Börn og menning - 01.04.2003, Blaðsíða 31

Börn og menning - 01.04.2003, Blaðsíða 31
Krakkakvæði 29 Myndlýsingar Áslaugar Jónsdóttur stærðarhlutföllum. Fjölbreytilegar persónur styrkja skynjun lesandans á kvæðunum eins og til dæmis í bálknum „Hundaþing". Fjölmargar hundategundir, hver með sinn persónuleika, öðlast líf í teikningunum sem aftur gera lestur kvæðisins enn áhrifameiri. Ein besta opnan í bókinni er fyrri hluti „Ömmukvæðis". Þar er textinn settur upp á myndrænan hátt sem endurspeglar merkingu hans. Leiknum er haldið áfram f teikningu af skrímslum tölvuleikjanna. Form textans er endurtekið í myndbyggingu teikningarinnar. Á þennan hátt ná myndir og texti að tala saman og skapa heild. Önnur vel heppnuð opna er myndlýsing við kvæðið „Ef". Þar er fjarstæðukenndri hugmynd um tuttuguogníu tær, áttatíu augu og sjö tungur komið í snjallt form sem minnir á bestu skrímslateikningarnar í handritunum gömlu. Staðsetning og flæði Vel er unnið með flæði miilli síða. Fiskur úr „Sjávarháska" gægist fyrir horn, á næstu síðu, inn á „Hundaþing". Þar tekur forviða hundur á móti honum. Lóðatík reynir að forða sér undan hundi yfir á næstu síðu og sumir fuglarnir ná að sleppa lifandi frá kettinum og komast á næstu opnu. Þessi leikur með form bókarinnar ýtir undir hugarflug lesandans um það hvert raunverulegt rými síðunnar sé, að hver opna sé ákveðinn heimur en heimarnir nái stundum að skarast. Staðsetning mynda á opnum, ásamt myndbyggingu, er einnig úthugsuð - til dæmis þar sem amma stendur í dyragætt sem staðsett er yst við hægri kant opnunnar svo hurðin og blaðsíðan vinna saman - hurðinni er lokað um leið og flett er. Rými myndanna er einnig í takt við bókarformið eins og á „Hundaþingi". Þar er stærsti hundurinn nálægt kili, sem eykur á tilfinningu fyrir þrívídd opnunnar. [ kvæðinu „Heimsmynd" er brugðið upp einfaldri en skarpri mynd af flóknum hugmyndum. Þar næst að skapa heild í andrúmslofti texta og mynda. Hversdags- leikinn er notaður til að að velta heimsmyndinni fyrir sér; jörðin er pönnukaka Höfundur er myndlistarmaður og deildarstjóri fornáms Myndiistaskóians í Reykjavík 09 yfííÖ ox eða fótbolti og skálin er himinhvolf sem myndgert er á klókan og einfaldan hátt. Þannig er farið um víðan völl í Krakkakvæðum, textinn grípandi og tilgerðarlaus og vel gerðar myndir notaðar á hugmyndaríkan hátt. Hvergi er kastað til höndunum og frágangur er hnökralaus. Þetta er vönduð Ijóðabók fyrir börn og fjallar um samtíma þeirra og umhverfi.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.