Börn og menning - 01.09.2008, Síða 27
Um nýlegar bækur
25
Guðlaug Richter
Hinsegin unglingasögur um sanna vináttu
Um bækurnar Kossar og ólífur og Svart og hvítt eftlr Jónínu Leósdóttur.
Jónína Leósdóttir er sennilega þekktust sem leikskáld en auk þess að skrifa leikrit hefur hún gefið út skáldsögur, ævisögur og þýðingar.
Árið 1993 sendi Jónína frá sér unglingabókin Sundur og saman og þótt henni hafi verið vel tekið leið langur tími án þess að önnur bók
fyrir þennan aldurshóp kæmi frá henni. Þvi miður hefur alltof lítið komið út af vönduðum, íslenskum unglingabókum undanfarin ár og
þvi var það sérstakt fagnaðarefni þegar Jónína gaf loks út nýja bók fyrir unglinga á síðasta ári, Kossa og ólifur. Nú, ári síðar, er komið
framhald af henni sem ber titilinn, Svart og hvítt.
Unglingabók eða stelpubók
( Bókatíðindum 2007 stendur undir
kápumynd af Kossum og ólífum að bókin
sé: „Skemmtileg saga sem á erindi við alla
unglinga". Það verður hins vegar að segjast
eins og er að bæði titillinn og kápumyndin
gefa klárlega til kynna að hún sé eingöngu
stelpubók. Kápumyndin á Svart og hvítt er
alveg í sama stíl og jafnvel stelpulegri en
sú fyrri. Með þessu er ekki verið að setja út
á hönnun kápumyndanna, þær eru mjög
listilega gerðar af Bjarneyju Hinriksdóttur.
Það er hins vegar nokkuð Ijóst að fáir
unglingsstrákar myndu láta sjá sig með þessar
bækur á almannafæri. Þegar skoðaður er
flokkur frumsamdra unglingabóka árið 2007
virðast höfundar leggja talsvert meiri rækt við
stelpurnar en strákana. Þar má finna titla eins
og Beygluð og brotin hjörtu, ...ef þú bara
vissir, Einu sinni var dramadrottning I ríki sinu
og Loforðið. Þessar bækur, líkt og þær sem
eru hér til umfjöllunar, eru greinilega ætlaðar
stelpum.
Hins vegar er aðeins að finna eina bók
í þessum flokki sem út frá titli og útliti
mætti halda fram að sé markaðssett sem
strákabók. Það er umhugsunarvert að úrval
frumsaminna unglingabóka skuli vera svona
einsleitt á sama tíma og dregið hefur stórlega
úr bóklestri unglinga og þá sérstaklega
stráka. Flestir eru sammála um að mikilvægt
sé að hvetja krakkana til að lesa sem mest en
það getur reynst þrautin þyngri ef ekki er til
nægilegt úrval af bókum við hæfi.
Ástin grípur unglinginn
Kossar og ólifur og Svart og hvitt eru
þroskasaga Önnu, unglingsstelpu frá Vík í
Mýrdal. Fyrri bókin hefst á því að foreldrar
Önnu telja hana á að fara til Brighton f
Suður Englandi í sumarvinnu á gistihúsi
hjá ættingjum. Anna er nýbúin að eignast
kærasta sem henni finnst alveg glatað að
yfirgefa og sömuleiðis líst henni illa á að vera
svona lengi fjarvistum frá Kötu, bestu vinkonu
sinni. Þrátt fyrir þetta reynist sumardvölin
í Brighton geyma margar ógleymanlegar
stundir og sumar örlagaríkar. Anna kynnist
Lindu, sem hafði verið pennavinkona hennar
um skeið, og það tekst með þeim innileg
vinátta. Tilfinningar Önnu komast svo í
algjört uppnám þegar Linda kyssir hana eitt
sinni undiráhrifum kampavíns. Kossinn vekur
kenndir sem Anna hefur aldrei fundið áður,
kenndir sem kossar Stjána, kærasta hennar,
höfðu aldrei vakið. í kjölfarið fer hún að velta
vöngum yfir kynhneigð sinni. Kata vinkona
hennar, sem kemur í stutta heimsókn til
Brighton, er hins vegar ekki í neinum vafa
um kynhneigð sína. Henni tekst á ótrúlega
stuttum tíma að kynnast Deepak, strák af
indverskum ættum, og verða ástfangin upp
fyrir haus.
í seinni bókinni, Svartog hvitt, sest Anna á
skólabekk í MR og flytur því til móðurömmu