Börn og menning - 01.09.2008, Side 5

Börn og menning - 01.09.2008, Side 5
Frá ritstjóra 3 Heyrast ekki stöðugt raddir um að börn og unglingar lesi minna með hverju árinu sem líður? Ekki veit ég hvort íslenskar rannsóknir eru til á lestri barna fyrr og nú en fræðimenn í nágrannalöndunum segja að krakkar lesi minna en áður, lesskilningi hraki og að útlánum bóka á söfnum fækki. Rannsóknir má þó auðvitað alltaf draga í efa, eru útlán skólabókasafna inni í tölfræðinni og hver veit hversu margir lesa hverja bók sem keypt er eða lánuð? Og hvað með aukna útgáfu hljóðbóka, fyrir nú utan alla textana sem renna fyrir augu okkar allra, bæði í sjónvarpi og á tölvuskjám? Margir tala eins og það að læra að lesa sé líffræðilegur eiginleiki. En lestur er frekar nýlegt fyrirbæri í sögu mannkyns. Kannski er ekki jafn sjálfsagt og flestir vilja meina að við séum sffellt lesandi. Við lærum næstum öll fyrirhafnarlaust að tala með þvf að umgangast talandi fólk en lestur er miklu flóknara fyrirbæri. Lestur er ákveðin tækni sem reynslan sýnir að margir eiga mjög erfitt með að tileinka sér. í rauninni er merkilegt að til þess sé ætlast að allir lesi dag hvern flókna texta, skilji þá og túlki. Þetta getur varla verið sjálfsagt og auðvelt mál og hvað þá að öll börn nái færni í þessari tækni nokkurn veginn á sama hraða og á sama aldri. Hvers vegna ættum við öll að lesa bækur? Fyrir utan að bækur skemmta þá gegnir lestur mikilvægu hlutverki þegar kemur að málþroska. Foreldrar, leikskólakennarar og fleiri lesa fyrir börn, eða segja þeim sögur, og þannig öðlast börn málþroska og orðaforða. Börn og unglingar þurfa mikinn orðaforða til að geta fylgst með í skólanum. Eígi nám að koma að gagni krefst það þess að nemandinn geti lesið, skilið og túlkað námsefnið og því er mjög mikilvægt að börn fái þjálfun í lestri frá þvf snemma í grunnskóla og æfingu í að fjalla um efnið á margvíslegan hátt. Hlýtur það ekki að skipta mestu máli að allir finni sína leið að orðaforðanum, allir fái f hendurnar verkfæri sem þeim hentar? Ég fullyrði að í nágrenni við okkur öll er fólk sem aldrei les bók. Þeim sem lesa finnst þetta skrítið. Er bóklestur endilega lífsspursmál? Augljóslega ekki, en ég er sammála þeim sem halda því fram að góð ástæða, og kannski sú besta, fyrir þvf að halda bóklestri að krökkum, sé að þau öðlast færni í að rökræða. Bókafíklar geta einnig réttlætt misnotkun sína með því að halda því fram að bóklestur sé holl fíkn. Bókmenntagagnrýnandi hélt því fram um dagínn að tölvuleikjafíklar og bókabéusar ættu margt sameiginlegt. Þeir sætu með nefið ofaní áhugamálinu þegar flestir aðrir svæfu, væru oft einrænir og fölir og eyddu miklum tíma í áhugamálið og lifnuðu allir við væri einhver til staðar til að ræða um heim nýja tölvuleiksins eða bókarinnar sem síðast gleypti alla athyglina. En gagnrýnandinn hélt því fram að tölvuleikjaffkillinn væri ekkí jafn duglegur að rökræða og þeir sem lesa sig rauðeygða. Þetta var hugsanlega hálfgert grín og það getur auðvitað vel verið að þeir sem gleyma sér við tölvuna þroskist á öðrum sviðum, fái betri rýmisgreind, hugsi öðruvísi og öðlist jafnvel meira hugmyndaflug en

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.