Börn og menning - 01.04.2003, Blaðsíða 41
Þegar mamma kemur heim
39
Sýning á norrænum
myndskreytingum á Ítalíu
í byrjun desember 2002 var sýningin
"lllustration from Northern Europe" opnuð
í Galleria Civica í Bolzano á ftalíu. Þar voru
sýnd verk margra af helstu myndskreytum
Norðurlanda, svo sem verk Lillian Brogger og
Roald Als frá Ðanmörku, Leena Lumme og
Kristiina Louhi frá Finnlandi, Kim Hiorthoj og
Hilde Kramer frá Noregi og Gunna Grahs og
Lasse Sandberg frá Svíþjóð. íslenskir teiknarar
áttu einnig fulltrúa á sýningunni, en það voru
þau Áslaug Jónsdóttir, Guðrún Hannesdóttir,
Halldór Baldursson, Nína Björk Bjarkadóttir
og Sigrún Eldjárn.
Sýningin var á vegum ítölsku menningar-
miðstöðvarinnar Associazione Culturale
Nuova Teatrio í Feneyjum. Á þeirra snærum
hafa verið haldnar fleiri viðamiklar sýningar
af þessu tagi, meðal annars með myndum
frá Austur-Evrópu og Bandaríkjunum.
Teatrio-menningarmiðstöðin var stofnuð árið
1988 og hefur síðan stuðlað að framgangi
myndskreytilistarinnar með listviðburðum,
námskeiðum, samkeppnum og kynningum
á listgreininni.
Myndarleg sýningarskrá var gefin út í
tilefni sýningarinnar og hefur hún að geyma
vandaðar litprentanir af flestum myndum
sem þar. voru, ásamt upplýsingum um
sýnendur. Þar er einnig að finna greinar eftir
listfræðinga frá hverju Norðurlandanna og
frá Ítalíu.
Sýningunni í Bolzano lauk í byrjun febrúar
2003, en áformað er að setja sýninguna upp
á fleiri stöðum á Italíu og í Evrópu. í tengslum
við sýninguna voru haldin námskeið og
fyrirlestrar og hlaut hún góða umsögn og
athygli.
Til hamingju
/
iar í Bolzano.
Bókaverðlaun barnanna
Bókaverðlaun barnanna voru afhent á sumardaginn fyrsta á afmælishátíð Borgarbókasafns
Reykjavíkur í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Verðlaunin fengu þær bækur sem 6-12 ára
börn telja bestar meðal þeirra sem komu út árið 2002. Borgarbókasafn Reykjavíkur hefur
haft frumkvæði að þessu verkefni og voru kjörseðlar og veggspjöld með kápumyndum af
barnabókum síðasta árs send í alla skóla í Reykjvík og víðar. Einnig var hægt að kjósa í öllum
deildum Borgarbókasafns og á heimasíðu safnsins. Alls tóku um 2700 börn þátt ( valinu.
Marta Smarta eftir Gerði Kristnýju hlaut flest atkvæði frumsaminna íslenskra bóka og Kafteinn
Ofurbrók og innrás ótrúlega asnalegu eldhúskerlinganna utan úr geimnum (og uppreisn
afturgengnu nördanna úr mötuneytinu) eftir Dav Pilkey í þýðingu Bjarna Fr. Karlssonar
fékk flest atkvæði þýddra bóka. Þetta er í annað skipti sem þessi verðlaun eru afhent en
að þessu sinni var einnig verið að halda upp á afmæli Borgarbókasafns en það var opnað á
sumardaginn fyrsta fyrir 80 árum sem þá var 19. apríl.