Börn og menning - 01.04.2003, Page 24
22
Börn og menning
bókmeniitir
Norrænu barnabókaverðlaunin
Norrænu barnabókaverðlaunin eru verðlaun sem samtök norrænna skólasafnskennara standa fyrir á hverju ári.
Verðlaunin hafa verið veitt í tæp 20 ár eða allt frá árinu 1985 og eru heiðursverðlaun. Hægt er að veita rithöfundi eða
myndskreyti verðlaunin og eru þau veitt fyrir annaðhvort einstakt/einstök verk eða fyrir höfundarferil. Þetta eru einu
samnorrænu barnabókaverðlaunin og hefur íslenskur rithöfundur aðeins einu sinni hlotið þau en það var árið 1992
þegar Guðrún Helgadóttir fékk þau fyrir bók sína Undan illgresinu
Tilnefningar áriö 2003
Fulltrúi íslands að þessu sinni er Kristín
Steinsdóttir en hún er tilnefnd fyrir sögu
sína Engill I vesturbænum. Kristín Steinsdóttir
(f. 1946) er kennari að mennt en síðustu
áratugina hefur hún snúið sér alfarið að
ritstörfum. Hún hefur skrifað fjölmargar
barna- og unglingabækur auk þess að hafa
samið vel á annan tug leikrita ásamt systur
sinni, Iðunni Steinsdóttur.
Engill I vesturbænum er mjög óhefðbundin
saga um ungan dreng, Ask, sem býr í blokk
í vesturbænum með móður sinni. Hann fer
sínar eigin leiðir og ímyndunarafli hans eru
engin takmörk sett. Fólkið í kringum hann
breytist auðveldlega í persónur eins og til
dæmis Línu langsokk, varúlf, galdranorn og
engil svo eitthvað sé nefnt. Sjónarhornið er
alltaf hjá drengnum og lesandi fylgir honum
í gegnum ákveðið þroskaferli. Sögurnar eru
byggðar þannig upp að hver opna er sjálfstæð
frásögn eða kafli en jafnframt er heilstæður
söguþráður í gegnum alla bókina.
Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndskreytir
bókina og fyrir það hlaut hún íslensku mynd-
skreytiverðlaunin, Dimmalimm, í desember
síðastliðinn en það var í fyrsta skipti sem þau
voru veitt.
Færeyjar
Færeyskir skólasafnskennarar tilnefna
Sólrúnu Michelsen (f. 1948) fyrir tvær síðustu
bækur hennar sem heita Hin útvaldi útg. 1999
og Geislasteinar útg. 2002 og myndskreytt af
Edward Fuglo sem hlaut verðlaunin árið 2001.
Báðar þessar bækur eru fantasíubækur og
fjalla um drenginn Kol og stúlkuna Ayu sem
bæði búa yfir sérstökum mætti og verða þar
af leiðandi mjög mikilvægar persónur í því litla
samfélagi sem þau búa í. Sólrún hefur skrifað
tvær aðrar bækur fyrir börn og eru það
sjálfsævisögulegar bækur um uppvöxt hennar
á litlum stað í Færeyjum.
Svíþjóð
Svíar tilnefna Maj Bylock (f. 1931) fyrir
höfundarferil en hún á að baki lengsta
rithöfundarferil þeirra sem tilnefndir eru í ár
og er jafnframt aldursforsetinn í hópnum.
Maj Bylock er menntaður grunnskólakennari
og starfaði við kennslu til ársins 1961 en þá
sneri hún sér alfarið að ritstörfum. Fyrstu
bækur hennar voru einmitt kennslubækur í
sögu og trúarbragðafræðum. í bókum Maj
Bylock kemur mjög oft fram áhugi hennar
á sagnfræði og gerast margar sögurnar á
æskuslóðum hennar í Vármland á 17. og
18. öld og liggur mikil rannsóknarvinna þar
að baki. Einnig hefur hún skrifað nokkrar
bækur þar sem sögusviðið er víkingatíminn.