Börn og menning - 01.09.2008, Side 35

Börn og menning - 01.09.2008, Side 35
Ibby fréttir 33 VORVINDAR Vorvindar glaðir Gerður Kristný rithöfundur, myndlistarmennirnir Una Stígsdóttir og Anik Todd og tónlistarparið Dúó Stemma hlutu Vorvinda-viðurkenningar IBBY á íslandi 2008 IBBY á íslandi afhenti árlegar viðurkenningar fyrir gott framlag til barnamenningar sunnudaginn 18. maí í Gunnarshúsi við Dyngjuveg. Gerður Kristný hlaut viðurkenningu fyrir barnabækur sfnar, Mörtu smörtu, Jóladýrin, Land hinna týndu sokka og Ballið á Bessastöðum, sem allt eru vönduð og skemmtileg verk. Marta smarta sló strax í gegn hjá krökkunum sem veittu henni Bókaverðlaun barnanna 2003 og Ballið á Bessastöðum hefur kitlað hláturtaugar jafnt barna sem fullorðinna. Una Stígsdóttir og Anik Todd hlutu viðurkenningu fyrir sýninguna Allt í plati sem opnuð var í Gerðubergi 24. nóvember sl. (tengslum við ritþing um Sigrúnu Eldjárn. Á sýningunni gátu gestír upplifað heim þekktra sögupersóna Sigrúnar Eldjárn, þeirra Málfríðar, mömmu hennar og Kuggs með því að ganga inn á heimili þeirra. Var öllum 8 ára börnum boðið á sýninguna sem stóð í allan vetur og var afar vel sótt og vinsæl. Þriðju viðurkenninguna hlaut tónlistarparið Dúó Stemma sem hefur glatt leikskólabörn með sögunni um Jón bónda sem byggist öðrum þræði á hljóðgjörningi. Dúó Stemmu skipa Herdís Anna Jónsdóttir, víóluleikari og Steef van Oosterhout, slagverksleikari, sem hafa búið þekktar þulur og vísur í nýjan búning og leika undir á óhefðbundin heimatilbúin hljóðfæri. Þau fluttu stutt atriði fyrir samkomugesti á Vorvindahátíðinni við góðar undirtektir.

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.