Börn og menning - 01.04.2003, Side 26

Börn og menning - 01.04.2003, Side 26
24 Börn og menning Ármann Jakobsson Töfrar og áhættuatriði Bækurnar um glæpadrenginn Artemis Fowl eru tvær. Artemis Fowl kom út árið 2001 en Artemis Fowl: Samsærið (á frummálinu: Artemis Fowl: The Arctic Incident) árið 2002. Voru þær jafnharðan þýddar á islensku. Höfundur bókanna er írinn Eoin Colfer en Guðni Kolbeinsson snýr þeim á íslensku. Á hvíta tjaldið Eoin Colfer var 35 ára þegar hann sló í gegn með fyrri bókinni. Hann er írskur kennari sem hafði unnið með börnum með námsörðugleika en skrifaði bókina í naumum frístundum, klukkustund á dag. Colfer hafði áður sent frá sér nokkrar barnabækur sem ekki hlutu viðlíka athygli. Að sögn skrifaði hann fyrstu bókina um Artemis Fowl ekki síst sjálfum sér til skemmtunar. Hann náði sér síðan í duglegan umboðsmann og seldi útgáfuréttinn um allan heim fyrir lítil 700 þúsund pund í fyrirframgreiðslu. Miramax hefur þegar keypt kvikmyndaréttinn. Ekki þarf að koma á óvart að bækurnar séu á leið á hvíta tjaldið því að formgerð þeirra ber því glöggt vitni að Colfer hefur séð fyrir sér kvikmynd eftir bókinni frá upphafi. Báðar hefjast þær þannig á tiltölulega heilsteyptu upphafsatriði sem greinilega hentar vel sem inngangur í bíómynd (fyrir inngangstónlistina og titlanal). Annað atriðið gerist í Hó Sí Mín borg en hitt í Murmansk. Bæði ættu vel heima í mynd um James Bond þó að hasarinn sé aðeins minni. Fantasíubylgjan James Bond er raunar augljós innblástur höfundar almennt, miklu fremur en Tolkien, Harry Potter eða Philip Pullman. Aftur á móti hefur Colfer augljóslega hagnast á fantasíubylgjunni sem nú setur svip sinn á bókmenntir og afþreyingarmenningu almennt. í bókunum um Artemis Fowl eru tveir heimar, annars vegar mannheimur en hins vegar álfheimar neðanjarðar. Þar eiga heima öll þau yfirnáttúrulegu kvikindi sem til eru í þjóðsögum. Þau hafa nú þróað með sér samfélag þar sem tæknin er mun þróaðri en í mannheimum - og siðferðið raunar líka, a.m.k. hjá þeim góðu álfum sem fara með stjórnina. Álfar Eoin Colfer eiga lítið sameiginlegt með álfum úr íslenskum þjóðsögum eða í Hringadróttinssögu. Þeir eru hreinræktaðir írskir álfar (leprechauns), smávaxnir og oddmjóir. Oft er líka vísað til írskra þjóðsagna um slíka búálfa sem dragnast um með pott af gulli. En neðanjarðar eru líka svartálfar, hrekkálfar, tröll og einn hrokafullur kentár sem er tæknisnillingur samfélagsins og sækir margt til Q-deildarinnar í James Bond. Raunar minnir hann líka á tölvusnillinga sem maður hittir á förnum vegi og vita vel af mikílvægi sínu og snilld. Mikilvægasta stofnunin í þessu samfélagi eru Bestu útrásar- og áhlaupssveitir lögreglunnar, Faradeild, skammstafað BÚÁLF (á ensku er skammstöfunin LEPrecon). Orðið búálfur er þannig á misskilningi byggt. Þannig er handanheimurinn ein heild, öfugt við mannheima. Tröllin, dvergarnir, svartálfarnir og góðu álfarnir í BÚÁLF eru í einum graut, virðast skilja hvert annað meira og minna og síðan er yfirstjórn yfir öllu saman sem tryggir að menn komist ekki að tilvist neðanjarðarheimsins, með hugglöpum og minnisútþurrkun (sem minnir dálítið á bíómyndína Men in Black). Textavensl sagnanna um Artemis Fowl eru þannig fremur við bíómyndir en bókmenntir. Það er ekki síst áherslan á tæknibrellur sem sögurnar sækja til James Bond en raunar eru þær fullar af hasaratriðum sem falla eins og flís við rass að hvíta tjaldinu. I þeirri fyrri er meginsögusviðið raunar kastali Fowl-ættarínnar og þannig verður andinn í bókinni dálítið eins og í „gotneskum" 19. aldar. Sú seinni gerist hins vegar bæði á freðmýrum Rússlands og neðanjarðar og þar

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.