Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 32

Börn og menning - 01.04.2003, Qupperneq 32
30 Börn og menning Kristín Ólafs Milljón holur MiUjón holur kom út í Bandaríkjunum árið 1998 en 2002 á íslandi. Verkinu var strax vel tekið í Bandaríkjunum, bæði af lesendum og gagnrýnendum. Það hefur verið margverðlaunað þar í landi og hlaut m.a. Newberry Award 1999. Höfundurinn, Louis Sachar, er fæddur 1954 og hefur gefið út á annan tug barnabóka. Sú fyrsta kom út árið 1979. Sachar lagði fyrst stund á hagfræði en síðar lögfræði og starfaði sem lögfræðingur í átta ár að námi loknu. Hann hefur nú skriftir að aðalstarfi. Hann á eina dóttur sem hann notar stundum sem fyrirmynd að „litlu systur" í sögum sínum. Sachar hefur það fyrir reglu að ræða ekki við neinn um bækurnar sem hann er með i smíðum, ekki einu sinni fjölskyldu sína. í Milljón holum segir frá hinum ógæfusama Stanley Yelnats sem er ofurseldur örlögunum en þau voru ráðin þegar einskisnýti syndumspillti grísaþjófurinn hann langalangafi hans sveik loforð sitt við einfætta sígaunakonu. Hún launaði honum lambið gráa og lagði bölvun á ættina. Allar götur síðan hefur ólánið elt fjölskylduna - allt þar til Stanley fyrir undarlega tilviljun getur bætt fyrir brot langalangafa síns. Stanley og glæpurinn Stanley Yelnats er einkabarn foreldra sinna. Pabbi hans er uppfinningamaður sem vinnur að því að endurnýta íþróttaskó. Eitt sinn er Stanley á gangi undir vegabrú og fær íþróttaskó fljúgandi í fangið. Hann trúir því að þetta sé merki frá Guði og að nú sé pabbi hans alveg að klára uppfinninguna. En Stanley er ekki svo heppinn. Saga hans þykir ekki trúverðug og er hann dæmdur fyrir stuld. Stanley og fjölskylda fá að velja á milli þess að hann fari í fangelsi eða til betrunarvistar í Grænavatnsbúðunum. Það hljómar ekki svo illa. Stanley hlakkar eiginlega til. Hann hefur aldrei farið í sumarbúðir og er lagður í einelti í skólanum svo hann vonast til að eignast þarna vini og prófa eitthvað nýtt. Grænavatnsbúðirnar Þegar Stanley kemur í búðirnar reynist ekki vera neitt vatn þar þrátt fyrir nafnið. Hitinn og þurrkurinn er nánast óbærilegur, að ekki sé minnst á matinn, sem allur kemur úr dósum því þarna er ekkert rafmagn og stopular samgöngur. I Grænavatnsbúðunum dvelja afbrotadrengir sem í betrunarskyni eru látnir grafa stórar holur á hverjum degi í þurran vatnsbotninn. Þeir fara á fætur um miðja nótt til að geta grafið áður en sólin kemst hæst á loft því þá er nánast óbærilegt að vera úti við. En þetta er ekki allt. Drengirnir þurfa að passa sig á alls kyns kvikindum sem vilja bíta þá og eru mishættuleg. Guldoppótta eðlan með svörtu tennurnar og hvítu tunguna er þeirra verst, því sá sem verður fyrir biti hennar á kvalafullan dauða vísan. Stanley kemst fljótt að því að ákveðin goggunarröð ríkir í drengjahópnum. Sá svalasti fær fyrstur vatn þegar þeim er gefið að drekka og hann hefur ákveðið vald innan hópsins. Stanley veit ekki hvernig röðin er tilkomin, hvort hún fer eftir því hver hefur verið lengst í búðunum eða hve alvarlega glæpi þeir hafa verið dæmdir fyrir. Hann fær varla einu sinni að vita hvað strákarnir heita því allir nota þeir viðurnefni og vilja ekki svara öðru. Á yfirborðinu er tilgangurinn með holugreftrinum sá að láta strákana bæta fyrir afbrot sín. Auk þess á moksturinn að styrkja þá líkamlega og andlega svo þeir líti bjartari augum á framtíðina eftir

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.