Börn og menning - 01.04.2003, Síða 42

Börn og menning - 01.04.2003, Síða 42
40 Börn og menning Bókakaffi 26. febrúar sl. héldu Islandsdeild Ibby og Síung Bókakaffi í Súfistanum þar sem markmiðið var að varpa Ijósi á hvernig íslenskir rithöfundar væru að vinna úr fornsögunum okkar um þessar mundir. Mörgum hefur fundist undarlegt hve tregur landinn er til að sækja í þennan fjársjóð sem t.d. frændur okkar á Norðurlöndum og Bretar hafa verið ófeimnir við. Nú er ýmislegt sem bendir til að eitthvað sé að losna um þessa tregðu og vonandi eigum við eftir að sjá mörg og ólík verk sem munu vekja áhuga unga fólksins okkar á þessum dýrmæta menningararfi. Brynhildur Þórarinsdóttir tók fyrst til máls og sagði frá tilurð bókar sinnar Njálu sem gefin var út af Máli og menningu fyrir síðustu jól. Að eigin sögn tók hún fram Brennu-Njáls sögu í útgáfu Hins íslenska fornritafélags og breytti henni í barnabók. Brynhildur sagði að reynsla hennar hefði sýnt að fæstir grunnskólanemendur þekktu hetjur íslendingasagnanna enda hefði lítið verið gert til að kynna þær fyrir þeim. Til þess að vekja áhuga krakkanna þyrfti að matreiða sögurnar af kostgæfni og bera þær skemmtilega á borð. Þetta hefði hún leitast við að gera í sinni Njálu og hún hyggst halda áfram og taka Egils sögu fyrir næst. Næst steig í pontu Jóhanna Karlsdóttir og nefndi erindi sitt „Fornsögur færðar í búning fyrir börn". Greindi hún frá vinnu sinni við gerð heildstæðs námsefnis um Leif heppna sem Námsgagnastofnun gaf út. Efnið samanstendur af sögulegri skáldsögu, verkefnabók og vefefni. Námsefnið er samvinnuverkefni Grænlendinga og íslendinga sem stofnað var til árið 2000. Titill skáldsögunnar er: Leifur Eiríksson - á ferð með Leifí heppna en Jóhanna samdi hana í samvinnu við Danann Leif Aidt. Verkefnabókina og vefefnið vann Jóhanna hins vegar með íslensku samstarfsfólki. Slóðin á vefefnið er: www.namsgagnastofnun.is/ leifur Guðlaug Richter Norrænn fundur Helgina 7. - 9. mars var haldinn árlegur fundur hjá norrænu IBBY deildunum I Kaupmannahöfn. Þrír fulltrúar frá íslandi sátu fundinn og nutu rómaðrar gestrisni Dana. Að vanda gáfu fulltrúar skýrslu um starf deildanna á sinni heimaslóð og kom þar margt fróðlegt fram sem var rætt ítarlegar. Norrænu deildirnar gefa út sameiginlegt tímarit, Nordisk blad, einu sinni á ári og skiptast á að bera ábyrgð á því. íslensku fulltrúarnir stungu upp á að stofnuð yrði ritstjórn fyrir Nordisk blad sem öll löndin ættu sæti í. Var því vel tekið og kemur væntanlega til framkvæmda á næsta ári. Einn helsti myndskreytir Dana, listakonan Lillian Brögger sem er í stjórn dönsku IBBY-deildarinnar, hélt fróðlegt erindi um alþjóðlegu myndlistarsýninguna á mynd- skreytingum í barnabókum sem haldin er árlega í Bologna og rakti hvernig verkin væru valin á hana, en hún hefur átt sæti þar í dómnefnd. Að hennar mati hafa norrænar myndskreytingar barnabóka nokkra sérstöðu og gerði Brögger það að tillögu sinni að norrænu IBBY-deildirnar stæðu fyrir slfkum sýningum á fimm ára fresti í samráði við félög myndskreyta. Það var samþykkt og tók danska IBBY-deildin að sér að halda utan um málið til að byrja með. Sennilega yrði um farandsýningar að ræða og ákveðið að sækja um fjárstuðning fyrir sýninguna til Nordisk Kulturfond. Að vanda kynntu deildirnar það nýjasta í barnabókaútgáfunni í hverju landi. Það sem vakti mesta athygli var gríðarleg sala á nýrri finnskri myndabók í stóru broti með allmiklum texta. Hún er unnin upp úr bókinni Sjö bræður eftir Aleksis Kivi sem einhverjir lesenda okkar þekkja trúlega og hafa jafnvel séð útfærða á hvíta tjaldinu. Bókin kom út á síðasta ári og hefur þegar selst ( 127.000 eintökum. Þannig sýna finnskir barnabókahöfundar menningararfi sínum sóma svo eftir er tekið og spara hvorki fé né fagran frágang í því sambandi. Hafa þeir áður gefið út kvæðabálkinn Kalevala í myndskreyttri útgáfu fyrir börn. Þá tók fulltrúi norsku IBBY-deildarinnar, Anne Horn, sem starfar hjá forlaginu Ömnipax til máls utan dagskrár. Hún vill vinna að því að palestínsk börn eigi aðgang að góðum bókum og ætlar að virkja norsk verkalýðsfélög og ýmsa menningaraðila í Noregi til að standa að málinu. Anne er í sambandi við forlag f Ramallah sem hefur sjö góða höfunda á sínum snærum en innlendir myndskreytar eru fáir. Anne Horn hyggst finna þá á Norðurlöndum. Áætlað er að síðan verði bækurnar gefnar út bæði í Palestínu og á Norðurlöndum. Bar hún það upp hvort hinar norrænu IBBY-deildirnar vildu styðja þetta verkefni. íslensku fulltrúarnir tóku vel í það og lofuðu að kanna málið hér heima. Fundurinn var vel skipulagður og allur hinn ánægjulegasti enda valinn maður í hverju rúmi í stjórn IBBY Danmark. Við stöllur komum heim aftur upptendraðar og barmafullar af góðum hugmyndum. Guðrún Hannesdóttir og Iðunn Steinsdóttir Nýr IBBY-vefur íslandsdeild IBBY hefur opnað nýjan vef á netinu sem er vistaður hjá Rithöfundasambandi íslands á slóðinni: www.rsi.is/ibby. Anna Heiða Pálsdóttir hefur allan veg og vanda af vefnum en hann er ennþá í smíðum. Þrátt fyrir það hvetjum við félagsmenn og aðra góða gesti til að kíkja á vefinn og kynna sér hvaða efni þar er og verður að finna. Á upphafssíðunni eru birtar fréttir og tilkynningar um fundi og uppákomur sem fyrirhugaðar eru hjá félaginu og öðrum sem starfa á svipuðum vettvangi. Einnig er að finna á vefnum upplýsingar um markmið og starfsemi IBBY og eitt og annað fróðlegt um Islandsdeildina. Loks er ætlunin að birta þar yfirlit yfir efni allra tölublaða tímaritsins okkar, Börn og menning, allt frá því að farið var að gefa það út f núverandi mynd.

x

Börn og menning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.