Börn og menning - 01.09.2008, Síða 7
Mér finnst...
5
...vekjaraklukkur vera mikil þarfaþing.
Ein af merkustu uppfinningum og mestu
framfaraskrefum mannkyns. En snooze-
takkinn finnst mérafturá móti vera óttalega
gagnstaus uppfinning. Flest erum við undir
þá sök seld að þurfa að koma okkur á fætur
fyrir ákveðinn tíma flesta morgna. Það þarf
að vekja börnin og koma þeim á rói, snyrta
sig til og sinna öðrum morgunverkum,
sjá til þess að allir fái morgunverð, gefa
gæludýrunum ef einhver eru áður en
haldið er til vinnu eða í skóla, leikskóla
eða til dagmömmu. Öðru hvoru megin við
upphaf unglingsáranna er börnunum svo
falið að sjá um þetta sjálf. Þau fá sína eigin
vekjaraklukku. Með eigin snooze-takka.
Ég man þetta sjálfur frá mínum eigin
unglingsárum. Það kom fyrir að gripið var til
snooze-takkans. Að kúrt var dálitla stund enn.
Bara tíííu mínútur í viðbót. Það var blundað
dálitla stund, jafnvel svifið um sinn inn í
draumalandið, svo hringdi vekjaraklukkan
aftur og í svefnrofunum var maður ekki
alveg viss hvort maður væri að vakna eða
sofna. Svo það var ýtt aftur á snooze-
takkann. Bara einu sinni enn. Bara að kúra í
pínustund í viðbót. En allt í einu var hrokkið
upp við það að hálfur morgunninn var liðinn,
skólinn löngu byrjaður og allt í óttalegu
volli. Kannski jafnvel stöðupróf eða maður
var tæpur á mætingu fyrir og námsferlinum
stefnt í óþarfa tvísýnu. Seint og um síðir
staðið í skólastofugættinni og stunið upp:
„Fyrirgefið, ég svaf yfir mig. Ég gleymdi mér
á snooze-takkanum.''
Þetta gerðist að vísu ekki oft. Ég komst
einhvern veginn aldrei upp á lag með að
temja mér þetta almennilega. Hef ekki notað
þessa græju áratugum saman. En það eru
einhverjir sem geta greinilega ekki án hennar
verið. Það bara hlýtur að vera, fyrst hún er
alltaf hönnuð inn í vekjarann.
En til hvers í ósköpunum? Hvaða gagn
er að snooze-tökkum? Sá sem er vansvefta
hefur gott af að sofa lengur, og það heilum
svefni, ekki rumskandi á tíu mínútna fresti.
Vekjaranum er ætlað að hringja til þess að
láta vita af því að nú þurfi að fara á fætur:
Ef hægt er að kúra tíu mínútum lengur, þá
er mesta gagnið að vakna bara tíu mínútum
síðar og drífa sig þá á fætur (þetta er meir
að segja vísindalega sannað: ég las það i
fyrirsögn á Internetinu). Og ef það er ekki
tími til að kúra, þá gerir snooze-takkinn
ekkert nema ógagn. Nóg um það.
Þessa dagana eru erfiðir tímar. Yfir íslenskar
fjölskyldur hafa dunið áföll af, mér liggur við
að segja, áður óþekktum stærðargráðum.
Þegar þetta er ritað (í endaðan október
2008) er ekki nema hluti af áfallinu kominn
fram. Enn er nánast ekkert farið að brjóta til
mergjar hvað gerðist, hvernig það gat gerst
og af hverju i ósköpunum því var leyft að
gerast. Hvernig sú staða kom upp að því var
leyft að gerast. í mér ólgar reiði út í marga þá
aðila sem hafa verið í fréttum af því hvernig
fór. Ég áfellist líka sjálfan mig. Ekki fyrir
það að ég hafi djammað of villt í íslenska
lánapartíinu (þvert á móti - við hjónin tókum
bæði með okkur þær lexíur frá æskuárunum
að lifa ekki um efni fram og reyna alltaf að
hafa borð fyrir báru), heldur yfir því að ég
skyldi hafa leyft því að gerast að landi mínu
og framtíð þess var allt að því stolið undan
nefinu á mér. Það er sú tilfinning sem ég ber
í brjósti.
Ég ber kvíðboga fyrir framtíðinni. Ég kvíði
því, sem þriggja barna faðir, ekki aðeins
hvernig persónulegir hagir mínir og konunnar
minnar munu þróast á allra næstu árum,
heldur einnig og ekki síður að hve miklu leyti
skuldir okkar kynslóðar koma til með að lenda
á herðum barna okkar. Jafnvel barnabarna.
Ég hef ekki svo miklar áhyggjur af uppvextí
barna minna og aðbúnaði allra næstu árin
(þau eru tveggja, fimm og átta ára þegar
þetta er ritað). Við foreldrar þeirra eigum það
sameiginlegt að hafa alist upp á heimilum
þar sem neita þurfti sér um ýmis þægindi
og jafnvel þannig að „oft var brauðið skorið
smátt," eins og skáldið sagði. Og það var
fínt. Það var margt alveg hreint æðislegt við
að vaxa þannig úr grasi. Hamingja æskunnar
verður ekki metin út frá lánsfjárábyrgð eða
mæld í gengisvísitölum.
En ég geri mér Ijóst að þeir dagar munu
koma þegar börnin mín, þá kormin til vits
og ára, munu staldra við og spyrja mig
þeirra spurninga sem ég spyr mig sjálfur
í dag: Hvernig gátum við foreldrar þeirra
leyft þessu að gerast? Og ég veit ekki hvort
svörin verði neitt skárri en þegar maður
stóð skömmustulegur í skólastofugættinni
forðum daga:
„Fyrirgefðu, barnið mitt. Við sváfum
yfir okkur. Við gleymdum okkur á snooze-
takkanum."
Fiöfundur er liffræðingur í Grafarvogi