Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 11

Börn og menning - 01.09.2008, Qupperneq 11
Adda trúlofast og Beverly Gray leítar að gulli 9 fréttaritara (Kristmundur Bjarnason þýddi, Akureyri 1947) situr Beverly þannig með ferðaritvélina sína og skrifar „en gekk illa og tætti sundur blöðin og fleygði, eins langt og hún dró" um leið og hún kvartar við móður sína að hafa enga lífsreynslu: „Hvernig má ég læra af reynslunni ... Hér gerist aldrei neitt" (bls. 6), en það verður raunar að teljast úrdráttur miðað við upptalninguna hér að framan. En eins og hendi sé veifað skjóta upp kollinum tvær vinkonur hennar og síðan er haldið til New York í leit að ævintýrum. Raunverulegur áhugi Beverly á ritstörfum er ekki meiri en þetta, heldur er árangur á þessu sviði mikilvægur fyrir þá framakonu sem Beverly er, eins og allar vinkonur hennar úr Alfadeltafélaginu. Bókin nær hámarki þegar Beverly fangar bíræfinn þjóf sem hefur dulbúið sig eins og frægur vísindamaður, að vísu hefur hann trassað að hylja ör á kinninni sem Beverly af skarpskyggni sinni hafði tekið eftir að vísindamaðurinn var laus við. í lokin nær Beverly að síma blaðinu sínu frásögninni af þessum þjófi og mannræningja, það gerist hálftíma eftir að hún hefur bjargað hinum raunverulega vísindamanni úr klóm þjófsins. Úr þessu má lesa ágæta kenningu um ritstörf: þau ganga furðu greiðlega ef frá nógu er að segja, og eftir þessu lifir höfundur Beverly Gray- bókanna raunar sjálf. Ég held hins vegar að Öddubækurnar hafi verið sannferðugra veganesti fyrir lækna framtíðarinnar en bækurnar um Beverly Gray fyrir upprennandi rithöfunda og fréttaritara. Þegar betur er að gáð reynist lítið raunsæi í bókunum um Beverly Gray, þær eru hreinræktuð ævintýri þó að þær gerist í heimi sem líkist okkar heimi. Sjálfsagt hafa þær þó notið þess að Bandaríkin voru framandi land fyrir mörgum íslendingnum fyrir sextíu árum. Raunar er ennþá talsvert auðveldara fyrir okkur að trúa þvf að þar séu raðmorðingjar é hverju strái en á tilvist sambærilegra kóna hér á (slandi. Adda var jarðbundnari Enginn vafi er á því að lesendahópur Öddu og Beverly Gray var nánast sá sami og það hafa lesendur beggja bókanna raunar staðfest við mig. Þessir lesendur gátu því í senn farið í menntaskóla með Öddu og í gullleit með Beverly Gray. Hér hefur bæði verið bent á hliðstæður og andstæður með þessum tveimur bókaflokkum. Báðir gerast þeir í okkar heimi, eru spennandi og fjalla um hetju sem er heldur heilsteyptari en margir í lesendahópnum. Munurinn er hins vegar allnokkur á þeim gildum sem boðuð eru og svo auðvitað í jarðnándinni. Adda er jarðbundin hetja sem stefnir ekkert hærra en að verða nýtur samfélagsþegn og mestu hetjurnar í Öddubókunum eru læknar sem þjóna samfélaginu og fórna eigin frítíma og leggja sig í hættu til að rækja það hógværa hlutverk sitt. Þar eru einnig ótal hversdagshetjur sem ekkert meira hafa afrekað en að vera gott og heiðarlegt fólk. Beverly Gray er aftur á móti yfirlýst ævintýrakona sem langar raunar til að gerast rithöfundur en smám saman (einkum þegar á líður bókaflokkinn) ná ævintýrin alveg yfirhöndinni yfir skriftirnar, þeim virðist mega rubba af á hálftíma eftir að Beverly hefur handsamað þjófa og mannræningja. Á hinn bóginn verður það ekki tekið af Beverly Gray-bókunum að þær færðu íslenskum unglingsstúlkum kvenhetju. Beverly og vinkonur hennar ætla ekki að láta sér nægja að vera góðar eiginkonur eða fórnfúsar mæður heldur stefna þær á frama á eigin forsendum og það voru sterk og fremur nýstárleg skilaboð árið 1944. Það má segja að Öddubókunum sé einum þræði stefnt gegn bókunum um Beverly Gray, með því að vera spennandi og aðgengilegar en samt í skýrari tengslum við hlutskipti lesendahópsins. Þar með er ekki sagt að Öddubækurnar séu beinlínis svar við Beverly Gray-bókunum sérstaklega en hitt verður að hafa í huga að oft er hvötin á bak við barnabækur að bjóða börnum upp á lesefni sem teygir þau í átt að því sem höfundarnir telja æskilegt en frá hinu sem þeirtelja að komi þeim ekki að gagni. Þó að flestir bernskir lesendur hafi séð í gegnum þá fantasíu sem Beverly Gray-bækurnar eru auðvitað þegar betur er að gáð þá má samt reikna með að íslenskum höfundum (eins og Jennu og Hreiðari, og eins Margréti Jónsdóttur, höfundi Toddubókanna) hafi þótt full þörf á að segja sögur sem væru spennandi og átakamiklar (dramatiskar) en stæðu samt nær íslenskum raunveruleika en Beverly og að það sé ein hvötin á bak við sögurnar. Bækur þurfa að keppa við afþreyinguna Unglingabækur eru ekki nýtt fyrirbæri. Ég hef hér rifjað það upp að ritun þeirra stóð í miklum blóma fyrir einum sextíu árum og ekki síst bóka fyrir ungar stúlkur. Illu heilli er heldur lítið um sambærilegar bækur nú á dögum þannig að táningsstúlkurnar verða að gera sér Lindsay Lohan og High School Musical að góðu. Ekki er þetta í sjálfu sér neitt verra efni en til dæmis bækurnar um Beverly Gray. Ef lestur er mikilvægur og gagnlegur er hins vegar nauðsynlegt að unglingar lesi og það er Ifka mikilvægt að góðir rithöfundar reyni að keppa svolítið við erlendu afþreyinguna en á sínum eigin forsendum, eins og segja má að Jenna og Hreiðar hafi gert. Höfundur kennir við Háskóla íslands

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.