Börn og menning - 01.09.2008, Side 28

Börn og menning - 01.09.2008, Side 28
Börn og menning á tímamótum í lífinu. Hún er að yfirgefa hreiðrið og taka sín fyrstu skref út í heiminn án þess að vera með foreldrana sér við hlið. Nú þarf hún á öllu sínu sjálfstæði að halda og vera í stakk búin til að taka ábyrgð á eigin lífi. Og Anna býr að því að hafa alist upp í góðri fjölskyldu sem treystir henni og styður hana með ráðum og dáðum. Það má segja að helsta einkenni bæði Önnu og Kötu sé heilbrigt lífsviðhorf og sterk sjálfsmynd. Þær eru allsendis ófeimnar við að tjá sig og duglegar að spyrja um allt sem þær þyrstir í að vita. Þær eru líka alveg lausar við óöryggi vegna eigin útlits sem hrjáir svo marga unglinga. Anna er t.d. „sátt við sitt kvenlega vaxtarlag" þótt henni finnist sléttir magar líka öfundsverðir (Kossar og ólífur, bls. 62). Þær vinkonurnar úða í sig sælgæti, frönskum og ís og elska búðaráp og fatakaup. Linda, hin breska vinkona Önnu, er algör andstæða þeirra á þessu sviði. Hún hefur gengið í gegnum skilnað foreldra sinna sem var svo erfiður að henni þótti yndislegt að vera lögð inn á geðdeild. „Á spítalanum fékk ég að vera í friði. Þar gátu pabbi og mamma ekki böggað mig." (Kossar og ólífur, bls. 78). Anna á mjög erfitt með að skilja þetta og því síður skilur hún hvers vegna Linda sveltir sig og felur horaðan líkamann í mörgum fatalögum. Anna hefur þó heyrt um anorexíu og áttar sig því á hvað er á seyði. Eíns og sannur vinur reynir hún því að ræða um vandamálið við Lindu og stappa í hana stálinu. Sjálfstæði og sjálfsöryggi Önnu er rækilega undirstrikað með afstöðu hennar til áfengisdrykkju og kynlífs. Henni finnst sinnar í Reykjavík. Kata og Stjáni eru líka flutt til Reykjavíkur en þaufara öll austuríVík íjólafrí ásamt Lindu sem kemur í jólaheimsókn til vinkonu sinnar á (slandi. í jólafrínu bregst Stjáni trausti Önnu sem verður til þess að hún slítur sambandi þeirra þótt henni finnist í aðra röndina eftirsjá að honum. Kata verður hins vegar æ ástfangnari af Deepak sem situr í stofufangelsi heima í Brighton. Foreldrar hans eru alfarið á móti sambandi hans við Kötu enda búnir að ákveða fyrir löngu að hann skuli kvænast dóttur vinafólks þeirra í Indlandi. Vinkonurnar ráða sig nú báðar í sumarvinnu í Brighton og Kata er staðráðin í því að koma í veg fyrir þvingunarhjónaband Deepaks. ( bókarlok er gefin ákveðin von um að Kötu takist ætlunarverk sitt. Af Önnu er hins vegar það að segja að hún finnur ástina bærast í brjósti sínu á ný og í þetta sinn er það stelpa sem hún kolfellur fyrir. En eiga Anna og Sylvia eftir að verða kærustur? Eiga Kata og Deepak eftir að ná saman? Og mun Lindu takast að vinna bug á átröskuninni fyrir fullt og allt? Öllum þessum spurningum er ósvarað þannig að við hljótum að gera ráð fyrir að Jónína Leósdóttir gleðji okkur með enn einni bókinni um þær stöllur á næsta ári. Jesss, hraði og spenna! Bækur Jónínu prýðir flest það sem kalla mætti aðalsmerki góðra unglingabóka. Frásögnin er fjörleg, atburðarásin hröð og fullt af dramatískum uppákomum. Enda þótt léttleikinn sé í fyrirrúmi er ekki vikist undan því að fjalla um alvarleg mál. Anna fær t.d. að kynnast erfiðum hjónaskilnaði, anorexíu og rasisma auk þess sem hún tekst sjálf á við efann um kynhneigð sína. Um öll þessi mál er fjallað af hipursleysi og án fordóma. Hvergi örlar á predikunartóni en í orðum og gjörðum aðalpersónanna endurspeglast góð lífsgildi. Þótt hvergi sé slegið af í frásögninni tekst Jónínu að lauma inn einum og einum fróðleiksmola lesendum til skemmtunar. Pabbi Önnu, sem er Breti, segir henni t.d. frá baðstrandatískunni á Viktoríutímanum: „Já, berir líkamar þótti svo ógurlega dónalegt... svo konur baðaði sig bara í sjóinn í langa kjólar and hats and everything." (Kossar og ólifur, bls. 25). Bækurnar eru vel skrifaðar, textinn lipur en laus við skáldleg tilþrif og svo sem enginn málfarsfasismi í gangi eins og vera ber í unglingabók. Þannig er slettum, eins og „jess", „gimmí fæv", „kræst" og „gay" leyft að fljóta með en þó í góðu hófi. Sterk sjálfsmynd Kossar og ólífur og Svart og hvitt eru raunsæisbækur um nútímaunglinga. Á fslandi er sögusviðið ýmist Reykjavík eða Vík í Mýrdal en eins og við vitum hefur heimurinn skroppið svo mikið saman að ekkert er eðlilegra en að islenskir unglingar geri sig heimakomna í Brighton og þar gerast stærstu atburðir sögunnar. Þegar við kynnumst Önnu stendur hún

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.