning - áhugaverður vettvangur Fyrir rúmlega tveimur áratugum þegar undirritaður var að leita að umfjöllun um bækur fyrir börn á íslandi var ekki úr miklu að velja. Dagblöð fjölluðu ekki mikið um barnabókmenntir og það sem birtist var frekar ómarkvisst og tilviljanakennt. Fyrir fólk sem þurfti að annast val á bókum í bókasöfn og til gjafa var ekki víða hægt að leita fanga. Á þessu hefur orðið mikil breyting. Dagblöðin fjalla að minnsta kosti um allar frumsamdar íslenskar barnabækur og segja má að sú umfjöllun sé í góðum farvegi. Þá hafa komið til sögunnar samtök eins og íslandsdeild IBBY, sem eru vettvangur þar sem fjallað er um bækur fyrir börn. Útgáfa tímaritsins Börn og menning er snar þáttur í þessari starfsemi og þar er fjallað um BI3 BORGARBÓKASAFN REYKJAVÍKUR Bækur, tímarit, dagblöð, geisladiskar, hljóðbækur, tungumálanámskeið, myndbönd og margmiðlunarefni. Eitthvað fyrir alla! Aðalsafn Grófarhúsi, Tryggvagötu 15, Borgarbókasafnið í Gerðubergi, Foldasafn í Grafarvogskirkju, Kringlusafn í Borgarleikhúsinu, Seljasafn, Hólmaseli 4-6 og Sólheimasafn, Sólheimum 27 www.borgarbokasafn.is strauma og stefnur í barnabókmenntum auk þess sem fjallað er um einstaka höfunda og verk þeirra. Tímaritið er í raun vitnisburður um grósku á sviði barnabókmennta og þegar þeir sem fylgst hafa með gegnum tíðina velta fyrir sér þeim breytingum sem orðið hafa í bókaútgáfu á síðustu tveimur áratugum þá er óhætt að fullyrða að bæði gæði og fjölbreytni barna- og unglingabóka hafa aukist gífurlega. Margir mjög athyglísverðir höfundar hafa komið fram og aðrir sem höfðu haslað sér völl hafa líka haldið áfram að skrifa góðar og áhugaverðar bækur. Líklega hefur mesta breytingin átt sér stað á þessu sviði í íslenskri bókaútgáfu. Einnig hefur aukið fjölbreytnina í barnabókaútgáfu að höfundar sem lengi hafa skrifað bækur sem fyrst og fremst eru ætlaðar fullorðnum lesendum hafa skrifað eina og eina barna- eða unglingabók. Það er mikilvægt að hlúa að þessu öllu og það er meðal annars gert með aukinni umfjöllun og með því að gefa út tímarit á borð við Börn og menningu. Gildi þess er ómetanlegt og leiðirtil faglegrar umfjöllunar sem vekur vonandi áhuga fleira fólks á þessum mikilvæga þætti í menningu landsmanna, þ.e. að fá börn til að lesa bækur og þá fyrst og fremst góðar bækur. Sigurður Helgason

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.