Börn og menning - 01.04.2003, Síða 21

Börn og menning - 01.04.2003, Síða 21
Köttur í stígvélum og krakkar á spariskóm 19 viðkunnanlegur og hléturmildur kóngur sem gleypir við lygasögum kattaríns. Loks var Jakob Þór Einarsson kattarlegur köttur, ráðsnjall og slóttugur sem kom öllu í kring fyrir húsbónda sinn og bjó þar með sjálfum sér áhyggjulaust ævikvöld. Stigvélaði kötturinn er því í flestu tilliti leikhús í betra lagi og leyndi sér ekki að foreldrum í salnum leiddist ekki að rifja upp kynni við kisa. Sýningin er ekki nema rúmur hálftími sem er akkúrat mátuleg lengd fyrir smáfólkið; leiknum var hætt þá hæst hann stóð og públikúmið hélt heimleiðis reynslunni ríkara, en þáði áður ís fyrir prúðmennsku og stillingu meðan á sýningu stóð. í lokin varð ég heyrandi nær er stígvélaði kötturinn ræddi við sparibúna hnátu yfir íspinna um ævintýrið sem nú var til lykta leitt. - Ég á kött! sagði leikhúsgesturinn. - Nú, getur hann talað eins og ég? spurði stígvélaði kötturinn. - Nei, svaraði hún, döpur í bragði, hann segir bara mjá, mjá ... - En ef þú settir hann í svona leðurstígvél ... lagði kötturinn til. - Já, kannski svaraði hún hugsi og skundaði svo heim á leið, kannski til að breyta bangsa í malarasvein og kisu í slægan og úrræðagóðan aðstoðarmann. Af því að í öllum barnaherbergjum eru, þegar allt kemur til alls, starfrækt fyrirmyndar leikhús. Höfundur er ritstjóri og áhugaleikari Lestrarmenning í Reykjanesbæ Vika bókarinnar 23. - 29. apríl Vika bókarinnar var haldin í sjöunda skiptið síðustu vikuna í apríl og annað árið í röð var hún helguð barnabókum. Markmiðið er að kynna barnabækur sem víðast og gefa veglegan afslátt af völdum bókum. Að venju var mikið að gerast í kringum börn og bækur þessa daga, t.d. var lesið úr barnabókum á bókasöfnum og í bókabúðum. Fræðsluráð Reykjavíkur veitti sín árlegu barnabókaverðlaun í Höfða 22. apríl sl. og Borgarbókasafnið birti úrslit í Bókaverðlaunum barnanna en það voru 6-12 ára gömul börn sem greiddu atkvæði í þeirri keppni. (lok vikunnar kom út samtímis á öllum Norðurlöndum barnaljóðabókin Það er komin halastjarna sem birtir Ijóð eftir tíu norræna höfunda. í bókinni er eitt Ijóð eftir hvert skáld og henni fylgir geisladiskur þar sem skáldin lesa upp á sínu tungumáli. Það er Bókasamband fslands sem stendur fyrir viku bókarinnar en I því eru eftirtaldir aðilar: Bókavarðafélag íslands, Félag bókagerðarmanna, Félag íslenskra bókaútgefenda, Félag íslenskra bóka- og ritfangaverslana, Hagþenkir, Rithöfundasamband (slands, Samtök gagnrýnenda og Samtök iðnaðarins. ( Reykjanesbæ hefur verið hleypt af stokkunum viðamiklu verkefni sem nefnt hefur verið Lestrarmenning ( Reykjanesbæ. Verkefnið er mjög umfangsmikið og er tilraun til að vinna gegn minnkandi lestrarkunnáttu barna upp að sextán éra aldri. Verkefninu er stjórnað af stýrihópi bæjaryfirvalda, skólastjóra leik- og grunn- skóla og fræðslustjóra. Þrír starfshópar munu sjá um tiltekið aldursstig; 0-6 ára, 6- 10 ára og 10-16 ára og hver þeirra verður í samstarfi við verkefnisstjóra. Frumkvæði að verkefninu á starfsfólk Skólaskrifstofu Reykjanesbæjar en áætlun þess var unnin í nánu samstarfi við kennara í leik- og grunnskólum bæjarins. Slíkt verkefni hefur ekki verið áður framkvæmt hér á landi og er því um frumkvöðlastarf að ræða. Lestrarmenningu í Reykjanesbæ var hleypt af stokkunum í viku bókarinnar í aprílmánuði með því að leikskólabörnum var færð bókagjöf með leiðbeiningum til foreldra um hvernig stuðla megi að örari málþroska og temja sér góðar lestrarvenjur.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.