Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 24

Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 24
22 Börn og menning Sigurður Ólafsson Metsöluhöfundur barnanna Afþreyingarbækur fyriryngri borgara Ég veit ekki hversu vinsælt það er á þessum vettvangi að lýsa sig ósammála ákveðinni pólitískri réttsýni gagnvart viðhorfi til barna og unglinga. En ég ætla að taka sénsinn. Það er nefnilega þannig að ég leyfi mér að efast um gildi frasans um það að „börn séu kröfuhörðustu áhorfendurnir/lesendurnirl hlustendurnir". Vissulega er það svo að börn og unglingar hrífast stundum af góðum og vönduðum listaverkum, eins og sumt fullorðið fólk. Hins vegar verður því vart neitað að engum hópi er jafn auðveldlega stjórnað af markaðsbrögðum, tískusveiflum og yfirborðsmennsku. Það er ekkert óeðlilegt við þetta. Börn og unglingar eru ómótaðir einstaklingar sem þar af leiðandi eru áhrifagjarnari þegar að þeim steðjar ytra áreiti, sér í lagi í formi yfirborðsmennsku og markaðsherferða. Þau eru ginnkeyptari en eldra fólk fyrir ytri byrðum og einmitt þess vegna erum við hin fullorðnu í hlutverki þeirra sem leiðbeina þeim áfram og hafa á stundum vit fyrir þeim þegar kemur að því að velja gæði og innihald fram yfir fagrar umbúðir. Fyrir mér er þetta ósköp eðlileg spurning um þroskaferli. Ekki er ég alla vega á því að ég hafi verið á hápunkti skynjunar og þroska míns sem barn og unglingur og hafi síðan deyfst í kröfum mínum sem njótandi lista og menningar- þvert á móti. Vinsælar bækur Framangreind óvinsæl yfirlýsingagleði mín tengist því að nýlega fékk ég í hendur það óvænta verkefni að taka örfáar stikkprufur af ferli rithöfundarins Helga Jónssonar og skrifa um þá reynslu mína í þetta rit. Helgi þessi hefur ekki farið hátt í fjölmiðlaumræðunni en samt er svo að fáir barna- og unglingabókahöfundar njóta meiri vinsælda hjá sínum markhópi en einmitt hann. Bækur hans hafa um árabil rokið út af bókasöfnum og hafa að sögn selst afar vel. Höfundur auglýsir þannig sjálfur á síðu útgáfu sinnar að Gæsahúðar-bókaflokkur hans hafi selst í um 45.000 eintökum. Ef satt reynist verður það að teljast harla gott á litlum bókamarkaði. Sama máli gegnir um dóma þá sem lesendur bókanna fella yfir þeim. Á vef bókaorma, sem (þáverandi) Kennaraháskóli íslands hýsir, er enginn íslenskur rithöfundur ofar á blaði en Helgi Jónsson yfir fjölda umsagna. Eitt og eitt barn gefur Helga dræma dóma fyrir bækur sínar en þegar á heildina er litið líst krakkaskaranum annað hvort dável eða mjög vel á bækur Helga. Þrátt fyrir þetta hefur heyrst hér og hvar í hornum að fullorðið fólk sem komist hefur í höfundarverk Helga taki bókakostinum misjafnlega. Það er því sjálfsagt sanngirnismál að reyna að komast að hinu sanna í málinu. Ég lagði því til hliðar allar þær djúphugsuðu fullorðinsbækur sem ég les þessa dagana, vopnaður mínum geysilega áunna þroska, og lúslas þrjár stikkprufur af rithöfundarferli Helga Jónssonar. Bækurnar voru tvær Gæsahúðarbækur, önnur frá 1998, merkt númer tvö og ætluð fyrir börn og hin frá því í fyrra, ætluð unglingum og með titlinum Villi vampira. Þriðja bókin var unglingabókin Rauðu augun (1999) en hana skrifaði Helgi í félagi við son sinn, Hörð Helgason. Stutt grein eins og þessi býður ekki upp á langa eða ítarlega greiningu eða að mörg dæmi séu tiltekin, umfjölluninni til stuðnings. Því verður ákveðin heildarásýnd látin duga. Stirðleiki og staðalmyndir Skemmst er frá því að segja að vantrú mín á frasann um kröfuhörku barna, fram yfir fullorðna, staðfestist nokkuð við lesturinn. Það sem einkennir allar bækurnar þrjár er stirður söguþráður þar sem höfundur dvelur of mikið við smáatriði en ræður aftur á móti illa við að gera lykilatriðum skil, hvað þá að vinna úr þeim. Sögupersónur eru flestallar byggðar á steríótýpískri, einfaldaðri ímynd af börnum og unglingum og þar að auki ber nokkuð á því, sérlega í unglingabókunum, að allir aldurshópar, ungir sem aldnir, hegði

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.