Börn og menning - 01.04.2003, Síða 35

Börn og menning - 01.04.2003, Síða 35
Úr smiðju höfundar 33 og það væri nú ekki nóg að vera rauðhærð, freknótt og grindhoruð þó að ekki bættist tunglsýkin ofan á. Þetta var beinlínis geðveiki og austur á fjörðum voru sagðar ófagrar sögur um þá sem haldnir voru tunglsýki. Allt voru það konur og þær áttu að vera margar í Frakklandi. Þetta varð til þess að árum saman horfði ég bara á tunglið i framhjáhlaupi, svona eins og óvart, ekki af því að ég væri að bíða eftir því. Aldeilis ekki . . . en mikið saknaði ég þess. Löngu seinna rann upp fyrir mér að sólarsýki var í raun miklu algengari en tunglsýki. Menn góndu upp í sólina seint og snemma og hálfdrápu sig í leit að brúnku en enginn talaði um það sem geðveiki. ( þessum hugleiðingum fann ég tunglið mitt aftur og það urðu miklir fagnaðarfundir. Nálægðin við náttúruna í ýmsum myndum er afgerandi þegar kemur að því að skapa. Mér er nauðsynlegt að geta komist ofan í fjöru með stuttum fyrirvara, hlustað á brimið og séð fuglana berjast í vindinum eða horft upp í fjall sem er ekki allt of langt í burtu. Esjan og ég erum að verða góðir vinir eftir að Akrafjallið var besti vinur árum saman. Bjólfur og Strandartindur hafa samt alltaf forgang og þó ég komi ekki til Seyðisfjarðar árum saman veit ég upp á hár hvernig þeir eru þvf þeir búa inni í mér. Ég loka bara augunum og sæki þá. Ég þarf að geta horft upp í himininn á öllum tímum dags og komist ég í gott augnsamband við Snæfellsjökul yfir flóann á fallegum degi getur það þýtt ótrúleg vinnuafköst langt fram á nótt. Þegar ég skrifaði Kleinur og karrí (1999) var ég löngum stundum úti í gamla vitanum í fjöruborðinu á Akranesi. Þar var ég ein með máfum, selum og vindinum sem gnauðaði. Ég tók með mér fistölvuna og sitjandi á hækjum mér náði ég miklu sambandi bæði við jökulinn og skessuna Jóku sem kúrir undir Jókubungunni í Akrafjalli. Það var samt ekki fyrr en með Engli í vesturbænum (2002) sem Snæfellsjökull heimsótti mig yfir flóann og sat á eldhúsbekknum þegar ég kom heim einn góðan veðurdag. En þá vorum við líka orðin svo vel kunnug. Þegar ég hugsa mig betur um nærist ég á fleiru en náttúrunni því að fólkið í kringum mig er ekki síður nauðsynlegt. Ég hef oft líkt mér við ryksugu sem fer út í bæ og sogar í sig stemningar, andlit, brot úr samtölum, skrýtnar uppákomur ofl. Heima tæmi ég ryksugupokann og flokka innihaldið, nota sumt en annað ekki og stundum ekki fyrr en eftir mörg ár. Það liggur þá í salti og er svo tekið fram löngu seinna. Kannski ætti ég ekki að nota ryksug þetta hefur ekkert með hreingerningu að gera. Þvert á móti. Ég er einfaldlega að virða lífið fyrir mér. Segull væri fallegri líking, segull sem dregur til sín áhrif og fangar andlitin sem ég þarf að sjá. Segull eða ryksuga - kannski er þetta hártogun. Það sem skiptir máli er að ég vinn úr umhverfinu á minn hátt og það ratar síðan inn í bækurnar. Ferðalög eru líka mikilvæg. Þannig rann upp fyrir mér hvernig bókin Kleinur og karrí ætti að vera þegar ég var komin austur til Indlands 1998 en þetta efni var lengi búið að þvælast fyrir mér án þess að ég næði utan um það. ( þessu sambandi langar mig að nefna hlut sem ég álít mjög mikilvægan. Það er litla bókin sem ég hef alltaf með mér á langferðum og stundum innanbæjar líka. í hana rata hughrifin sem ég verð fyrir og þangað er seinna hægt að leita og fletta upp. í skólaheimsóknum spyrja krakkar alltaf um kaupið, hvort maður sé giftur og eigi börn, hvort höfundur hafi teiknað myndirnar í bókina og hvernig sé hægt að fá svona hugmyndir - svo að eitthvað sé nefnt. Mitt vandamál hefur ævinlega verið það að ég fæ allt of margar hugmyndir þannig að það getur verið erfitt að gera upp á milli. Ég hélt að þetta myndi lagast með aldrinum en ef eitthvað er versnar það ... Ætli ég að skrifa eitthvað jafnast ekkert á við að fara út á meðal manna eða út í náttúruna en umfram allt að vera með skilningarvitin upp á gátt. Oftar en ekki skjóta þá alls kyns hugmyndir upp kollinum og ekki kemst nema lítið brot af þeim í bók. En það er önnur saga og þá sögu á ekki að segja hér!

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.