Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 30

Börn og menning - 01.09.2008, Blaðsíða 30
28 Börn og menning Þórdís Gísladóttir Spjátrungur fær á baukinn Ein nýleg barnabók hefur aftur og aftur komið mér í gott skap undanfarið. Þetta er myndabók fyrir fólk frá um það bil 3ja ára og uppúr, eftir belgíska höfundinn og myndskreytinn Mario Ramos. Bókin, sem kom út hjá Bjarti, heitir á íslensku Hver er flottastur? Aðalpersónan er óforbetranlegi úlfurinn, hégómlegur spjátrungur með hrokafullan velmegunarsvip, sem finnst hann gull og gersemi og vill að allir dáist að sér. Úlfurinn spígsporar um skóginn með hálsbindi og finnst hann bókstaflega lýsa upp alla veröldina. Hann hittir Rauðhettu, Mjallhvfti, grísina þrjá og dvergana sjö sem öll gapa upp í hann þrátt fyrir að hann tali niður til þeirra. En endalokin eru óvænt því litla drekabarnið, sem er í feluleik með fuglinum, er nefnilega ófeimið við að tjá sig og alls ekki sammála því að úlfurinn sé flottastur í skóginum.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.