Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Blaðsíða 9

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana - 10.12.2004, Blaðsíða 9
-ss,-,í«I!Br|nil|| -mmrnrnn -?,S uOiii|rigamti *V %s!iinnp IBÍ^iiiRiilgggi iipfj'iiifllilill i|ÍÍf!!!|i|iiHii fffisœuijia^r piíSlsl!!S||ii!!!l 3' ’ § Biiiilliim—n;=ii ÖÖSisiSffisSiiM :iil!ill!!!l!!i!!|ii: lllllSllWliftiimmmw !; !i! :1B!a ii!!;iH!!!in i yn^iSSgp • •Li.i Kröfugangan heldur af staS í mið- borg Seoul. Erlendu fulltrúarnir eru fremstir í flokki og okkar maður fjórði frá hægri. skoðun á því sem fram fer í land- inu þeirra. Skilaboðin voru skýr: Þið eruð aðilar að Alþjóða vinnu- málastofnuninni og hafið með því gengist undir ákveðnar skuld- bindingar. Þið komist ekki upp með annað en að framfylgja þeim í einhverjum áföngum og þið hafið ekki ótakmarkaðan tíma til þess.”Jens segir að þeir hafi hins vegar sagst þurfa meiri tíma til að koma hlutunum í réttan farveg. Þá hafi það verið virðingarvert hve stjórnmálamennirnir voru þrátt fýrir allt kurteisir og tóku gagnrýni þessara erlendu gesta at mikilli stillingu. Lifandi skildir Þriðji liðurinn í heimsókninni til Seoul var að taka þátt í útifundi og mótmælagöngu opinberra starfsmanna. „Þetta byrjaði á því að safnast var saman á torgi í borginni sem var gjörsamlega umgirt af 6000 óeirðarlögreglu- mönnum sem sáu til þess að ein- ungis þeir sem voru klæddir í ákveðin vesti fengu að fara inn á torgið. Þannig tókst þeim að úti- loka hinn almenn borgara frá því að taka þátt. Þrátt fýrir það er talið að 12 þúsund manns hafi verið á mótmælafundinum og í kröfu- göngunni.” Jens segir að eftir lið- lega 3ja klukkustunda útifund hafi gangan hafist og stefnan tek- in á þinghúsið. Fulltrúar erlendu stéttarfélaganna voru hafðir fremstir í von um að það stuðlaði að því að gangan fengi að vera óáreitt fýrir lögreglunni. „Það voru settir ákveðnir menn í að gæta erlendu fulltrúanna og áttu þeir að skerast í leikinn og bjarga okkur ef færi að hitna verulega í kolunum, en til þess kom þó ekki. Við gerðum okkur grein fýrir að við vorum þarna sem lifandi skildir fýrir aðra göngumenn. Á ákveðnum tímapurtkti töldu rnenn að ekki yrði lengra komist og þá var gangan stöðvuð og fjöldinn ávarpaður. Þá tóku ein- hveijir sig til og söfnuðu saman kröfuspjöldum og fanum og kveiktu í á miðri götu sem var klárlega lögbrot.” Jens segir er- lendu fulltrúana hafa gert athuga- semdir við þetta og ekki talið þetta vænlega leið til að koma málstaðnum á framfæri. „Þeir eru hins vegar mjög herskáir og eru tilbúnir að sitja í fangelsi fýrir málstaðinn og líta á það sem ákveðna manndómsvígslu,” segir Jens. Alls voru 44 handteknir í átökum lögreglu og göngumanna þennan dag og sagði Jens að dag- inn eftir hefði þeim verið leyft að fara í fangelsið og vitja hinna handteknu, sem var síðan sleppt í kjölfarið. Samræður i sta& slagsmála Aðspurður hvaða ráð þeir, sem fulltrúar opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, hafi getað gefið kollegum okkar í Suður-Kóreu segir Jens að þeir hafi hvatt þá til að reyna að búa til samræðuvett- vang með stjórnvöldum. „Ekki að hlaupa alltaf í kröfugöngur og slagsmál með mótmælaspjöldin á lofti heldur reyna að koma sam- skiptunum upp á samræðustigið.” Jens bætir við að erlend stéttarfé- lög og samtök verði að halda áfram að þrýsta á stjórnvöld í Suður-Kóreu um að standa við þær skuldbindingar sem þau hafa undirgengist með því að gerast aðilar að Alþjóða vinnumálasam- tökunuin ILO. Hann segir að eft- irlitsnefnd ILO, sem fýlgist með ástandinu í einstökum aðildar- löndum, hafi þegar kært stjórn- völd í Suður-Kóreu til stjórnar ILO fýrir að uppfýlla ekki skuld- bindingar sínar þannig að þrýst- ingnum verði haldið við. Tilfærsla á útborgunar- degi eftirá- greiddra desember- launa Fjársýsla ríkisins hefur ákveðið tilfærslu á úborgun- ardegi eftirágreiddra desem- berlauna þannig að hann verði frá og með desember 2004 um mánaðamótin des./jan. en ekki nokkrum dögum fyrir jól, eins og tíðkast hefur. Breytingin er til fram- búðar og miðast útborgun- ardagurinn framvegis, eftir atvikum, annað hvort við síðasta virka dag í desem- ber ár hvert eða fyrsta virka dag á nýju ári. I ár verður út- borgunardagurinn föstudag- inn 31. desember. Breytt útlit á vefsíbum um málefni starfsmanna ríkisins Undanfarið hefur starfs- mannaskrifstofa Fjármála- ráðuneytisins unnið að end- urskoðun á vefsíðum um starfsmannamál ríkisins og meðal annars hefur efnis- flokkunin tekið nokkrum breytingum. Hluti flokkun- arinnar tekur mið af starfsævi ríkisstarfsmannsins en megintilgangurinn með breytingunum er að auð- velda enn frekar aðgengi að starfsmannatengdu efni. Sjá nánar: www.ijarmalaradu- neyti.is/starfsmenn-rikisins 9

x

Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagstíðindi Starfsmannafélags ríkisstofnana
https://timarit.is/publication/1544

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.