Börn og menning - 01.09.2008, Side 26

Börn og menning - 01.09.2008, Side 26
24 Börn og menning Júlía Margrét Alexandersdóttir Hrylling ofar hamingju Við mæðgurnar eigum okkur einnar línu brandara sem er eiginlega eini brandari heimilisins sem við þreytumst aldrei á að segja. „Dúa bangsi datt í koppinn!" Þessi lína finnst okkur alltaf jafn ótrúlega fyndin en hana má finna í einni af fyrstu uppáhaldsbókum dóttur minnar en hún fjallar um drenginn Dúa og leikföngin hans. Dóttir mín og ég þræddum held ég flestar þær barnabókmenntir sem í boði voru fyrir þau allra yngstu á sínum tíma og það verður að viðurkennast að fæstar sitja þær eftir enda takmarkað hve eftirminnilegan texta hægt er að skrifa fyrir börn sem eru rétt að byrja að tala. Það er því í raun ákveðið afrek að í þessum ósköp einföldu sögum af honum Dúa náði höfundurinn, Barbro Lindgren, að höfða til húmors tveggja ára barns með einföldum áföllum eins og þegar bangsinn endasteyptist ofan í koppinn hans Dúa. Og hlátur dótturinnar yfir bangsanum í koppnum smitaðist auðvitað strax til móðurinnar sem þreyttist aldrei á að lesa sögurnar af Dúa og beið spennt eftir því að afkvæmið ræki upp roku. Skiljanlega munum við alltaf elska Dúa og hans hversdagslegu ævintýri. Dóttirin, sem nú er tíu ára, lærði fljótt að lesa, móðirin er að eðlisfari löt og því var barnið oftar en ekki frekar látið lesa fyrir móðurina en að móðirin læsi fyrir það. Afinn gerði þetta líka - rétti barninu bækur og lá svo og dottaði meðan hún las fyrir afa sinn söguna af Hans og Grétu eða Rauðhettu og úlfinum. Grimmsævíntýrin og annar hryllingur virtist strax koma sterkastur inn og þar fundum við fljótlega okkar sameiginlega flöt í lestri: Einhvers konar lokkandi óhugnað. Þá entist móðirin lengst og kvöldstundin dróst á langinn. Vísnabókin varð þannig að einni mest spennandi bók heimilisins, ekki af því að þar væri svo skemmtilegar vísur að finna (sem auðvitað var nóg af), heldur biðu allir með öndina í hálsinum eftir því að myndin af henni Grýlu í allri sinni dýrð birtist i miðri bók og móðirin dró sængina upp fyrir haus á meðan dóttirin hló og tróð myndinni framan í hana, hæstánægð með að sjá hana hræðast gömlu kellinguna. Svona hélt þetta áfram. Bækur þar sem hugsanlega var að finna einhverja „næturstemningu", dulúð og óhugnað heilluðu öðru fremur og þegar ég fór yfir bókaskápinn með dóttur minni um daginn benti hún á bækur eins og Litla Vampýran, Gæsahúð, Sesselju Agnesi og Ævintýrabækurnar. Einnig uppgötvuðum við að oftast hefðum við lesið saman þá allra svörtustu í skápnum: Nornirnat, eftir Roald Dahl. Nornirnar hafa allt að bera til að geta skemmt foreldri og barni í senn - svartan húmor, stórkostlegan texta, myrkur, spennu og fullt af brjálæðislega skemmtilegum hugmyndum. Roald Dahl fjölfaldaði Grýlu, kom henni í hundraðatali fyrir á stórri samkomu norna og henti svo litlu barni inn í miðja þvöguna -fullkominn hryllingur! Við ræddum í gærkvöldi hverju það sætti að við elskuðum hryllinginn. Og hvað það væri sem gerði barnabækur leiðinlegar. Dóttirin var með svar á reiðum höndum. „Leiðinlegar barnabækur fjalla um glaðlegar kanínufjölskyldur. Of hamingjusamar bækur eru leiðinlegar. Það verður eitthvað að gerast. Eins og að mamman deyi í eldsvoða." Þetta hljómar kannski skelfilega í fyrstu, að barnið vilji ekki samsama sig hamingju í bókum en ætli það sé ekki fyrst og fremst það að fæst okkar þekkjum við hinn fullkomna „kanínuheim". Fyrir utan það að syngjandi fjölskyldan er yfirleitt plein og leiðinleg þá er reynsluheimur barns fullur af alls kyns óvæntum atburðum, sorgum og lífsreynslu og hver græðir þá á því að lesa um heiminn þar sem ekkert gerist nema að síminn hringir, pabbinn tekur bensín og allir fá afmælisgjöf? Höfundur er blaðakona

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.