Börn og menning - 01.04.2003, Síða 19

Börn og menning - 01.04.2003, Síða 19
Tónleikur 17 Ég sem fullorðinn einstaklingur þekki litróf tilfinninganna sem tengjast því að koma fram fyrir aðra og tengi því ýmislegt sem sellóleikarinn gengur í gegnum við mína eigin reynslu sem síðan fær mig til að hlæja. Fjögurra ára dóttir mín lifði sig inn í hvert atriði og hló dátt að öllum óvæntum uppákomum. Eftir á ræddi ég við hana um leikritið og þá kom í Ijós að hún gat skýrt frá mörgum atriðum en hún virtist ekki tengja þau saman í einn samhangandi þráð. Hinsvegar skildi tíu ára systir hennar að sellóleikarinn var að reyna að halda tónleika. Hún bætti við: „En hann var svolítið utan við sig" og „Það fór alltaf eitthvað úrskeiðis." Athugasemdir hennar: „En það fór allt vel að lokum... tónleikarnir enduðu" benda til þess að hún skildi efnisþráðinn sem höfundar verksins lögðu upp með. Mér þótti athyglisvert að fyrir þessa fjögurra ára gömlu hindraði takmarkaður skilningur á „söguþræði" hana ekki í að njóta verksins til fulls. Hún sat í fanginu á mér og talaði við sjálfa sig á meðan, eða réttara sagt var eins og hún væri að leggja sellóleikaranum orð í munn: „Æ! Hvað var nú þetta?" og „Hei, það slokknaði á píanóinu!" en verkið er leikið án orða eins og áður kom fram. Að víkka tónlistarheim barna Verkið tekur ekki nema 40 mínútur í flutningi og er því hæfilega langt fyrir unga áhorfendur. Það er hugsanlega rétt hjá aðstandendum Möguleikhússins að betra sé að áhorfendur hafi náð 10 ára aldri ef bjóða á verkið til sýníngar fyrir heila bekki eða árganga en í fylgd með fullorðnum tel ég að yngri börn frá allt að 3ja ára aldri geti notið þess að sjá Tónleik. Fyrir þá sem hyggjast fara með börnin sín á þessa skemmtilegu sýningu er óhætt að mæla með því að hlusta fyrst á Svítu nr. 1 í G-dúr eftir J. S. Bach sem er eitt þekktasta einleiksverk sögunnar fyrir selló. Flutningurinn á þessu verki er rauði þráðurinn í gegnum sýninguna þó nokkur önnur tónverk komi við sögu. Þetta er þó ekki nauðsynlegt. Tónleikur getur allt eins vakið áhuga barnanna á þessu sígilda verki fyrir selló og er tilvalíð að nýta sér þennan möguleika til að víkka tónlistarheim barna sinna. Skemmtileg hljóðfærakynning Eitt af því sem kom upp í hugann á þessari sýningu er hversu skemmtileg kynning hún er á hljóðfærinu. Börn hafa allt of fá tækifæri til að kynnast öðrum hljóðfærum en þeim sem eru algengust á heimilum fólks. Hljóðfærið selló er yfirleitt ekki aðgengilegt börnum og hljómar mjög sjaldan eitt sér á tónleikum. Tónlelkur veitir því áhorfendum dýrmætt tækifæri til að kynnast þessu hljóðfæri. Það er svo sannarlega ástæða til að hvetja fleiri hljóðfæraleikara tíl að kynna hljóðfæri sitt á jafn skapandi og skemmtilegan hátt og Stefán Örn gerir með Tónleik. Höfundur er lektor í tónmennt við Kennaraháskóla íslands. Helga Rut hefur doktorspróf í menntunarfræði tónlistar (music education) og er móðir Iðunnar Ýrar 10 ára, Elínu Sifjar 4 ára og Emblu Rúnar 1 árs. Það er hugsaniega rétt hjá aðstandendum Möguleikhússins að betra sé að áhorfendur hafi náð 10 ára aldri ef bjóða á verkíð til sýningar fyrir heila bekki eða árganga en í fylgd með fullorðnum tel ég að yngri börn frá allt að 3ja ára aldri geti notið þess að sjá Tónleik.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.